Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.12.1960, Page 34

Stúdentablaðið - 01.12.1960, Page 34
Stúdentar frá Menntaskólanum að Laugarvatni 1960 Fremri röð jrá vinstri: Kolbrún Sigurðardóttir, Sigurbjiirg Snorradóttir, Ásdís V. Jónsdóttir, Sigrún Helgadóttir, Sig- urbjörg H. Jóhannsdóttir, Margrét Stefánsdóttir, Sigríður Þorvaldsdóttir, Sigurlaug A. Gunnarsdóttir. — Aftari röð írá vinstri: Eysteinn Pétursson, Sigurður G. Jónsson, Sverrir lngólfsson, Sveinbjiirn Benediktsson, Njörður O. Geirdal, Páll Pétursson, Gunnar Gunnarsson, Jóhann S. Hannesson,skólameistari, Baldur Eyþórsson, Olafur N. Elíasson, \'aldi- tnar Brynjólfsson, Páll Skúlason, Magnús H. Pétursson. kennslu í lyfjafræði lyfsala við háskólann, og aðstaða til kennslu í eðlisfræði og efnafræði hefir stórum batnað. Ráðizt hefir verið i meiri byggingarfram- kvæmdir en dæmi eru til, síðan byggingu háskóla- húss lauk, og háskólahappdrættið, sem stendur fjár- hagslegan straum af þeim framkvæmdum flestum, hefir eflzt mjög þessi árin. Ekki verður svo skilizt við þetta mál, að ekki sé minnzt þess ntikla þáttar, sem heimili dr. Þorkels átti í rektorsstarfi hans. Fjöldamargir menn, bæði inn- lendir og erlendir, nutu mikillar gestrisni á hinu vist- lega og menningarlega heimili rektorshjónanna, frú Hrefnu Bergsdóttur og dr. Þorkels, en þau hjón voru frábærir gestgjafar. Munu minningarnar um glað- værð góðra stunda á heimili þeirra seint fyrnast í hugum okkar vina þeirra. IV Dr. Þorkell Jóhannesson verður öllum þeim minn- isstæður, sem af honum höfðu kynpi, og dómar manna utn mannkosti hans og persónuleika eru mjög á einn veg. Hann var mikill drengskaparmaður, jafn- lyndur og góðlyndur, en gat verið fastur fyrir, við hvern sem var að etja. Yfir svip hans hvíldi rósemi og jafnvægi og einstök heiðríkja. Handtakið trausta og hið hlýja bros hans mun seint gleymast. Góðgirni hans var við brugðið, og aldrei heyrði ég hann hall- mæla manni, en hitt var ríkt í honum að bera blak af mönnum og finna þeim nokkuð til málsbóta. Hann var æðrulaus og óvílinn, og allt málskraf var honum lítt að skapi. Að dr. Þorkeli Jóhannessyni er mikill sjónarsviptir hér í háskólanum, og öllum er hann harmdauði. Líf hans og lát fyrir aldur fram er oss öllum brýning um að vinna íslenzkum vísindum það, er vér framast megum, og að hlynna að og vinna þeirri stofnun, Há- skóla íslands, sem honum var svo kær. Háskóli Islands þakkar ómetanleg störf rektors síns og blessar minningu hans. Armann Snœvarr. 34 STÚDENTABI.AÐ

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.