Stúdentablaðið - 01.12.1969, Page 40
Frá
ORATOR,
félagi
laganema
1. Félagsmenn í Orator voru 193 á síð-
asta starfsári og vantar nokkuð á að
allir laganemar gangi í félagið.
Starfsemi félagsins var nokkuð um-
fangsmikil á árinu og til marks um það
má benda á, að útgjöld félagsins jukust
um rúm 100% eða úr 240 þúsund árið
1968 í 494 þúsund og er þá ótalinn út-
gáfukostnaður Úlfljóts, sem verður hátt
á þriðja hundrað þúsund.
II. Almennir félagsfundir voru haldnir
átta á árinu. Var þar rætt um margvísleg
efni á sviði lögfræði m.a. um almanna-
tryggingar, ábyrgðartryggingar, sveita-
félög, kjördæmaskipan, eignarnám o.fl.
Til þessara funda voru fengnir hinir
merkustu fræðimenn, svo sem prófessor
Gaukur Jörundsson, Guðjón Hansen
tryggingarfræðingur, Arnljótur Björns-
son héraðsdómslögmaður og Sigurður
Gizurarson cand. jur.
III. Þrjár málflutningsæfmgar voru
haldnar á árinu og var til þeirra vandað
að venju, leidd voru vitni og aðilar og
málsskjöl öll fjölrituð og þeim dreift til
laganema. 3. sjónvarpsþáttur félagsins
„Réttur er settur“ var fluttur 22. febrúar
s.l. og endursýndur í september. 4. sjón-
varpsþátturinn var síðan sýndur hinn 10.
september. Jafnframt var endursýndur
2. þátturinn og hafði félagið nokkrar
tekjur af þessum þáttum, en þó munu
þeir lang ódýrasta innlenda sjónvarps-
efni sem Sjónvarpið á völ á.
IV. Orator hélt tvö seminar á árinu,
var hið fyrra haldið dagana 9.-15. sept.
og fór að mestu leyti fram á Akureyri.
Til þessa seminars var boðið 15 norsk-
um laganemum og jafnstór hópur ís-
lenzkra laganema tók þátt í því. Voru
viðfangsefni seminarsins á sviði réttar-
sögu og fengnir hinir færustu fyrirles-
arar. Þeir próf. Magnús Már Lárusson
háskólarektor, próf. Ármann Snævarr,
próf. Þór Vilhjálmsson, próf. Torkel
Opsahl frá Osló og Sigurður Líndal
hæstaréttarritari. Tókst seminar þetta í
alla staði hið bezta. Erindi öll frábær,
umræður hinar fjörugustu og síðast en
ekki sízt sköpuðust ómetanleg kynni
milli hinna íslenzku og norsku þátttak-
enda.
Seinna seminarið var allt mun minna í
smíðum og eingöngu með íslenzkum
laganemum, en tókst eigi að síður mjög
vel. Fjallað var um efni á sviði skaða-
bótaréttar, sem bar heitið stefna Hæsta-
réttar í skaðabótamálum og almenna
skaðabótareglan.
Fyrirlesarar voru þeir próf. Magnús
Þ. Torfason, Gunnar M. Guðmundsson
hæstaréttarlögmaðurogArnljóturBjörns-
son héraðsdómslögmaður að ógleymdum
próf. Anders Vinding Kruse frá Kaup-
mannahöfn, sem flutti erindi um stefnu
Dana í þessum málum. Þátttaka var mjög
góð, en alls tóku milli 50 og 60 laganemar
þátt í seminari þessu.
V. Kynnisferðir voru nokkrar farnar á
árinu. Heimsóttu laganemar meðal ann-
ars sýslumann Borgfirðinga og Mýra-
manna Ásgeir Pétursson, einnig sóttum
við heim ísfirðinga í boði bæjarstjórnar
og bæjarfógeta Björgvins Bjarnasonar og
var á báðum stöðum tekið á móti okkur
af mikilli rausn og myndarskap.
Þá gekkst félagið fyrir kynnisferðum
fyrir laganema á 1. ári í Hæstarétt,
Borgardóm og nú síðast í Alþingi.
VI. Stúdentaskipti hafa aldrei verið
meiri en s.l. starfsár, auk 18 norskra
stúdenta, sem hingað koma á réttar-
söguseminar, svo sem áður getur komu
hingað fimm erlendir gestir á árshátíð
félagsins og dvöldu hér frá 5 og upp í 15
daga. Orator sendi 8 íslenzka laganema
utan til þátttöku í seminörum og ráð-
stefnum.
VII. Kennslumállagadeildarvorumjög
ofarlega á baugi s.l. ár. Þrír laganemar
sátu í nefnd um endurskoðun laganáms
ásamt prófessorum og er sú endurskoðun
komin langt á veg, þannig að vænta má
þess, að ný reglugerð fyrir lagadeild taki
gildi innan skamms og mun væntanlega
ná yfir þá, sem innritast næsta haust.
Helztu nýmæli í þeirri reglugerð verða
væntanlega þau, að áfanga prófum íjölg-
ar frá því sem nú er, þannig að unnt ætti
að vera að ljúka námi við deildina á 5
árum, þá verða þau nýmæli væntan-
lega tekin upp að teknar verða upp kjör-
greinar í nokkrum mæli.
VI11 Útgáfa Úlfljóts hefur gengið mjög
vel á árinu. Út eru komin 3 tölublöð og
það 4. væntanlegt innan skamms, alls
verður árgangurinn eitthvað á 5. hundrað
síður og hefur aldrei verið stærri. Þá á
var á árinu hafin útgáfa fréttabréfs Ora-
tors og kom það alls út 5 sinnum, þessi
útgáfa hefur gefist mjög vel og er þess að
vænta, að henni verði haldið áfram og
hún aukin á næstunni.
IX. Hátíðahöld Orators þann 16. febr.
voru með liku sniði og venjulega. Um
morguninn var bæjarþing Orators háð
að venju, eftir hádegi flutti Steingrímur
Gauti Kristjánsson flr. erindi um upp-
runa og sögu sveitarfélaga á íslandi, að
því loknu héldu laganemar til skrifstofu
Reykjavíkurborgar, að Skúlatúni 2 og
skoðuðu þar og hlýddu á erindi Geirs
Hallgrímssonar borgarstjóra um starfs-
háttu borgarstjórnar og þágu síðan veit-
ingar í risnuhúsnæði borgarinnar að
Höfða. Um kvöldið lauk svo hátíðinni
með hófi að Hótel Loftleiðum.
Hinn 7. nóv. s.l. var aðalfundur félags-
ins háður og var þar kjörin ný stjórn
fyrir félagið. Fráfarandi stjórn var skipuð
þessum laganemum: Form. Víglundur
Þorsteinsson, varaform. og ritstjóri Úlf-
ljóts, Páll Þórðarson, gjaldkcri, Stefán
Skarphéðinsson, ritari, Gunnlaugur
Claessen, og meðstjórnandi Sigrún Bald-
vinsdóttir. Nýkjörna stjórn skipa eftir-
taldir laganemar: Formaður, Már Gunn-
arsson, varaform. og ritstjóri Jón G.
Zoega, gjaldkeri, Stefán Pálsson, ritari
Gunnar Gunnarsson og meðstjórnandi
Margrét Björnsdóttir.
Víglundur Þorsteinsson.
Frá Félagi
guðfræðinema
Við í félagi guðfræðinema höfum það
ljómandi gott. Félagsmenn eru um 35
og þvi hægt um vik með alla félags-
starfsemi. Starfið s.l. vetur fólst einna
helzt í mánaðarlegum fundum. Gestir á
þeim fundum voru m.a. sr. Ingþór Ind-
riðason, er talaði um starf prestsins, og
sr. Lárus Halldórsson, er ræddi um starf
presta á sjúkrahúsum. En hæst reis starf-
semin í stórmannlegri deildarferð á Snæ-
fellsnes. Á leiðinni þræddum við prests-
setur, spurðum kennimenn í þaula um
starf og strit og nutum hvarvetna rausnar-
legra veitinga.
Það var á engan hátt að tilefnislausu,
að Snæfellsnesprófastsdæmi varð fyrir
valinu. Olli þar mestu nýútkomin bók
nóbels-skáldsins, Kristnihald undir jökli.
Máltækið segir, að glöggt sé gests augað,
og það trúi ég að Snæfellingar hafi sann-
reynt við komu okkar. Þótt ei við hefðum
skriflegt umboð biskups, spurðumst við
fyrir um messuhald giftingar og greftr-
anir, staðarúttektir og risnu og reyndist
allt þetta vera í prúðasta lagi og mættu
ýmis önnur byggðarlög lofa sig og hátt
prísa fyrir annað eins sóma kristnihald
og er undir jökli. í janúar brautskráðist
Guðmundur Óskar Ólafsson, candidat í
guðfræði. Hóf hann þegar starf af skör-
ungsskap sem farprestur þjóðkirkjunnar.
Svo kom vorið. Fíflarnir sunnan undir
Háskólanum teygðu gular krónur sínar
móti sólarljósinu, en úr guðfræðideild
útskrifaðist aðeins einn candidat, Einar
Sigurbjörnsson. Hefur hann nú útsirklað
sér brauð eins og það er orðað í Kristni-
haldinu. Er hann prestur á Ólafsfirði.
Fátt bar til tíðinda af deildinni þar til
líða tók á haust, en þá bættist henni nýr
starfskraftur dr. Björn Björnsson, er
skipaður var prófessor við deildina. 1
lok september brautskráðust tveir candi-
STÚDEIMTABLAÐ
40