Fálkinn


Fálkinn - 21.06.1930, Page 18

Fálkinn - 21.06.1930, Page 18
18 F A I. K I N N Elsta lmsið i Reijkjavik, sljórnarráðsliúsið, bygt á áranum 175!)—64. Á miðri myndinni sjest standmgnd Ingólfs Arnarsonar á Arnarlióli. skrifstofu sýslumanns. Ilinn var Jónas Hailgrímsson, skáldið, I>á orð- inn stúdent fyrir einu ári, en nú skrifari lijá landfógeta. Aðrir cm- embættismenn bjuggu ailir annars- staðar: Yfirdómararnir bjuggu liver á sinni bújörð: í Viðey (Magnús kon- ferensráð háyfirdómari), á Brekku á Álftanesi (ísleifur Einarsson) og á Gufunesi (Bjarni Thórarensen); hiskupinn (Steingrímur Jónsson) sat í Lauganesi, sóknarpresturinn (Gunn- lögur Oddsen) á Lamhastöðum, land- lœknir (Jón Thorsteinsen) og lyf- sali (Oddur Thorarensen) báðir í Nesi við Seltjörn. Það ræður því að líkum, að embættismannavaldsins hafi litt gætt í bænum í þá daga; en því meira kvað að kaupmannavald- inu, enda voru þeir taldir með höfð- ingjum höfuðstaðarins. En þar sem þeir fiestir og margir búðar])jónar voru danskir menn, embættismenn- irnir tveir sömuleiðis danskir, þá er síst að furða þótt danskan yrði ærið óberandi hjer í bæ á þeim árum og alt málfar manna dönskuskotið. Jafnvel á alislenskum heimilum var einatt töluð danska eða einskonar dansk-islensk málýska, sem stund- um hefir verið kölluð „Bálssanda- danska“. Verslanir munu hafa verið 12 hjer í bæ það ár, sem hjer ræðir um. Mest- ar þeirra voru Petræusar-verslunin, þá eign Pjeturs Jónssonar Petcrsens, Norðborgarverslunin, þá eign P. C. Knutzons og faktor þar Einar stúd. Jónsson föðurbróðir og síðan tengda faðir Jóns Sigurðssonar, Flensborg- arverslun, faktor |)ar Th. H. Thom- sen, Jakobæusverslunin eign Gisla Simonarsonar, faktor þar C. W. Ebbescn, Sivertsensverslun, eign þeirra feðga Bjarna riddara og Sig- urðar sonar hans Sivertsens. Hinar verslanirnar voru minni. Af iðnaðarmönnum var alls ekki fátt í Reykjavík á þeim tímum i lilut- falli við ibúatölu. Af trjesmiðum var fremstur Einar Helgason, bróðir Árna stiftprófasts, af járnsmiðum Guðbrandur Stefánsson. Skósmiðir voru tveir: Diðrik Hölter (sonur Lars Hölters bcykis, kona lians var Elin Egilsdóttir Sandholt) og Ilannes Erlendsson í Brúnsbæ, báðir hinir nýtustu menn. Múrari var einn: Jón Snorrason á Hellulandi. Beykir var einn: Pjetur Hansen, bróðir S'monar lcaupmanns, og hatlasmiðir tveir Sig- urður Þorleifsson, er bjó í Kristjáns- liúsi, og Einar Sæmundsson í Teits- bæ. Hafnsögumenn voru tveir, var annar þeirra Þórður Guðmundsson (borgara Bjarnasonar) faðir þeirra nafnkendu Borgarabræðra, Guð- mundar ó Hól, Jóns, Sigurðar, Pjet- urs og Þorkels, dugnaðarmaður og mikilsmetinn. Veitingarhús var að- eins eitf: Klúbburinn (þar sem nú er Hjálpræðisherinn), þar var þá mad- dama Ottesen húsum ráðandi. En gistihús var ckkert í hænum, enda gerðist þess I tt þörf meðan gesta- koman var ekki meiri en þá var. Bæjarbúar hýstu sjálfir aðkomumenn, og sveitamenn er til bæjarins komu á kauptíðinni gistu einatt i tjöldum sin- um á Austurvelli. Ekki mun bæjarbragurinn liafa verið nema rjett í meðallagi. Brenni- vinið var ödýrt i þó daga og mátti kaupa það í öllum sölubúðnm og jafn- vel staupa sig við sjálft búðarborðið, en það gerðu margir, cr þeir vildu fó sjer liressingu eða veita liana öðrum. í klúbbinn komu helst „betri borgar- ar“ iðnaðarmenn, kaupmenn og versl- unarmcnn. En af drykkjuskaparó- rcglunni, sem hjer voru ærið inikil brögð að, leiddi, að oft urðu áflog og ryskingar á götum úti og veitli því ekki af, að lögreglan væri í lagi. Hjer voru þá líka tveir lögregluþjónar: Magnús Jónsson í Birgiltuhúsi og L. M. Möller danskur maður. En á nótt- unni var löggæslan í höndum vakt- aranna. Ekki þótti mikið að þessum löggæslumönnum kveða. Möller var sá þeirra, sem cinna mest bar á, þó, kvað enn meira að konu lians „mad- dömu Möller“, sem var yfii^setukona bæjarins, skrafskjóða mikil, cn að ýmsu leyti skörungur. Möller bjö í yfirrjetlarhúsinu (prestaskólanum, sem seinna varð, ]iar sem nú er versl- un Ilar. Árnasonar). Og þar uppi á lofti i vesturenda var „svartholið", þar sem skotið var inn í bili ósjálf- bjarga fylliröftum eða óspektarmönn- um, stundum lika þjófum og öðrum, sem brollegir urðu við lögin, en í austurenda loftsins var leigulaus bú- staður stiftamlmannsskrifarans. Aðalatvinnuvegur almennings hjer í kaupstaðnum voru sjóróðrarnir. Voru mörg skip gerð út hjcr allar ver- tíðir, — opnir bátar vitanlega — því að þilskip til fiskiveiða þektust hjer ekki fyr en Geir Zoega kom til sög- unnar. en hann fæddist hjer í bæ (i Smiðjunni) einmitt það ár, sem hjer ræðir um. Barnaskóli var stofnaður hjer ein- mitt ó þessu ári, í Lóskurðarstofunni gömlu. Veitti lionum forstöðu Ólafur Einarsson Hjaltested (síðar prestur á Saurbæ á Hvalfjarðarströnd), gáfu- maður mikill, prúðmenni og valmenni einstakt. En æðri lærtlóm var engan hjer að fá; hann urðu menn að sækja suður á Álftanes. Þar var latínuskól- inn með sínum góðfrægu kennurum Sveinbirni Egilsen, Birni Gunnlögsen og Hallgr. Scheving. Alls yfir var bæjarlífið mjög fá- skrúðugt, að minsta kosti mundi Reykvíkingum, sem nú cru, þykja það svo. Um samkomulíf var alls ekki að ræða. Guðsþjónustusamkomurnar 1 kirkjunum á lielgum dögum voru ná- lega einu samkomurnar, sem hjer voru haldnar og voru þær vel sóttar. Skemlanir þektust ekki hjer aðrar cn einstöku sinnum dansleikir í Klúbbn- um og þeir aðallega fyrir „heldri borgara“ bæjarins. Allur almcnn- ingur kom þar hvergi nærri, cnda var cfnahagur manna alls yfir of ljelcguy til l)ess, að alþýðan gæti leyft sjer þess liáttar útsláttarsemi. Hýbýli alþýðunnar voru þá lika hin aumíegustu og allur aðbúnaður cftir því. Og viðurværi alþýðu var oftast af svo skornum skamti sem mögulegt var að komast af með. Þegar á alt cr litið, verður ckki annað sagt en að Reykvíkingar, sem nú eru, megi una vel við þá breyt- ingu, sem orðið hefir á hænum okkar næstliðin hundrað ór. Þeir hafa litla ástæðu til að lofa liðinn tima að |)ví er snertir ástæður og aðstæður bæj- arins, afkonm alls almennings og bæj- arlifið í lieild sihni, ])ótt ýmislegt megi því að sjálfsögðu lil foráttu finna eins og það er nú. Þroskasaga bæjarins á næstliðnum hundrað árum er i rauninni að mörgu leyti merkileg, þótt mest kveði að viðgangi hans sið- asta mannsaldurinn. En haldi bærinn ófram að vaxa og fríkka á næstu hundrað árum, er þó ckki með öllu óhugsandi, að þeim, sem hjer vcrða árið 2030, þyki „Reykjavík 1930“ fult cins kotbæjarleg og „Reykjavík 1830“ kemur oss fyrir sjónir, sem nú lifum hjer, cr vjer virðum hana fyrir okk- ur í ljósi þeirra heimilda, sem fyrir liendi eru. Dr. J. 11. (Mgndirnar hjcr á frcmri blaðsíð- unnni eru báðar frá árunum 1880— 1890, eftir að bæriiui var farinn að stœkka).

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.