Stúdentablaðið - 01.12.1960, Qupperneq 37
f'
DAVÍÐ STEFÁNSSON FRÁ FAGRASKÓGI:
ISyrhiu
Þér finnst þú snauður, lífið lítils virði.
Þú leitar meiri hvíldar — ekki byrði.
Hvort sást þú aldrei mold, sem rótlaus rýkur,
rekald, sem hrekst um hafið, lauf, sem fýkur?
Þig skortir festu, hyrði til að bera.
Að bera eitthvað þungt — það er að vera.
Ur Ijóðabókinni I dögun.
_________________________________________________________________________________________________^
Frá ritnefnd
Kitnehid þessa blaðs þykir rétt aS gera stutta grein
fyrir störfum sínum. Hún var kosin á almennum
stúdentafundi í nóvemberbyrjun, og var á þeim fundi
samþykkt að aðalnrál dagsins skyldi vera landhelgis-
málið.
A þeim óvenjulega stutta tíma, sem nefndin hafði
til útgáfu blaðsins, var samstarfið ætíð með ágætum.
Að vísu var ágreiningur um sjónarmið aðalgreina
blaðsins.
Minni hlutinn (J. Ó. og S. S.) lagði í upphafi til.
að fjallað yrði um málið í samræmi við ályktun al-
menns slúdentafundar 13. okt. sl., þar sem lýst er
yfir andstöðu við nokkrar tilslakanir frá 12 mílna
fiskveiðilögsögu. Meiri hlutinn (Á. E., J. S. og H. B. I
féllst ekki á þetta.
Þá bar minni hlutinn fram málamiðlunartillögu
þess efnis, að greinarnar um málið yrðu tvær, og þar
kæmi fram hvort tveggja sjónarmiðið í landhelgis-
deilunni. Meiri hlutinn féllst ekki á þessa málamiðl-
unartillögu og stakk upp á og samþykkti þá greinar-
höfunda, sem í blaðið rita. Minni hlutinn var and-
vígur þessum greinarhöfundum á þeirn forsendum,
að þeir myndu lúlka sjónarmið í landhelgisdeilunni,
sem voru í andstöðu við ályktun almenns stúdenta-
fundar 13. okt. sl. og lagði til, að fengnir yrðu
greinarhöfundar, sem rituðu í samræmi við fyrr-
nefnda ályktun og andstætt þeim sjónarmiðum, er í
blaðinu birtast.
Meirihlutinn leit ætíð svo á, að hann hefði verið
kosinn vegna skoðana sinna á landhelgismálinu.
Stúdentafundurinn í nóvember hafnaði og tillögum
minnihlutans með atkvæðagreiðslu.
Ágreiningur var því í grundvallaratriðum um,
hvor stúdentafundurinn teldist ráða meiru.
RITNEFND
STIJDENTABLAÐ
37