Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.12.1960, Page 24

Stúdentablaðið - 01.12.1960, Page 24
DAVÍÐ STEFÁNSSON FRÁ FAGRASKÓGI: Langt inn í skóginn leitar hindin særð og leynist þar, sem enginn hjörtur býr, en yfir hana færist fró og værð. Svo fjarar lífið út . . . Ó, kviku dýr, reikið þið hægt, er rökkva tekur að og rjúfið ekki heilög skógarvé, því lítil hind, sem fann sér felustað vill fá að deyja ein á bak við tré. Um blóð, sem fyrr var bæði ungt og heitt, mun bleikur mosinn engum segja neitt. En þii, sem veizt og þekkir allra mein, og þú, sem gefur öllum lausan taum, lát fölnað laufið falla af hverri grein og fela þennan hvíta skógardraum. Er fuglar liefja flug og morgunsöng og fagna því, að ljómar dagur nýr, þá koma öll hin ungu, þyrstu dýr að uppsprettunnar silfurtæru lind — öll, nema þessi eina, hvíta hind. Úr Ijóðabókinni I dögun. V 24 STUDENTABLAÐ

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.