Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 01.12.1954, Side 47

Stúdentablaðið - 01.12.1954, Side 47
STÚDENTABLAÐ 39 Breytingar á kennaraliði. Próf. Ásmundur Guðmundsson var á s. 1. vetri kjör- inn biskup yfir íslandi. Lét hann af kennslustörfum 31. jan. en við þeim tók séra Guðmundur Sveinsson. Var embættið síðan auglýst, og var Þórir K. Þórðar- son cand. theol. skipaður dósent frá og með 1. okt. s. 1. Með lögum nr. 85, 1953 var stofnað nýtt prófessors- embætti í lögfræði. Þrír umsækjendur voru um em- T'ieodór B. Líndal. bættið og var Theodór B. Líndal hæstaréttarlögmaður skipaður prófessor frá 1. júní 1954 að telja. Hefur hann kennt við lagadeildina undanfarin ér. Prófessorarnir Ármann Snævarr og Leifur Ásgeirsson hafa leyfi frá kennslu þetta kennsluár. Dveljast þeir báðir vestan hafs við vísindaiðkanir. I stað próf. Ár- manns kenna Þórður Eyjólfsson hæstaréttardómari og Vilhjálmur Jónsson hdl. og í stað próf. Leifs Ásgeirs- sonar kennir Bjarni Jónsson próf. frá Brown University Providence, Rhode Island. Sendikennarar. Þessir sendikennarar erlendra háskóla starfa hér: Dr. phil. Ole Widding í dönsku, fil. mag. Anna Larson í sænsku, cand. philol. Ivar Orgland í norsku og dr. Edzard Koch í þýzku. Erlendir stúdentar, sem stunda nám við háskólann í vetur eru 18 að tölu. í læknisfræði eru sex Norðmenn og ein færeysk stúdína. íslenzku nema 11 erlendir stúdentar, einn sænskur, einn finnskur, einn enskur, þrír þýzkir, tveir austur- rískir, einn ítalskur, einn spánskur og einn stúdent frá Frönsku Guyana. Er hann fyrsti stúdentinn af öðrum kynþætti en hvítum, sem kemur hingað til náms, og býður Stúdentablaðið hann sérstaklega velkominn. Prófastsskipti urðu í Nýja Garði í haust. Olafur Jónsson, cand. jur., lét af störfum, en við tók Baldvin Tryggvason, cand jur. Alþjóðlegt skákmót stúdenta. Þriðja alþjóðaskákmót stúdenta var haldið í Osló dagana 11.—19. apríl s. 1. Þar keppti fyrir hönd ís- lenzkra stúdenta fjögurra manna sveit skipuð þeim Guðmundi Pálmasyni, stud. polyt., Þóri Olafssyni, stud. med., Ingvari Ásmundssyni, stud. oecon. og Jóni Einarssyni stud. philol. 10 sveitir frá 11 þjóðum tóku þátt í mótinu. Urðu Islendingar fimmtu í röðinni og efstir Norðurlandaþjóðanna. Má það kallast góð frammistaða, þar sem margir mjög sterkir skákmenn voru þátttakendur í mótinu. Bókmenntakynning. Síðla vetrar efndi stúdentaráð til kynningar á verk- um Iiannesar Hafstein í hátíðasal háskólans. Vil- hjálmur Þ. Gíslason útvarpsstjóri flutti erindi og skýr- ingarþætti og Hjalti Guðmundsson, stud. mag., Sveinn Skorri Höskuldsson, stud. mag., Andrés Björnsson, cand. mag. og Steingerður Guðmundsdóttir leikkona lásu upp úr verkum skáldsins. Karlakór háskóla- stúdenta söng lög við ljóð eftir Hannes Hafstein. Hús- fyllir var. í vetur er áformað að kynna á svipaðan hátt verk Jónasar Hallgrímssonar, Davíðs Stefánssonar og Halldórs Kiljans Laxness. í haust samþykkti stúdentaráð að fela Félagi guð- fræðinema að annast kvöldvöku, sem helguð væri kirkju og kristni.

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.