Stúdentablaðið - 01.12.1957, Qupperneq 20
10
STÚDENTABLAÐ
IN MEMORIAM
Óskar Bjarnasen
umsjónarmaður Háskóla íslands
Við stúdentar vitum, að Oskar Bjarnasen er dáinn. Þegar í upphafi haustmisseris veitt-
um við því athygli, að hann var ekki að finna á þeim stað, sem hann var vanur að
sitja. Einn þáttur skólalífsins hafði slaknað, hlutirnir voru ekki nákvæmlega eins og þeir
áttu að vera. Óskar var veikur, en við vonuðumst eftir, að innan skamms myndum við
aftur njóta allrar aðstoðar hans eins og áður. Sú von brást. Óskar andaðist 22. október.
Óskar Bjarnasen var einn þeirra manna, sem setja svip á umhverfi sitt. Hann var
göfugmannlegur á velli og ástúðlegur í umgengni, enda var hann vinsæll af öllum, er
hann var samvistum við, jafnt háskólakennurum, þjónustuíólki hússins og stúdentum.
Honum fór vel að vera innan um unga menn, þrátt fyrir grátt hár, því að hann var
æskumaður í lund og vitmaður góður. Óskar var næmur fyrir listrænni fegurð og hafði
ákveðnar skoðanir á þeim hlutum, en var þó ljúfur í viðræðu um þá, þó ekki væri hann
öllum sammála. Hann var góður starfsmaður, verk virtust leika í höndum hans, jafnvel
þegar vitað var að heilsan var að þrotum komin. Bjartsýni og æðruleysi var honum í
blóð borið.
Við stúdentar vitum að Óskar er dáinn. Við, sem þekktum hann, tregum hann eins og
væri hann einn úr okkar hópi, en við vonum að hlutskipti slíkra manna sé gott. Eftir-
liíandi börmun hans og öðrum ættingjum viljum við votta samúð okkar. Gleymum ekki
góðum mönnum, er verða á vegi okkar.
IÓN B JARMAN