Stúdentablaðið - 01.12.1957, Qupperneq 32
22
STÚDENTABLAÐ
ÞORVARÐUR ÖRNÓLFSSON stud. jur.:
Þjóðvarnarfélag stúdenta
fý
Þér eruð salt jarðar“
Listinn
Skrifað stendur:
fremja.“
„Þú skalt ekki morð
Hvað er morð?
Það stendur hvergi skrifað.
Gott. Þá skilgreinum við það sjálfir.
Við ákveðum, hvað er ekki morð:
Að kála Kenýumönnum, Kýpurbúum,
Kóreum, Malayum,
Márum, Serkjum,
Egyptum, Ungverjum . ..
það er ekki morð.
Svo breytum við listanum og bætum við
hann — ejtir þörfum.
Charity
„En ég segi yður: Elskið óvini yðar, gjörið
þeim gott, sem hata yður; blessið þá, sem bölva
yður, og biðjið fyrir þeim, sem sýna yður
ójöfnuð.“
Til hvers notum við þá vélbyssur?
Til þess að elska óvinina.
En eldvörpur?
Til þess að blessa þá.
En atómsprengjuna?
Til þess að gjöra þeim gott.
Einhver cmnar
Börnin jermd.
„Viltu leitast við af fremsta megni að hafa
frelsara vorn Jesú Krist að leiðtoga lífs
þíns?“
Drengirnir teknir í stríðið.
„Dagskipan vor: Höggvið, brennið,
sprengið! Skjótið!“
— Hershöfðinginn frá Nazaret? ?
Varasöm bók
Herir bandalags vors: Til varnar Guðs
kristni og vestrœnni menningu.
Góð bók, bjargvœttur rnenningarinnar:
„... samtidig med at hans hoved presses
tilbage, stikkes kniven ind i halsen under
pret. Alle stik med kniv eller bajonet bliver
mere effektive, hvis man drejer kniven rundt
efter at den er stulcket ind i modstanderen...“
— „Hándbog i nærkamp.“
Onnur, sem grefur undan trúnni:
„Slíðra þú sverð þitt. Því að allir þeir, sem
grípa til sverðs, munu farast fyrir sverði.“
— Nýja testamentið.
Ekkert er vissara en víst
„Biðjið, og yður mun gefast“:
Biðjum Guð um vernd, og hann mun vernda
Er ekki öruggara að biðja Uncle Sam?
Sá á kvölina ...
Erfið leið:
„En leitið fyrst ríkis Guðs og rétilœtis, og þá
mun allt þetta veitast yður að auki.“
Og önnur auðveldari:
Just let’s keep The Base, and we’ll keep you
running. Eh?