Fálkinn - 21.12.1929, Blaðsíða 22
22
F Á L K I N N
Einar Jónsson er nieð algeng-
ustn nöfnum á íslandi. En þó er
einn Einar með þessu nafni, sem
hefir liafist svo hátt yfir fjöld-
ann — og út úr honurn, að
hægt er að setja nafnið án frek-
ari ummæla yfir grein, án þess
að eiga á hættu, að nokkurt
skvnjandi mannsbarn á íslandi
sje í vafa um við hvern sje átt.
Og er þetta því merkilegra, sem
Islendingar eiga ýmsa mæta
menn undir því nafni, og hafa
Einar Jónsson myndhöggvari
hefir aldrei verið stjórnmála-
maður, litgerðarmaður, stórbóndi
eða stórkaupmaður, en samt er
hann stór, eða rjettara sagt mik-
ill. Þó hjer færi á eftir einskon-
ar æfiminning Einars Jónssonar,
bóndasonarins frá Galtafelli, sem
fyrstur lærði að færa kynja-
myndir íslenskrar náttúru í
stein, mundi enginn vilja telja
hann feigan fyrir það, eða kom-
inn að fótum fram. Því Einar
Jónsson verður eflaust elstur
allra núlifandi manna, bæði
vöggubarna og hrumra — í minn-
ingunni. Hann verður ófeigastur
þeirra, sem nú draga andann í
íslensku lofti, — og munu þó
margir lifa æfir sínar fram yfir
gröfina.
Einar Jónsson er ekki ófeigast-
ur vegna þess, að hann yrki í
stein — enn steinninn þykir ó-
sjálfrátt haldbetra efni en bóka-
Einar Jónsson. — Bak við sjest á „Brautryðjandann“, sem er á fóistalli
likneskis Jóns Sigurðssonar.
Einar Jónsson i vinnustofunni.
pappír eða Ijereft olíuinálara. Og
svo þykir það tryggara um stein-
inn, að hann verði ekki fyrir
eldsvoða og að honum verði síð-
ur stolið til glötunar en sjald-
gæfu bókareintaki eða einstæðu
málverki. — Einar verður lang-
lífastur vegna þess, að hann hefir
varðveitt persónuvitund sína
gegn um þykt og þunt, og aldrei
vikið hársbreidd frá þeim vegi,
sem honum sjálfum var hugleik-
inn. Hann á e. t. v. á hættu, að
Hann á ef til vill á hættu, að
ýinsir skíri hann sjervitrings-
nafninu fyrir það, og eflaust
hafa ýmsir gert það. En vel er
það, að hann kaus heldur að bera
það uppnefni, en afsala bluta úr
sjálfum sjer, og láta dauðlega
menn gefa sjer annan í slaðinn.
Því Einar Jónsson er vissulega
best gerður, eins og hann er frá
„náttúrunnar hendi“ og væri
nokkur sá maður, sem vildi taka
að sjer ábyrgðina á að breyta
honum til batnaðar, ef hann gæti
það, þá væri gaman, að sjá fram-
an í hann.
Enginn listamaður gerir sjer
leik að því, að halda ti! streitu
stefnum og skoðunum ofan í
vilja lærifeðra þeii'ra, sem áttu
að þroska hann og gera að meiri
manni. Aðalkennari Einars Jóns-
sonar var mætur maður og mik-
ill, norski myndhöggvarinn Stef-
an Sinding, sem eflaust hefir gert
þau bestu listaverk i stein, sem
sköpuð hafa verið á siðasta
mannseldri. Og sjálfur telur Ein-
ar Jónsson hann mesta lista-
mann Skandinavíu, á síðasta
mannsaldri i sinni grein. En þrátt
fyrir viðurkenning lærisveinsins
á hæfileikum meistarans, gat eigi
svo farið, að lærisveinninn „gengi
I skóla“ hjá meistaranum. Hann
lærði af honum, — en hann af-
salaði sjer þeim hlunnindum, að
taka sjer fyrirmynd heimsfrægs
manns og ágæts listamanns. —
Hver er ráðningin á þessu?
Einar Jónsson afsalaði sjer
fyrirmyndinni, til þess að verða
sjálfstæður listamaður. Listhugs-
un hans hafði þróast við alt aðr-
ar aðstæður, en kennarans; hann
hafði á barnsaldri sjeð myndir,
sem engir aðrir sáu, uppi í klett-
unum hjá Galtafelli, og einstakl-
ingseðli hans var frábrugðið
fjöldans. Skoðun hans á list og
hlutverki listarinnar var svo ný,
að enginn vildi hlusta á hana.
Og hún var þessi: Listastefn-
ur og skólar í list eru ekki bind-
andi fyrir einstaklinginn. Hver
listamaður, sem vera skal, á sjálf-
ur rjettinn á, að ákveða, hverj-
ar aðferðir hann skuli hafa á
gerðum sínum, allar þessar svo-
kölluðu „listastefnur“, sem þjóð-
in gleypir í sig umsvifaláust,
er það versta eitur, sein listamað-
urinn sjálfur getur íengið í sín
bein, og hættulegast listinni
sjálfri. Hver er sinnar listar —
sinnar gæfu — smiður, jafnvel
þeir, sem svardaga vinna að því
báll'a orðtaki, að listin sje til
vegna listarinnar sjálfrar —■ orð-
taki, sem orðið er til vegna
hnignunar í þjóðlífinu. — Hver
gerist svo djarfur að ætla sjer að
segja fyrir uni, hvernig listin
eigi að vera til þess að hæfa al-
menningi best? Hinsvegar má
i