Stúdentablaðið - 01.12.1960, Síða 33
lenzkri sagnfræði lengi sjá stað, og verða þau vissu-
lega ávallt talin til grundvallarrita þeirrar greinar.
Auk sagnfræðiritunar fékkst dr. Þorkell mjög við
útgáfustarfsemi, og er þar ekki sízt að minnast hins
mikla nytjaverks hans, er hann bjó bréf og ritgerðir
Stephans G. Stephanssonar til prentunar. Er það rit-
verk 4 bindi. Safnverkið „Merkir Islendingar“ í 5
bindum er og ágætt rit, sem margir liafa haft yndi af
að lesa.
Hér er aðeins vikið að nokkrum höfuðritum dr.
Þorkels, en margra annarra er ógetið, og er hann
rneðal afkastamestu fræðimanna íslenzkra.
III
Dr. Þorkell Jóhannesson var óvenju
þroskaður maður, er hann settist, 26
ára að aldri, í háskólann haustið
1922. Gerðist hann þá nokkur for-
vígismaður í félagsmálum og var
meðal hinna fyrstu manna, sem
gegndu formennsku í stúdentaráði
háskólans, en það var stofnað
skömmu áður en hann settist i skól-
ann. Veitti hann og um hríð forstöðu
Mensae academicae og var formaður
stúdentagarðsnefndar. Þá er brýnt
efni til að minnast þess hér, að hann
átti sæti í ritnefnd hins fyrsta tölu-
blaðs af Stúdentahlaði 1. des. 1924.
Mun hann hafa verið hvatamaður og
forgöngumaður þeirrar útgáfu, enda
var hann það ár formaður stúdenta-
ráðs. Hann lauk meistaraprófi árið
1927. Liðu síðan 17 ár frá því, að
hann sagði skilið við skóla sinn, unz
hann tók við prófessorsembætti sínu
1944, er hann gegndi óslitið í 16 ár.
Dr. Þorkell var kjörinn rektor
fyrsta sinni í maí 1954 og síðan end-
urkjörinn 1957 og 1960. Hefir pró-
fessor Alexander Jóhannesson einn
gegnt lengur rektorsembætti en hann.
Dr. Þorkell var búinn mörgum ágæt-
um kostum sem rektor. Hann var hygginn maður,
laginn að koma fram málum stofnunarinnar, tillagna-
góður og úrræðagóður, mikill mannasættir og gædd-
ur slíkum persónutöfrum ljúfmennsku og góð-
mennsku, að öllum hlaut að þykja einlæglega vænt
um hann.
Rektorstíð dr. Þorkels hefir verið grósku- og fram-
faratímabil í sögu háskólans. Háskólanum hafa verið
sett ný lög og reglugerð, prófessorum og öðrum kenn-
urum hefir fjölgað, og kjör kennara, einkum dósenta
og lektora, hafa batnað. Starfsemi háskólans hefir
aukizt að öðru leyti, m. a. hefir verið stofnað til
STUDKNTABLA8
33