Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.12.1954, Page 56

Stúdentablaðið - 01.12.1954, Page 56
STUDENTABLAÐ Nýr bókaflokkur Móls og menningar er kominn út. í þessum flokki, sem er hinn þriðji í röðinni eru eftirtaklar bækur: 1. ]o/in Hunt: A hœsta tindi jarðar í þessari bók segir leiðangursstjórinn John Hunt frá ævintýrinu mikla, þegar hæsti tindur jarðar var klifinn í fyrsta sinni. Bókin er prýdd fjölda mynda, þar á meðal mörgum litmyndum. Hún kom út í vor, en er með í bókaflokknum til félagsmanna Máls og menningar. 2. Gunnar BenedU{tsson: ísland hefur jarl Höfundur dregur upp lifandi og skarpa mynd af viðburðum Sturlungaaldar í gagnorðum þátt- um um 'helztu höfðingjana, þar sem megináherzla er lögð á afstöðu þeirra til erlends konungsvalds og innlendrar valdastreitu. Nýtt mat á mönnum og atburðum og nýstárleg sjónarmið einkenna þessa bók, sem á erindi til allra sem Islandssögu unna . 3. Thor Vilhjálmsson: Dagar mannsins Þetta er önnur bók þessa unga höfundar, smá- sögur og þættir, fjölbreyttir að efni og formi. Fyrsta bók höfundar vakti mikla athygli, um- ræður og jafnvel deilur. Höfundur fer lítt troðnar slóðir og hafa ýmsir talið hann einna sérkenni- legastan og frumlegastan þeirra rithöfunda, sem fram hafa komið hin síðari ár. í bókinni eru nokkrar teikningar gerðar af höfundi. 4. Jónas Árnason: FÓLK Bókin er í tveimur meginköflum, sem heita Börn — og annað fólk, en það eru smásögur og svipmyndir, sem lýsa börnunum í sérkennileg- um heimi þeirra og fullorðnum í starfi á sjó og landi. Höfundur er löngu þjóðkunnur af þátt- um sínum í útvarpi, blöðum og tímaritum, en hér birtist í fyrsta sinn bók eftir hann. 5. Einar Olgeirsson: Ættasamfélag og ríkisvald í þjóðveldi íslendinga Bókin fjallar um sögu íslands á hinu mikla umbyltingatímabili á Norðurlöndum, þegar hin stéttlausu ættasamfélög voru að líða undir lok og stéttaþjóðfélag að myndast. Höfundur sýnir fram á, að ættasamfélagið hafi haldizt hér lengur en annars staðar í Evrópu og tekið nýjum þroska, og út frá því sjónarmiði bregður hann nýju ljósi á þróun þjóðveldisins og vekur dýpri skilning en áður á lífsskoðun og menningarafrekum þessa tímabils. Síðasta skáldsaga Nóbelsverðlaunahöfundarins sænska. Söguhetjan er ræninginn Barrabas, en í dramatískri lýsingu á örlögum hans glímir höf- undur við sum djúpstæðustu vandamál mannlegs lífs á öllum öldum. Eftir Lagerkvist liggja mikil rit og margvís- leg: skáldsögur, ljóð og leikrit, og með hverju nýju verki má segja, að hann hafi brugðið sér í nýjan ham; bækur hans hafa verið þýddar á fjölda tungumála. Ein af skáldsögum hans, Böð- ullinn, hefur verið þýdd á íslenzku, og auk þess margar smásögur í ýmsum tímaritum. Lagerkvist voru veitt bókmenntaverðlaun Nóbels 1951. 7.—8. Björn Th. Björnsson: Islenzka Teiknibókin í Arnasafni Sérstæð bók meðal íslenzkra þjóðminja. Efni hennar er nærri einvörðungu myndir, stórar heil- síðuteikningar, sem eru gerðar af hinni frábær- ustu snilld. I bókinni tvinnast saman helgimyndir við myndir úr daglegu lífi manna, hindurvitnum og hjátrú, og speglar því miðaldirnar betur en flest önnur listaverk, sem við eigum. Björn Th. Björnsson listfræðingur hefur hin síðari ár lagt mikla stund á rannsókn íslenzkrar listar fyrri alda, og er þetta rit hans um Teikni- bókina hið fyrsta sem frá honum kemur í bókar- formi, en hann er þjóðkunnur fyrir að færa við- fangsefni sín í lifandi búning. 6. Pdr Lagerl{vist: Barrabas BÆKURNAK FÁST í ÖLLUM BÓKAVERZLUNUM Félagsmenn Máls og menningar fá þær eins og áður (allan flokkinn á 300 kr. ób. og 425 kr. í bandi) í BÓKABÚÐ MÁLS OG MENNINGAR Skólavör&ustíg 21, sími 5055

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.