Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1969, Blaðsíða 36

Stúdentablaðið - 01.12.1969, Blaðsíða 36
og Chain Coffin Child Memorial Fund veitti $ 31.500 styrk til rannsókna Dr. Guðmundar Eggertssonar í erfða- og líffræði. Auk þess margt fleira er hér verður ekki upptalið. Kennaralið. Vegna hinnar öru þróunar Háskóla Islands urðu töluverðar breytingar á kennaraliðinu. Urðu þær helztar, að prófessor Theodór B. Líndal lét af embætti fyrir aldurs sakir. Þá var dr. Björn Björnsson skipaður prófessor í guð- fræðideild og Margrét Guðnadóttir prófessor í læknadeild. Einar Björnsson og Gaukur Jör- undsson voru skipaðir prófessorar við laga- deild. í verkfræði og raunvísindadeild var dr. Sigurður Þórarinsson skipaður prófessor. Einn- ig urðu þær breytingar í þeirri deild, að dr. Guðmundur Eggertsson var settur prófessor í almennri líffræði og þeir mag. Örn Helgason og mag. Þorsteinn Þorsteinsson voru settir dósentar. í lyfjafræði lyfsala var dr. Vilhjálmur Skúlason skipaður dósent. Þá komu einnig að skólanum tveir erlendir kennarar, fil. kand. Ingrid Wetin og prófessor John G. Allee. Nýstúdentar. Enn einu sinni var sett nýtt met í fjölgun stúd- enta við Háskólann. Innrituðust á síðast liðnu hausti 458 nýstúdentar. Þar af skráðust 10 í guðfræðideild, 80 í læknadeild, 5 í tannlækna- deild, 9 í lyfjafræði lyfsala, 34 í lögfræðideild, 47 í viðskiptadeild, 151 í heimspekideild, auk þess 19 erlendir stúdentar í þá sömu deild, 32 í verkfræðideild og 71 í verkfræðideild BA. Er greinilegt hve mikið aðdráttarafl hin nýja raun- vísindadeild hefur, en þar hefur stúdentum fjölgað meira en um helming frá því í fyrra. Stúdentastjarnan. Á síðasta ári var stofnuð Stúdentaakademía innan Stúdentafélags Háskólans og skyldi hún á ári hverju veita heiðurstákn fyrir frábær störf á sviði vísinda, lista eða bókmennta. Var heiðurs- tákni þessu valið nafnið Stúdentastjarnan og skyldi veitt íslendingi. Varð þetta í fyrsta sinn gert þann 1. desember í fyrra og hlaut prófess- or Þorbjörn Sigurgeirsson stjörnuna fyrir vís- indastörf sín. Inntökuskilyrði. Mikil blaðaskrif og þjark varð á síðasta sumri um inntökuskilyrði í læknadeild. Stóð rimman milli ráðamanna innan Háskólans og stúdenta en menntamálaráðherra skyldi hafa úrskurðarvald. Er ekki ástæða til að rifja upp þann málarekstur hér, en þau urðu lokin, að þann 20. okt. s.l. undirritaði forseti íslands reglugerðarbreytingu og segir þar svo um læknadeild: „Aðgang að læknisfræðinámi í læknadeild hafa þeir, sem lokið hafa stúdents- prófi frá íslenzkum menntaskóla eða öðru samsvarandi prófi. Deildin getur þó sett lág- markseinkunnir í stúdentsprófi, sem skilyrði fyrir inntöku. Réttur þeirra, er falla á fyrsta árs prófinu til áframhaldandi setu í deildinni skal ekki vera meiri en réttur nýstúdenta til inngöngu“. Takmarkanir voru því ekki settar að sinni. Fundir og ráðstefnur. Margir erlendir fræðimenn sóttu skólann heim á árinu og fluttu hér fyrirlestra. Einnig hefur verið haldið uppi margs konar öðru menningarlífi svo sem bókmennta- og list- kynningum. Þá var haldið norskt- íslenzkt réttarsöguseminar á Akureyri á vegum ORA- TORS, félags laganema, og viðskiptafræðistúd- entar héldu ráðstefnu, þar sem fjallað var um stöðu viðskiptafræðingsins í þjóðfélaginu. Hér að auki voru haldnar ýmsar samkomur og ferðir farnar, jafnt til lærdóms og andlegrar upp- lyftingar. Stúdcntakórinn. Stúdentakórinn lætur enn til sín heyra af fullum krafti. Kom hann meðal annars fram á Háskólahátíðinni. Þó hafa þær breytingar orðið á, að Jón Þórarinsson stjórnar kórnum ekki lengur og er það því missir. En maður kemur í manns stað og fyllir nú Atli Heimir Sveinsson skarðið. Stúdentaþing. Stúdentaþingið var haldið dagana 23. til 24. ágúst og voru þar að venju rædd ýmis hagsmuna og velferðarmál íslenzkra stúdenta. I tilkynningu STÚDENTABLAÐ 36
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.