Stúdentablaðið - 01.12.1957, Qupperneq 11
nÍDEIIULAl
34. ÁRG. 4. TBL. 1. DESEMBER 1957
BIRGIR ÍSL. GUNNARSSON stud.jur.,
formaður stúdentaráðs:
*
/Q-varp
í dag eru liðin þrjátíu og níu ár frá því, að ísland
varð fullvalda ríki. Á þeim degi minnumst við með
þakklœti og virðingu allra þeirra manna, sem börð-
ust fyrir þeim áfanga í sjálfstœðisbaráttu þfóðarinn-
ar og lögðu þar með sinn stein í byggingu hins ís-
lenzka lýðveldis.
Enda þótt þrjátíu og níu ár séu ekki langur tími,
hafa á þessu tímabili orðið einhverjar stórstígustu
framfarir, sem saga landsins getur um. Atvinnulíf allt
hefur eflzt, ný og stórvirk tœki hafa verið tekin í
notkun á sviði atvinnuvega landsmanna, og miklar
tœkniframfarir hafa orðið á flestum sviðum. Hafa
þessar framfarir liaft í för með sér stórbœtt lífsskil-
yrði alls almennings í landinu, og ber vissulega að
þakka þeim mönnum, er að baki þeirra hafa staðið.
Enda þótt fagna beri stórstígum tœkniframförum,
bœði hér á landi og annars staðar, má það þó aldrei
gleymast að ein meginundirstaða þess þjóðfélags, sem
vil búa þegnum sínum mannscemandi lífskjör, er að
hver einstaklingur njóti þeirra mannréttinda og þess
frelsis, að hann megi teljast sjálfstæður maður. Það
hefur því miður sannazt enn einu sinni á seinustu
mánuðum, að tækninni fleygir oft fram á kostnað
mannsins. Einstaklingurinn gleymist í viðleitni þjóð-
félagsins til að ná valdi yfir náttúruöflunum.
Stúdentar vilja í dag sérstaklega minna menn á að
standa fast vörð um lýðrœði, mannréttindi og and-
legt frelsi. Þeir telja, að á þeirri stundu, sem maður-
inn missir þau mannréttindi, sem sjálfsögð mega telj-
ast og lýðrœðishugmyndir hinna vestrœnu þjóða vilja
tryggja einstaklingnum, hafi lífið misst sitt innra
gildi.
Stúdentar telja, að aldrei hafi verið meiri nauðsyn
en nú fyrir þjóðina að gera sér grein fyrir þeim öfl-
um, sem sœkja fast á sjálfstœði og lýðrœði landsins,
varast þau og berjast gegn þeim. Orlög annarra þjóða
œttu að verða okkur leiðarljós í þeirri þjóðfrelsis-
baráttu.