Stúdentablaðið - 01.12.1957, Qupperneq 43
STÚDENTABLAÐ
33
Annáll Háskólans
Háskóli íslands
var settur fyrsta vetrardag að viðstöddum forseta íslands og
fleira stórmenni.
Hátíðin hófst með því, að Dómkirkjukórinn og Þorsteinn
Hannesson óperusöngvari fluttu þætti úr Háskólakantötu dr.
Páls Isólfssonar við Háskólaljóð Þorsteins Gíslasonar undir
stjórn tónskáldsins. Rector magnificus, dr. Þorkell Jóhannes-
son, flutti þá setningarræðu sína. Siðan voru enn fluttir þætt-
ir úr Háskólakantötunni. Þá ávarpaði rektor nýstúdenta og
afhenti þeim háskólaborgarabréf sín. Loks var þjóðsöngurinn
sunginn.
1. desember
Hátíðahöldin 1. desember hófust með guðsþjónustu í kap-
ellu Háskólans. Síra Jón Auðuns prédikaði, en Bræðralag,
kristilegt félag stúdenta, sá um guðsþjónustuna.
Eftir hádegið flutti Þórarinn Björnsson skólameistari ræðu
lir útvarpssal, en veður hamlaði því, að ræðan yrði flutt af
svölum Alþingishússins.
Síðdegis var haldin samkoma í hátíðasal Háskólans. Þar
flutti formaður stúdentaráðs ávarp, Guðmundur Jónsson lék
á píanó, en síðan var rætt um framtíðarhorfur íslendinga.
Ræðumenn voru Ásgeir Þorsteinsson verkfræðingur, dr.
Broddi Jóhannesson, dr. Jóhannes Nordal og prófessor Niels
Dungal. Forseti íslands var viðstaddur samkomuna.
Um kvöldið var hóf að Ilótel Borg, og voru forsetahjónin
meðal gesta. Þá flutti Guðmundur Ásmundsson hrl. ræðu.
Skemmtu menn sér við dans fram eftir nóttu.
Bókmenntakynningar
voru tvær á síðasta vetri. Fyrri kynningin var haldin sunnu-
daginn 16. des., og voru þá kynnt verk Gríms Thomsens. For-
maður Stúdentaráðs flutti ávarp, Andrés Bjömsson cand.
mag. hélt erindi um skáldið, en Lárus Pálsson leikari, Þor-
steinn Hannesson óperusöngvari, Kristín Anna Þórarinsdóttir
leikkona, Gunnar G. Schram cand. jur. og Konráð Sigurðsson
stud. med. fluttu nokkur kvæða Gríms. Aðsókn var góð að
kynningu þessari.
Síðari kynningin var haldin sunnudaginn 31. marz. Var þá
fjallað um dr. Helga Pjeturss. Að venju flutti formaður Stúd-
entaráðs ávarp. Síðan flutti Jóhannes Áskelsson jarðfræðing-
ur erindi um náttúrufræðinginn Helga Pjeturss og bók-
menntalegt gildi verka hans. Gunnar Ragnarsson heimspek-
ingur hélt erindi um heimspekikenningar dr. Helga, sem
mikla athygli vakti, enda spunnust bæði blaðaskrif og funda-
höld út af þvi. Úr verkum dr. Helga lásu þeir Óskar Halldórs-
son stud mag. og Ólafur Jens Pétursson stud. philol.
Báðum kynningunum var útvarpað af segulbandi, skömmu
eftir að þær höfðu verið fluttar.
Ein bókmenntakynning hefur verið haldin á þessum vetri,
16. nóvember s.l., en þá var 150 ára afmæli Jónasar Hall-
grimssonar og kynningin helguð honum. Formaður stúdenta-
ráðs flutti ávarp, dr. Einar Ól. Sveinsson prófessor flutti
erindi um skáldskap Jónasar, en Herdís Þorvaldsdóttir leik-
kona, Lárus Pálsson leikari, Þorsteinn Ö. Stephensen leikari,
Ása Jónsdóttir stud. phil. og Sveinn Skorri Höskuldsson stud.
mag. lásu úr kvæðum hans. Bókmenntakynning þessi tókst
vel og var húsfyllir.
I bókmenntakynninganefnd áttu sæti Benedikt Blöndal
stud. jur., formaður, Magnús Þórðarson stud. jur. og Ólafur
Pálmason stud. mag.
Kosningar
til stúdentaráðs fóru fram 19. október. Fram komu fimm list-
ar, A-listi borinn fram af Stúdentafélagi jafnaðarmanna, B-
listi borinn fram af Félagi frjálslyndra stúdenta, C-listi bor-
inn fram að Félagi róttækra stúdenta, D-Iisti borinn fram af
Vöku, félagi lýðræðissinn-
aðra stúdenta, og E-listi bor-
inn fram af Þjóðvarnarfélagi
stúdenta.
Leikar fóru svo, að A-listi
hlaut 61 atkvæði og einn
mann kjörinn, Emil R. Hjart-
arson stud. med., B-listi hlaut
115 atkvæði og einn mann
kjörinn, Leif Jónsson stud.
med., C-listi hlaut 101 at-
kvæði og einn mann kjörinn, Guðmund Guðmundsson stud.
med., D-listi hlaut 314 atkvæði og fimm menn kjörna, Birgi
ísl. Gunnarsson stud. jur., Boga Melsted stud. med., Ólaf G.
Einarsson stud. jur., Hörð Sævaldsson stud. odont. og Magnús
Þórðarson stud. jur., og E-listi hlaut 61 atkvæði og einn mann
kjörinn, Olaf Pálmason stud. mag.