Stúdentablaðið

Ukioqatigiit

Stúdentablaðið - 01.12.1957, Qupperneq 25

Stúdentablaðið - 01.12.1957, Qupperneq 25
STÚDENTABLAÐ 15 því verið misboðið. Líka má minna á skólahátíð Menntaskólans í Reykjavík, sem lengi þótti merkis- viðburður í bæjarlífinu. Þar var jafnan púnskolla á borðum, og voru bæði kennarar og nemendur ófeimn- ir að gera púnsinu skil. Sá siður er gamall á íslandi að gera sér glaðan dag um áramótin. Miðsvetrarblót eða jólablót voru miklar veizlur, og þótti engin óhæfa að ríða til þeirra. Stúdentar vilja sitt miðsvetrarblót. Fái þeir ekki að hafa það í sínum skóla eins og menntaskólanemendur í sínum skóla, neyðast þeir til að hlaupa út í bæ og taka veitingahús á leigu fyrir of fjár, og láta þannig veitingamenn græða það fé, sem þeir sjálfir hafa fulla þörf fyrir. En háskólinn er liklega gerður af lé- legra efni en menntaskólinn í Reykjavík, fyrst hann þolir ekki fagnað nemenda sinna. Rektor vék orðum að stúdentum í setningarræðu sinni í haust. Taldi hann sögu þeirra síðasta aldar- fjórðung auð mikilfengra kosningasigra, en einstak- lega fátæka af flestu því, er miðað gæti að því að bæta aðstöðu stúdentanna sjálfra. Var svo að skilja, að stúdentar nenni nú engum málum að sinna nema stjórnmálum, þeir gangi berserksgang við kosningar, en nenni ekkert að leggja að sér til að koma hags- munamálum sínum fram. Þetta kann að hafa verið rétt, en nú er það ósatt. Stúdentar vilja vinna að málum sínum, þeir hafa full- an hug á því, að félagsheimili verði reist, þeir vilja reisa nýjan Garð, en áður en það verður gert, þarf að grynna á skuldum hinna Garðanna. Til þess þarf fé. En hvernig geta stúdentar aflað fjár? Þeir benda á örugga fjáraflaleið, en hvernig fer? Leiðinni er lok- að. Háskólaráð virðist ekki kæra sig um, að stúdentar leysi sinn vanda. Það lofar að vísu stuðningi, ef til happdrættis kemur. En enginn veit, hve langt þess verður að bíða, og háskólaráð virðist engin úrræði ætla stúdentum önnur en bíða, bíða. Það er von, að saga stúdenta sé einstaklega fátæk af flestu því, er bætt getur aðstöðu stúdenta. Háskóla- ráð er skipað mönnum, sem einu sinni voru ungir og sumum enn ungum. Stúdentar eru ungir, og þeir vita, hve vel þessir menn unnu málum stúdenta á stúdents- árum sínum. Þeir munu ekki liggja á liði sínu fremur en fyrirrennarar þeirra, og vita má háskólaráð það, að ein neitun enn gerir hvorki til né frá. Stúdentar vita, hvað þeir vilja, og þeir munu knýja sitt fram. ---------------------------------------------N GYLFI GRÖNDAL stud.mag.: LJ ÓS ASKILTI Ljósaskiltin kvikna og slokkna, líkt og þú vakir um miðja nótt og svipist um eftir nýjum degi, nýju umhverfi, nýrri fegurð, en sjáir ekkert og sofnir aftur. ... kvikna og slokkna koll af kolli. Og þegar birtir horfa þau á umferðina sljóum augum. Hús Húsið stendur í borginni aðþrengt af nýjum húsum, hrukkótt, farið að springa, og stynur, þegar stiginn er dans á steingólfunum, og syrgir að þurfa að byrgja hljóðið: gleðinnar söng. k____________________________________________^

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.