Fálkinn - 21.06.1930, Side 9
F A L K T N N
9
o ■•Mlii' O ■'Mhi’ O •'MIh’O •"I|imO',M||.- O
•***!*•■ O •'Mlii- O •*Mli>- O •‘Min' O •"lln' 0-"Ui>'0 ■•'Uu- O •"••«• O ••%»• O •"lU" O
Ríkiserfingjar Svía og Norðmanna.
o **M||.« O ■•nu- O •*%■• O •"lln* O ••Mht* O •"IIk O '••ttif 0'"tl*M o •"llii' o ■“H*
o •«l||f o •'MUi’ O •"IU«' 0‘"IU>- O •"Uim O •"llu'
Ólafur krónprins.
Gústaf Adolf krónprins.
1 tilefni af Alþingishátíðinni sækja fsland heim ríkiserfingjar
Norðmanna og Svía, sem opinberir gestir. Að því er heyrst hefir
ætlar Gúsiaf Adolf Svíakrónprins að ferðast til Geysis og Gullfoss
að Alþingishátíðinni lokinni, en Ólafnr Noregskrónprins mun hafa
hjer stutta viðdvöl. Iiemur hann hingað á beitiskipinu „Torden-
skjold“ en Svíakrónprins á herskipinu „Oscar 11.“ Meðan þeir
standa við á Þingvöllum er þeim ætlaður bústaður í nýja bænum
á preslsetrinu gamla.
Oscar Fredrik Vilhelm Olaf GustafAdolfer 48 ára gam-
all, elsti sonur Gustafs konungs V. og Victoriu drotningar, fæddur
í Stokkhólmi. Á unga aldri stundaði hann nám við háskólana í
Uppsölum og Kristianíu en síðan fjekk hann hermannamentun.
Hann á mörg áhugamál, hefir gaman af ferðalögum og er mjög
hneigður til fornfræði. Fyrri kona hans var Margaret dóttir her-
togans af Connought, giftust þau árið 1905 og eru börn þeirra
Gustaf Adolf hertogi af Vesturbotnum (sem vera má að komi hing-
að á hátíðina) f. 1906, Sigvarður hertogi af Upplandi f. 1907, Bertil
hertogi af Hallandi, f. 1912, Carl Johan Dalahertogi f. 1916 og
Ingrid f. 1910.
Ólafur krónprins Norðmanna er fæddur 2. júlí 1903, einka-
sonur norsku konungshjónanna, Hákonar VII. og Maud drotningar.
Fæddist hann í Appleton House í Englandi og hlaut nafnið Alex-
ander Edward Chrisiian Fredrik, en núverandi nafn sitt tók hann
er faðir hans var tekinn til Iconungs yfir Noregi 1905. Ólafur krón-
prins tók stúdentspróf 1921 en hefir síðan framast í hernum. Er
hann mikið eftirlætisgoð norsku þjóðarinnar enda annálaður fyr-
ir hispursleysi sitt og alúðlega framkomu. Það hefir líka orðið til
að auka á vinsældir hans, að hann er íþróttamaður ágætur, ekki
síst í þjóðariþrótt Norðmanna, sldðagöngum og skiðahlaupum og
hefir oft tekið þátt í hinum helstu sldðakappmótum í landinu. Þá
er hann siglingamaður ágætur. Ólafur krónprins kvæntist í fyrra
Mörtu Svíaprinsessu, dóttur Carls prins. Þau hjónin urðu nýlega
fyrir því mikla óhappi, að bústaður þeirra, stórbýlið Skaugum,
skamt frá Oslo, brann til kaldra kola og mislu þau ýmsa óbætan-
lega muni við brunann. Stórbýli þetta höfðu þau hjónin feiigið í
brúðargjöf hjá Wedell Jarlsberg, sendiherra- Norðmanna í París.
Iiryndrekinn „Oscar 11“; á honiim kemur Guslaf Adolf krónprins.
Beitiskipið „Tordenskjold“; sem flytur Ólaf krónprins til íslands.