Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 01.12.1957, Side 27

Stúdentablaðið - 01.12.1957, Side 27
Stúdentar írá Menntaskólanum í Reykjavík 1957 niður fyrir sér og taka sjálfstæðar ákvarðanir. Það krefst aðhalds og hagkvæmni. Stúdentinn verður að gera sínar áætlanir, sem hann stefnir markvisst að og reynir að standast. Að ná settu marki með slíkum hætti veitir í senn gleði, styrk og traust. Þeir, sem setja vilja akademísku frelsi einhverjar skorður, færa það máli sínu til stuðnings, að svo virð- ist, sem margur í hópi stúdenta kunni ekki að not- færa sér kosti þess. Þeir hinir sömu halda því fram, að það frelsi við námið, sem stúdentinn finnur sig skyndilega í, þegar hann kemur í Háskólann, geri hann í fyrstu latan og kærulausan, og að sumir séu þannig áfram alltof lengi. Úr þessu á svo að bæta með því að sleppa ekki alveg reglum um tímasókn og prófskyldu. Heppilegra myndi að finna aðrar leiðir. Það er mín skoðun, að það kæmi að miklu gagni að byrja á því strax í menntaskóla að fræða menn verulega um hin- ar ýmsu deildir Háskólans, kennslu og námsefni, svo og hver réttindi menn hafi af hverju einstöku og hvers sé að vænta. Þetta mundi hjálpa mörgum til þess að átta sig á hlutunum og koma í veg fyrir margs konar óæskilega tímasóun. Það er mikið atriði, að menn byrji ekki verr en sæmilega, því að, þegar lengra sækir, skapast aðhald vegna annarra orsaka. Það ber að gera mikinn greinarmun á því, hvort nám dregst á langinn vegna þess, að stúdentinn þarf sífellt að vera að vinna, eða hvort um er að ræða leti eina saman. Um fyrra atriðið er ekkert að fást, aðeins gleðilegt, að rnenn skuli eiga.þess kost að geta unnið með námi. Úr hinu síðar nefnda mætti bæta á margan hátt, t. d. með því, sem ég hef þegar drepið á, án þess að ganga á hið akademíska frelsi.

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.