Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1960, Síða 39

Stúdentablaðið - 01.12.1960, Síða 39
sjft'á ‘f4afnat'át'ittuittt Um langan aldur var Kaupmannahöfn höfuðlær- dómssetur íslenzkra stúdenta. og eru þeir ekki fáir Islendingarnir, sem lesið liafa fræði sín og notið lífsins lystisemda í þeirri frægu borg við sundið. Margur góður Frónbúinn hefur gist Garð, og á Danagrund hafa menn glaðzt og grátið. Þar hafa ís- lendingar drukkið og dansað og dreymt um fagrar konur, en aðrir svipt sig Iífi í heimsins sorg og sút. Nú, þegar Hafnarvist er orðinn þverrandi þáttur í Iífi íslenzkra slúdenta, er það ef til vill ekki ófróðlegt að gægjast í endurminningar nokkurra Hafnarstúd- enla og hyggja að, hverjum augum þeir hafa skoðað dvöl sína þar. „Hér er að mörgu gaman, ef maður hefði nóga peninga til að nota sér það, en ekki get ég fundið smekk í ])ví, sem fólk hefir sér hér til lystisemda. Mest fær á ntig hljóðfærasöngurinn, og að heyra hann und- ir eikigreinunum, sem yfirskyggja á allar síður, gerir mann næstum frá sér numinn fyrst í stað. Alt getur maður haft hér, sem upphugsað verður, með peningum, og séu þeir Itil], takmarkar ekkert manns frjálsræði nema flugurnar og flærn- ar, sem livorki geía um kopar né seðla. Fólkið hérna er fjarskalega glaðlynt og bægilegt og strax til reiðu með alls kyns þénustu, en alt verður að kosta peninga. Verst af öllu kann ég við skrattans móð]inn] og get ég aldrei liðið sjálfan ntig, þegar ég lít utan á mig.“ (tíréf Tómasar Sœmundssonar, bls. 19.) „A Garði bjó Garðprófasturinn. 1 minni tíð dr. jur. Larsen prófessor. Hann var kvæntur niaður, og munu þati hjón liafa verið vel látin af stúdentum, bæði íslenzkum og dönskum. Þótt ég kæmi oft á Garð, sá ég þar aldrei kvenmann. Blessað kvenfólkið liefur líklega verið alger bannvara þar. Þess má því geta nærri, hvert reginhneyksli það hefur verið í augum prófessors Larsens, er liann komst að því, að danskur stúdent, sem auk þess las guðfræði, hafði eftir háttatíma tekið stúlku inn um gluggann hjá sér. Glugginn sneri út að Köbmager- gade. Ekki man ég, hvort stúdentinn var rekinn af Garði, en sagt var mér, að það liefðu þótt málsbætur fyrir hann, að stelpurnar, sem liann togaði inn til sín í gegnum gluggann, voru tvær. Þá kom og á minni tíð ennþá meira hneyksli fyrir í Borchs Collegium. Ekki áttu lögfræðinemar þar neinn hlut að máli, því að sú saga gekk, að í „Statúttunum", þ. e. reglu- gerð fyrir stofnunina, stæði, að ekki fengju þar inngöngu „Jurister og andre Skurke". Atvikið var sýnt í myndum í skopblaðinu „Blæksprutten". Fyrir framan dyrnar hjá einum stúdentinum stóðu fallegir dömuskór, og stóð prófessorinn liálfboginn með gleraugu og undrunarsvip yfir þessu fyrir- brigði. I textanum við myndina stóð, að stúdentinn hefði í misgripum iátið skó stúlku sinnar fram fyrir dyrnar, en ekki sína skó, eins og venja lians var.“ (Minningabók Guðmundar Eggerz, bls. 81—2.) „Lá í rúminu til SVi. Eg ætlaði reyndar oft að fara á fætur, en það varð ekkert úr því. Ég ætlaði bara að liggja, meðan ég væri að telja 100. ... Nei. Ég lá lengur. Það voru allar taugar svo slakar og linar. Velgjan var svo notaleg. Ég tímdi varla að lireyfa mig. Eg var ekki vakandi og ekki sofandi. Ilálfar hugsanir flugu gegnuin liuga minn, ein eftir aðra. Svona hefði ég getað legið allan daginn. Seinast fór Gísli á fætur, og þá gat ég ekki verið þekktur íyrir að liggja lengur. Gekk út.á Löngulínu. Las „Ungdom í Digt og Sang“. Lá og mókaði 2 tíma um miðjan daginn. Það er svo indælt að móka. Um kvöldið var ég uppi hjá Einari og Glosa. Vér rædd- um um ýmislegt, kvennafar, túra, skuldir og peningaklípur o. s. frv. Samtal vort var allskemmtilegt. Háttaði 11.“ (Olafur Davíðsson: Eg lœt allt fjúka —, 307.) „I milli smátúra rninna út um landið lifði ég all-glöðu lífi inni í horginni, og bjó unt tíma með skemmtilegum fé- lagsmanni, Snorra Pálssyni frá Siglufirði; hann henti mikið gaman af glensvísum, og gerðum við formannavísur, sem við kölluðum, um landa vora, sem með stakri reglusemi „reru á kvöldin í Kobbabúð", o: sátu að sumbli hjá Jakobsen nokkr- um f „Skaftinu". ... Margar skopvísur voru þá á gangi í Höfn, en engin illindi, og var því öll viðkynning frjálsari en stundum á iindan og eftir. En þótt ég tæki þált í skopi og öðru gamni landa, liélt ég hvorki þá, áður né síðan á lofti glettniskveðlingum mínum, og því hefur mest af því gleymzt, enda var hið lakara jafnóðum brennt. Lét mér og aldrei vel sá kveðskapur, þótt ég henli gaman að honum hjá öðrum.“ (Matthías Jochumsson: Sögukaflar af sjálfum mér, bls. 200—201.) STUDENTABLAÐ 39

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.