Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1954, Blaðsíða 45

Stúdentablaðið - 01.12.1954, Blaðsíða 45
STÚDENTABLAÐ 37 — ÁVARP Ávarp það, er birtist fremst í blað þessn, er undirritað: Stúdentaráð Ha- skóla Islands. Þetta mætti skilja svo, sem það túlkaði einhuga álit allra fulltríia í stúdenta- ráði. En því fer fjarri. Einungis fimm fulltrúar af níu standa að því. Við, fidltríar Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta í ráðinu, erum því í mörg- um atriðum ósammála og greiddum því atkvæði gegn því, er það var borið uvp á fundi. Við teljum, að stúdentaráð sé ekki dómbært um friðarhorfur í heiminum eins og ráða mætti af orðum ávarps fulltrúanna fimm. Hlutverk stúdentaráðs er að vinna að félagsmálum háskólastúdenta og vaka yfir hag þeirra og heiðri. Þar sem við og fjöldi stúdenta teljum, að sjálfstæði íslands og framtíðar- heill sé háð frelsi og öryggi annarra vestrænna menningarþjóða, erum við þeirrar skoðunar, að lslendingar skuli standa undir þeirri ábyrgð, sem þeir hafa á hendur tekizt í samtökum hinna vestrænu lýðræðisþjóða. Það er ósk okkar og von, að þjóðir heims geti hið fyrsta leitt mál sín til lykta í friði og án vopna, og þá munu brott fallnar forsendur herverndar á lslandi. Þangað til þarf þjóðin að standa undir þeirri ábyrgð og vinna af einhug að lausn þeirra vandamála, sem herverndinni fylgja. 1 því efni treyst- um við þroska og manndómi íslenzku þjóðarinnar, sem um aldaraðir fékk varðveitt það, sem var eining hennar og arfur, tungu feðra hennar og trú. Eulltrúar Vöku i stúdentaráði. s.______________-_________________________________________________________________/ Ólafur Haukur Ólafsson, stud. med.: í veiðikyrrð Lognaldan breiðist hægt á hrjúfa ströndu. Hringgárar inni á víhum lyfta öndu. TShi mætti reyna að ná í eina hröndu. Þarna er stöng, og hérna hjól og Vma. Hallast að steini gömul veiðishrína. Bíður í shugga og mosa maðhatína. Öngull er beittur, agnið vatnið hittir. Undir er hviht, á sporð og ugga glyttir. Allt er það gott, sem geyma mínir pyttir. Snöggvast er nartað, svo er lagzt í línu. Lítils má fiskur sín gegn tahi mínu. Vonlaust hann hamast fyrir fjöri sínu. Llriði og bleihja, æshu minnar vinir. Yhhur með táli veiða mannsins synir. Svona er ég einnig, engu betri en hinir. Umhverfið, veðrið, veiðin hrífa hjarta. Hraunið og hjarrið öllum litum sharta. Flýgur hver stund sem fugl við vatnið bjarta. Slóða úr fjöru labba lúnir fætur. Af lyngi og reyni stígur ilmur sætur. Dreymir mig silung allar næstu nætur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.