Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1957, Síða 40

Stúdentablaðið - 01.12.1957, Síða 40
30 STÚDENTABLAÐ Stúdentar írá Menntaskólanum að Laugarvatni 1957 hlutum Finnlands, að því er varðar drykkjuskap karlmanna. Viðsjárverður er hins vegar hlutur kven- fólksins. Til dæmis reyndist aðeins fjórðungur stúd- ína á fyrsta ári og aldrinum 21—22 ára bragða áfengi; hins vegar 32% stúdina á öðru ári, og full 54% þeirra stúdína, sem lengra voru komnar námi sínu, höfðu lært að drekka áfengi. í aldursflokknum 23—24 ára var þróunin á þremur árum úr 38 í 74% og í aldursflokknum 25—26 ára úr 36 í 65%. Áfengisvandamálið er greinilega háð aldri manna, og áhrif lengdar námstímans eru í rauninni ekki auð- sæ nema aldurinn sé hafður til hliðsjónar, eins og gert er að framan. Sömuleiðis er rétt að taka fram einu sinni enn, að akademískt umhverfi í sjálfu sér er ekki það, sem mestu ræður um breytta drykkju- siði, heldur eingöngu nýtt aðsetur, þar sem lifnaðar- hættir eru allir aðrir en í heimasveit stúdentsins. Námsbraut stúdentsins — höfuð- eða framtíðar- atvinna hans — hefur meiri áhrif á afstöðu hans til áfengis en nokkuð annað. Aðeins einn af hverjum tveimur stúdentum, sem búa sig undir kennslustörf, reyndist neyta áfengis, en hliðstætt hlutfall stúdenta í verzlunar- og viðskiptafræðum voru tölurnar þess- ar: í kennaraskólum 15%, í verzlunarskólum 57% og í háskólum 48%. Munurinn á magni drukkins áfengis var líka tals- verður, en ekki eins auðkennandi og hlutföllin milli drykkjumanna, sem á undan fara. Atvinnugreinar virðast ýmist hafa notkun áfengis í för með sér eða ekki. Finnland hefur auðsjáanlega sérstöðu á þessu sviði miðað við mörg önnur lönd. Víða í Finnlandi yrði þeim manni erfitt að sitja í kennarastöðu, sem játaði opinskátt, að honum þætti gott glas af góðu víni. Og finnskur verzlunarmaður yrði sennilega af mörgum góðum viðskiptum, ef hann hefði ekki til að bera nægilegan ákafa og hreysti til að sitja dögum saman á veitingahúsi og hvolfa í sig. Er stúdent kvænist, dregur greinilega úr áfengis- neyzlu hans, þurfi hann að sjá fyrir fjölskyldu sinni. Af þessu má samt ekki draga þá ályktun, að sé stúd- entinn á framfæri konu sinnar eða foreldra, hljóti hann óhjákvæmilega að vera ábyrgðarlaus drykkju- maður. Skýrslurnar bera einungis með sér, að ábyrgðartilfinningin þróast til hóflegri drykkjusiða og stúdentinn fyllir þann hóp manna, er skvettir í sig, þegar það dettur í þá, eða sérstaklega á bjátar. Frá hagnýtu sjónarmiði er nóg að segja, að gangi stúd- ent í hjónaband meðan hann er enn við nám, leiði það til að halda drykkjuvenjum innan hóflegra marka. — Aðrir meginþættir rannsóknar þeirrar, er finnska stúdentasambandið gerði, voru um fjárhags- aðstæður, trúarbrögð og skilyrði áfengisneyzlu, en það fellur utan ramma þessarar greinar. (Þýtt úr ágústhefti blaðsins Tlie Student)

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.