Stúdentablaðið - 01.12.1960, Qupperneq 44
Reykjanesvita, og nutum við leiðsögu vitamálastjóra.
Er komið var til bæjarins, var toppstöðin við Elliða-
ár skoðuð.
í þessum ferðalögum okkar höfum við alls staðaj
hlotið beztu viðtökur, en sérstaklega ber þó að þakka
ágæta leiðsögu og fyrirgreiðslu próf. Finnboga R.
Þorvaldssonar.
Sumarið 1959 sóttu verkfræðinemar um sérstakan
styrk vegna kostnaðar við nám í landmælingu.
Menntamálaráðuneytið vísaði málinu til fjárveitinga-
nefndar, en mælti með að veitt yrðu lán, en ekki
styrkir.
Alþingi afgreiddi síðan málið án frekari breytinga.
Fjárveitingin var tekin á fjárlög 1960 og kom því of
seint, til að þeir, sem upprunalega sóttu um hana,
nytu góðs af.
Með þessu hefur verið ráðin nokkur bót á fjár-
hagsörðugleikum verkfræðinema á 3. ári, er þeir eru
að námi allt sumarið.
Frá Orator, félagi laganema
Orator, félag laganema, var stofnað 1923. í fyrstu
var félagið aðeins málfunda- og skemmtifélag, en
færði smám saman út kvíarnar, og árið 1947 hóf það
útgáfu Ulfljóts, sem kemur reglulega út og flytur
greinar lögfræðilegs efnis. -— í núverandi stjórn eru
eftirtaldir menn: Magnús Þórðarson, formaður,
Skúli Pálsson, varaformaður og ritstjóri Ulfljóts,
Þórður Guðjohnsen, aðstoðarritstjóri, Stefán Hirst,
gjaldkeri, og Guðrún Erlendsdóttir, ritari.
Störf félagsins sl. ár hafa verið með svipuðum
hætti og undanfarin ár og ekki er ástæða til að rifja
upp, haldnir hafa verið málfundir og almennir fé-
lagsfundir o. s. frv.
Hátíðisdagur Orators var að venju haldinn 16.
febrúar. Hófst hann með því, að laganemar fóru í
Hæstarétt og hlýddu á erindi dr. jur. Þórðar Eyjólfs-
sonar, forseta hæstaréttar. Eftir hádegi var bæjar-
þing Orators sett í Háskólanum, en um kvöldið var
gengið til veizlu í Þjóðleikhússkjallaranum.
I haust var farið í hinn árlega vísindaleiðangur,
og var Litla-Hraun heimsótt. Þaðan var ekið að As-
hildarmýri, þar sem próf. Theodór B. Líndal flutti
erindi.
Sl. vetur var tekin upj) sú nýbreytni, að Guðmund-
ur Ásmundsson, hrl., var fenginn til að kenna laga-
nemum undirbúning og meðferð dómsmála. Gafst
þetta mjög vel, og vonumst við til, að þessi þáttur
kennslunnar haldist.
Á vormisseri kom til lagadeildarinnar góður gest-
ur, þar sem var próf. Eugene N. Hanson, forseti laga
deildar í Ohio Northern University. Kenndi hann
skaðabótarétt og hélt jafnframt fyrirlestra almenns
efnis.
Mikið var um utanferðir laganema sl. ár. Formað-
ur Orators sótti þing og hátíð laganema í Stokk-
hólmi.
I júní var haldið 12. mót norrænna laganema í
Noregi, og sóttu það 4 laganemar héðan, Skúli Páls-
son, Birgir Isl. Gunnarsson, Jón Ragnarsson og
Ólafur Stefánsson.
Nú i haust fóru prófhæstu laganemar í seinni hluta
til Bandarikjanna í 3 vikna boði ríkisstjórnarinnar
þar. Þeir, sem það hnoss hrepptu, voru Birgir ísl.
Gunnarsson, Jóhannes Helgason og Guðrún Erlends-
dóttir. Ferðuðust þau víða um og sóttu tíma í laga-
skólanum við Ohio Northern University.
Er von til, að komið verði á gagnkvæmum stúd-
entaskiptum við þann skóla.
Mikil aðsókn hefur verið að lagadeildinni undan-
farin ár, og er það gleðiefni, að í haust innritaðist
hópur stúlkna, og er það vonandi vísbending þess,
að hið veikara kyn fælist ekki deildina eftirleiðis
svo sem verið hefur.
ÁRNl KRISTINSSON:
Frá Félagi læknanema
Hið 27 ára gamla Félag læknanema hefur lifað
fjörmiklu lifi liðið ár sem endranær. Félagsmenn eru
milli 190 og 200, enda eru allir læknastúdentar ipse
facto meðlimir félagsins. Haldnir hafa verið fundir
mánaðarlega allan skólatímann. Hafa merkir læknar
flutt fræðileg erindi um hugfólgin mál, rædd félags-
44
STÚDENTABLAf)