Fálkinn


Fálkinn - 21.06.1930, Síða 43

Fálkinn - 21.06.1930, Síða 43
F A L K T N N 43 O ,a<lli>'0'',Uii' 0'"Un'•,1|h‘0,"Uh,0',,IIií’« í í „Jeg lækna alt“. 5aga eftir Dauíö Þorualdsson. © O •"lli.' O •"«»•• O O ..||||,' O O '•■Ui,' O o '>|||„' ..I||„. o 0'"I||,'"I||,'0',|I|^0',|II„'0'"II„'0'.,II„-0'.'I|I,'0','I||,‘0'"I|.,'0'"II|.'0 Þa?5 var í Nizza, sem jeg hitti hann. Jeg sat þá oft um vorið niður á Promenade des Anglais, þessariheims- frœgu gangstjett, sem liggur í breiðri skeifu, svo mörgum kílómetrum skift- ir meðfram liinum unaðslega Baie des Anges. Þegar.gotl var veður, þá var oft mannmargt þar um liádegisbilið. Það var tíska að menn kœrnu þangað um það leyti, og nytu sólskinsins. En það er mjer óskiljanlegt hvernig sól- argeislarnir fóru að brjótast i gegn- um loðkápurnar, sem margt af þessu skrautbúna fólki var í. Tískan leyfir ekki að menn fari í sumarfötin enn- þá. Eftir viku á „mannskapurinn“ að skifta um. Það hafa verið brennandi hitar undanfarna daga, svo að jeg spái að einhverjum verði orðið mál á því, t. d. þessari feitu konu með bláa refs- skinnið um hálsinn. Konan sú arna er búin að sitja í klukkutima á móti mjer. Hún hefir augun aftur og við og við tekur hún andköf eins og manneskja, sem komin or í sprcng af hlaupum. Blessuð konan! Slík staðfesta kem- ur við tárakirtlana í mjer. Jæja, vonum að hún uppskeri pund sitt að verðleikum og athugum dálít- ið liitt fólkið. Meiri liluti þcss cru cins konar far- fnglar, sem dvclja hjer á Cote d’Azur yfir veturinn og vorið. Til þessarar broshýru sveitar leita nienn alstað- ar frá af hnettinum. Þarna sje jeg rjóðan sænskan timb- urkaupmann. Hann situr þráðbeinn og lítur hvorki til liægri nje vinstri, eins og hann væri genginn úr háls- liðnum. Austan við mig vaggar á- fram lítill, meinleysislegur Kaup- mannahafnarbúi, og virðist vera ó- skön ánægður með sjálfan sig. f hæl- ana á þessUm kemur kolsvartur ná- ungi með gulltennur. Það er leiðinlegt að hann skuli ekki vera með kar- töflunef, þá hefði jeg getað haldið að liann væri keisari hjá Holtentottum. Vestan við mig síga áfram þrir feitir Þjóðverjar, með kollana snoð- klipta eins og galeiðuþrælar og vas- ana úttroðna af ferðabókum. Skyndi- lega bregður skuggga á andlit mjer jeg gýt augunum upp. Gríðar hár enskur kvenmaður er að fara fram- hjá. Hún er alvarleg eins og dóms- dagur væri kominn og stíf eins og • •.. siðfræðin. Eitt einkennir mikinn hluta þessa mannsöfnuðar, andlitssvipurinn. Hann er ólundarlegur, eins og allir væru nýbúnir að taka innn laxerolíu. út úr öllum þessum andlitum les jeg: „Ó, góðu, sjáið þjer ekki hvað mjer leiðist. En hvað alt er lítilfjörlegt. Og þó er jeg stórrikur og þarf ekkert að vinna“. Sá, sem kemst lengst 1 ólundinni, sá er talinn mestur af þessum ríku iðjuleysingjum, sem eiga ekki nema eina hugsjón, þá að deyja ekki úr leiðindum. Allir heilsa honum, allir reyna að ná kunningsskap hans, þvi að hann er hinn fullkömni lieims- maður. Hvað gerir þetta fólk þessa tvo jhna, sem setið er þarna frá 11 til 1, hvi að tiskan bannar öllum, sem ckki eru alveg búnir að glata virðingunni ‘V'ir sjálfum sjer að vera þar mín- lllu lengur. Sumir — cinkum mann- eskjur, sem komnar eru yfir fimtugt ~~ lesa geyspandi dagblöðin, aðrir og þeir eru flestir, liorfa eins og strang- lr dómarar á þá, sem í kring cru og reyna að finna einhverja misfellu í klæðaburði þeirra eða framkomu. Vei þeim þá, sem ber grænt liáls- bindi, þegar það á að vera blátt, eða þeirri stúlku, sem er svo óhamingju- söm að hafa kjólin sinn sentimeter of siðan.. Vei þeim, segi jeg aftur. Ef til vill rignir ekki yfir þau eldi og brennisteini eins borgirnar i gamla testamentinu, en það, sem kemur-fyr- ir þau er varla betra: Á einni svip- stundu eru þau vegin og ljettvæg fundin. Enginn lítur við þeim. Jeg heyri að þú segir lesari góður: „Þessi saga þykir mjer leiðinleg. Þú byrjar með einhvern hann ,sem síðan bólar eklcert á. f stað þess kemur þú með bláa refi og Hottentotta. Hvern fjandann varðar mig um bláa refi? Þetta eru svik, karl minn. Ilrein og bein svik, skaltu vita. Hvar er hann þessi hann? Láttu hann koma, þó að seint sje. Betri er hálfur skaði en allur“. Vertu rólegur lesari góður, vertu rólegur. Þolinmæðin er uppliaf visk- unnar hefir spakur maður sagt. Nú kemur liann, náunginn. Hann var lika orðinn liálf illur yfir því að þurfa oð bíða svona lengi. Nú kemur hann eins og skrattinn úr sauðarlegg. Nei, þú þarft ckki að láta þjer verða svo felmt við að þú dettir aftur á bak, þó að hann komi. Hann fellir eng- an um koll. Hann gengur hægt, ofur- liægt. Líttu á hvcrnig hann mjakast fram hjá þessu glæsilega búna fóllci. Littu á þetla ellihruma andlit með rauðu augunum á hvítu litlu barns- hcndurnar, á tærnar, sem standa út úr skónum. Þcir segja að hann sje rússneskur flóttamaður. Jeg sje líka að sumir kinka kunnuglcga kolli til hans. Það er líklega landar hans, sein hafa ver- io svo hamingjusamir að koma ein- liverju tindan áður en byltingin hófst. Hann hefir mist alt. Nú gengur hann eins og vofa í sólskininu hjcrna. Mig grunar hvers vegna hann kemur svo oft á þennan stað innan um þennan auð og þetta skraut. Hann gleyinir þá, í þessu umhverfi, sem hann þekk- ir svo vel frá fyrri dögum, basli líð- andi stunda. Hann verður aftur dá- litla stund voldugi maðurinn, .sem hann var eystra fyrruin. Jcg sje það i rólegu, fcstulegu augnaráðinu og i virðulegu hneiging- unum, þegar hann hcilsar einhverj- um. í huganum er hann orðinn cinn af þeim, scm þarna eru. Stundum gefur hann jafnvel sunnun ungu stúlkunum, scm þarna eru liýrt auga. En þegar hann er kominn út úr mannþrönginni, þá hverfa töfrarnir. Hann verður aftur álútur og ellileg- ur. Og ltann lieldur áfram eitthvað út i bttskann, þegar jeg horfi á eftir honum þá minnist jeg litalausrar vax- brúðu, sem jeg hafði sje í búðar- glugga .. Hvar skyldi hann sofa? Einn morgun i glaða sólskini stóð jcg á stjettinni fyrir framan Negresco- hótelið og var að horfa á tvo kapp- siglingarbáta fram á flóanum. Þá sagði einhver i lágum hljóðum bak við mig: „Herra, má jeg tala við yðtir fá- ein orð?“ Jeg sneri mjer við og sá rússneska flóttamanninn með barnshendurnar. „Herra“, cndurtók hann og hneigði sig, „leyfið mjer að segja yður nafn mitt. Jeg heiti Michowitz fyrverandi dómari við hæstarjettinn í Pjeturs- borg. .. Eyrirgefið að jeg er dálítið liirðuleysislega klæddur". Hann brosti. „Ef þjcr hcfðuð heim- sótt mig i Rússlandi, þá hefðuð þjer sjeð mig öðruvísi til fara“. Hann strauk hendinni um liökuna. „Jeg má muna tvenna tíma. Jæja, jeg kem ekki til þess að tala um for- tíð mina við yður. Enda liggur hún yður líklega í ljettu rúmi. Nei“, sagði liann og hann fálmaði með liöndunum utan í mig, „nei, jeg kem til þess að gera yður greiða“, • „Greiða!“ át jeg eftir lionum stein- hissa. „Já, vissulega11, sagði hann og það ýskraði í honum ánægjan yfir því að sjá mig svo forviða. „Sko“, sagði liann og hann lækkaði i'öddina, „það er mikið leyndarmál, sem jeg ætla að trúa yður fyrir. I.eyndarmál, sem getur gert mig stór- ríkan á stuttum tíma. Þess vegna segi jeg ekki öðrum frá því en þeim, sem jeg sje að hægt er að treysta. Og jeg er viss um að þjer eruð einn af þeim“, og hann klappaði mjer á öxlina. „Og leyndarmálið?“ „Já nú kem jeg að því. Á svo mikil- vægu máli er ekki liægt að byrja án ofurlitils formála. Það munuð þjer fljóilega sjá. Svo er nefnilega mál með vexti að jeg jeg fæst við lækningar“. Ilann liló upp með sjer. „Ekki eins og þessir læknar, sem láta menn taka inn dýrar meðala- Llöndur, sem aldrei gera gagn. „Nei“, sagði hann og hann barði takt með visifingrinum eins og til að leggja mciri áherslu á orðin. „Nei, meðulin mín verka undir eins. Jcg lækna vit- skcrta, berklaveika og máttlausa eins leikandi og að drekka vatn úr bolla, því að jeg þekki mesta leyndarmál þessárar aldar“. Hann varð afarhátíðlegur á svip- inn. „Jeg þekki náttúru jurtanna og veit við hvaða sjúkdómi þær eiga. Sko, á jeg að segja þjcr citt dæmi. Jeg var á ferð austur i Pyreneafjöll- um og gisti eina nótt þar á bónda- bæ. Um kvöldið lieyri jeg einhvers- slaðar óp og liávaða. Jeg segi þá si svona við bónda. Ilvaða læti cru þetta, góði minn? Hann svarar mjer stuttur i spuna að tveir synir hans sjeu brjálaðir. „Og hvað er þetta“, segi jeg stein- hlessa, „lætur þú ekki lækna þá?“ „Jeg hefi farið með þá til Parísar og bestu læknar geta ekki læknað þá“. Þjer heyrið að liann sagði Paris. Jæja, jeg legg handleggina fram á borðið, depla augunum framan i liann og segi ósköp rólega: „Hvað segir þú við því að jeg lækni drengina þína, bóndi góður?“ Hann leit kuldalega á mig og sagði: „Þú ert fullur eða vitlaus sjálfur“. „Tölum ekki um það, bóndi góð- ur, tölum ekki um það“, segi jeg, „nú ætla jcg að skreppa út og þegar jeg kem inn aftur skaltu liafatilheittvatn. Jeg fór út og týndi þær plöntur, sem við áttu. Svo fór jeg inn og var alla nóttina að sjóða þær. Um morguninn bað jeg bónda að leiða drengina inn til min. Þeir gerðu ekki annað en gelta, þegar jieir sáu mig. Jæja, við komum blönduuni of- an i þá. Segir ekki af því, en um há- degi voru þeir orðnir nákvæmlega eins og jeg — skynsamir menn. Þessir blessaðir hnokkar urðu mjer samferða á járnbrautinni hiijgað út á ströndina. Jeg sagði öllum í klcfanum frá því hvernig jeg licfði læknað þá, og stúfarnir sögðu já við hverju orði. Ein kona sem var þarna kysti mig grátandi og kallaði mig velgjörðar- mann mannkynsins og maður, sem sat við hliðina á mjer ljcl mig drekka hcila flösku af víni frá Lunel og borða eins mikið af sre.urðu brauði og jeg vildi. Jeg vildi að hamingjan ljcti fleiri daga vera slika“. Rússinn hætti lafmöður og bað- aði út höndunum. Jeg sá að menn sem gengu fram lijá voru farnir *að greiklca sporið. Þegar jeg leit upp i loftið, sá jeg að hann var kominn með blágrá regnský og liklegur til að skella á á hvaða auguablik', sem var. Jeg tók fimm franka seðil upp úr vasa mjer og stakk að flótiamannin- um. Svo liljóp jeg undan fyrslti rign- ingardropunum til kaffihúss þar rjett lijá. Jeg settist framarlega og leit út. Hellirigning dundi á gluggaiuun.Hann gekk hægt fram hjá á götunni, rúss- neski maðurinn. Jeg horfði á órækt- arlegt, rauðleitt skeggið. n varirnar, sem hreyfðust, á hendurnar, sem hann lyfti upp með reglubundnu millibili eins og sprellikarl þegar kipt er í.snúru, og það var sem jeg lieyrði hann tauta: „Jeg get læknað alt, alf'. Svo hvarf hann upp hliðargötu. Hvað segir þú lesari góður“? „Sagan“ er sorgleg eins og mig grunaði í upphafi, en annars ekki af- leit“. „Nú likar mjer að heyra til þin. Skál!“ „Ja, en þó skil jeg ekki ennþá hversvegna þú ert að koma með sænskan timburkaupmann og mann með græna slaufu ... “ Æ! Verlu ekki með ólund góði!“ Karl-rjetUnda-fjelag. ---X---- Fyrir nokkru siðan var stofnað fje- lag í Vínarborg í þeim tilgangi að halda fram rjettindum karlmann- anna gegn kvenþjóðinni, einskonar karlrjettindafjelag sem sagt. Það kall- ast á Þýsku: „Wcltbund fiir Mánner- rechte“ og mun verða komið á al- þjóðafundi innan skamms, þar sem rædd verða ýms mikilsvarðandi mál, scm karlmönnunum lcoma við. Maður sá, sem gengur í broddi fylkingar heilir Sigurd Höberlh von Schcvartzlhal og hann kvað hafa fcngið þessa hugmynd vjð að honum alsaklausum, eftir þyi, sem hann scg- ir sjálfur, var kendur krakki. Rjett- urinn neitaði að taka tillit til blóð- rannsóknarinnar, sem reyndist hon- um liagstæð. Álitur Schwartzthal að blóðrannsóknir eigi jafnan að skera úr um vafatriði af þessu tagi. ---x—— Tvent hefir einkum verið sagt um Chicago undanfarna inánuði: að borg- in væri að verða gjaldþrota og að liún væri mesta glæpamannaborg heims- ins. Þessu mótmæla Chicagobúar flestir sjálfir, og telja þessar fregnir fram komnar til þess, að spilla fyrir lieimssýningunni, sem þar verður haldin 1933. Segja jieir að fasleignir i borginni sjeu i minsta lagi 10 þús- und miljón dollara virði, en það að borgin h'afi verið i fjárjn'öng i vetur stafi af þvi, að skattalöggjöf borgar- innar hafi verið að breytast undan- farið, svo að ekki hafi verið hægt að innheimta útsvör í tvö ár. Skuldir bæjarins eru 95 dollarar á bæjarbúa, en skuldir New York 202 dollarar. Um glæpina er mikið talað, segja Chicagobúar og allur heimurinn þekk- ir nöfn glæpakonunganna A1 Capone og Tim Murpliy, en liinu gleyma menn að Chicago er mesta lista- og visinda- borg Ameríku og á fullkomnustu söfn, hljómsveitir og mynd- og málaralistar menn allrar þjóðarinnar. ---x---- Spánska sljórnin hefir á prjónun- um að taka ríkiseinkasölu á bifreið- uin, en jietta hefir mætt mikilli mót- spyrnu. Áður hafði stjórnin reynt að fá útlendar bifreiðasmiðjur til þess að reisa versmiðjur á Spáni, en það mistókst líka.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.