Fálkinn


Fálkinn - 21.06.1930, Síða 54

Fálkinn - 21.06.1930, Síða 54
54 F A L K I N N Haraldur j Vorið 1909 stofnaði Gíslason & Hay verslun, sem „Dagsbrún“ nefndist, neðarlega á Hverfisgötu, þar sem nú er liús M. Magnús læknis. Forstöðu þessarar versl- unar hafði Haraldur Árnason, sem þá var rúmlega tvítugur og var nýkominn heim frá Englandi eftir þriggja ára dvöl við versl- unarnám, og hafði hann gert rekstur vefnaðarvöru og fatnað- arverslana að sjergrein sinni. „Dagsbrún“ bar þess merki, að kunnáttumaður sat þar við stýr- ið, þarna var smekklegra vöru- val en menn liöfðu vanist áður og þótti húðin bæjarprýði. Stóð verslun þessi nokkur ár. Hinn 1. jan. 1912 rjeðist Har- aldur verslunarstjóri til Th. Thor- steinsson, sem þá rak tvær versl- anir, aðra í Hafnarstræti þar sem nú er vinverslunin og liina í sömu götu, þar sem nú er verslunin París. Veitti hann þessum versl- unum forstöðu og á þeim árum voru þær fluttar báðar á sama staðinn í stórhýsið, sem stóð þar sem nú er bygging Jóns Þorláks- sonar. Fluttust verslanirnarþang- að 1914, en 25. apríl 1915 brann húsið til kaldra kola og alt sem í því var. Eigi að siður tókst að opna verslunina eftur hálf- um mánuði síðar, 6. maí í húsi Gunnars Þorbjarnarsonar í Hafn- arstræti, sama staðnum, sem önn- ur deildin liafði verið áður, og má ætla að þar hafi verið skjót handtök: að koma versluninni á á fót svo bráðlega aftur. Har- aldur vildi þó ekki una við þetta húsnæði og varð það úr að honum tókst að fá prestaskól- ann gamla leigðan til fimm ára og flutti hann verslunina þangað, eftir að gagngerð breyting hafði farið fram á húsinu, þ. 1. septem- ber 1915. Um sama leyti keypti hann verslunina og hefir síðan rekið hana undir sínu nafni. Tveimur árum eftir að Har- aldur byrjaði að reka verslunina í prestaskólanum keypti hann húseignina með tilheyrandi lóð fyrir kr. 45000 og þótti það geypi- verð í þá daga og löttu ýmsir Harald að ráðast í þetta. Nú mundu engir letja hins sama. Tveimur árum síðar seldi liann Nýja Bíó baklóðina til þess að reisa þar samkomuhús það sem nú stendur þar, en hinsvegar keypti Haraldur fyrir tveim ár- um húseign dánarbús Sigf. Ey- mundssonar, svo að hann á alt liornið milh Lækjargötu og Aust- urstrætis. Er það mikil lóð og mælir nálægt 75 metrum með- fram götu. Er þar kjörinn stað- ur fyrir stórhýsi, er stundir líða og má telja þetta horn með þeim allra bestu, ef ekki það besta í borginni. Verslun Haraldar náði þegar miklum vinsældum. í fyrstu voru menn ekki vanir, að gera miklar kröfur til vörugæða þess sem keypt var og má nefna sem dæmi, að 6 liattar, sem Haraldur keypti er hann rak „Dagsbrún“ og kost- uðu 5 krónur og 90 aura lágu flestir óseldir lengi, vegna þess að þeir þóttu alt of dýrir, og varð að selja suma þeirra með niður- settu verði. Nú þykir mörgum hæfilegt að kaupa ekki ódýrari hatt en sem svarar þessu verði fimmföldu. Karlmannaslifsi kost- uðu þá sjaldan meira en rúma krónu, en nú selst mikið af slifs- um fyrir 5—12 krónur. Benda þessar tölur á, live kröfurnar til vandaðrar vöru hafa vaxið á síð- ustu 20 árum. Árið 1918 Ijet Haraldur gagn- gerða breyting fara fram á hús- inu, þá var m. a. kvisturinn sett- ur á það og skemman innrjettuð til vörusýningar. 1921 var húsinu enn breytt og það aukið og 1926 var loks bygð hin tvíljTta vest- urálma og húsið þá um leið end- urbætt mikið og komið þar fyrir „Kassa“-miðstöð þeirri, sem ann- ast flutning peninga og kvittana milli afgreiðslumanns og gjald- kera. Er hægt að senda peningana til gjaldkerans frá 10 stöðum í húsinu og fá þær aftur að vörmu r Arnason. spori. Er þetta eina búsið hjer á landi, sem hefir þetta fyrirkomu- lag, kent við Lamson. Loftþrýst- ingurinn knýr peningabaukana áfram í gegnum pípuleiðslurnar, en sömu loftdæluna má nota til þess að sjúga alt ryk "burt úr búsinu. Verslun Haraldar hefir lengi verið viðbrugðið fyrir það, bve vöruval er þar milcið og vandað og þá eigi síður fyrir hitt, hve snjTtilega er um alt gengið. Lýs- ir alt sem auganu mætir í búð- unum því, að það sje gert af bæði smekk og kunnáttu, enda liefir Haraldur líka ekkert til sparað að standa öllum framar í þessu tilliti. Þegar Haraldur byrjaði verslun sína hafði hann tvær stúlkur og einn pilt í þjónustu sinni, en nú vinna 32 manns við verslunina og bann sjálfur sá 33. Geta má þess í því sambandi, að frægt er orðið hversu góður hús- bóndi Haraldur er, því varla mun þess dæmi, að stúlkur fari frá honum nema — til þess að gifta sig! Frá upphafi hefir Haraldur rekið bæði kvenna- og karl- mannafatnaðardeild. En ýmis- legt annað má telja, sem eru stór- ir liðir í v.erslunarrekstrinum, t. d. ferðaáhöld ýmiskonar, eink- um til sumarferðalaga, íþrótla- áhöld, skátabúninga og íþrótta- búninga, gólfdúka og gólfteppi, rúmfatnað og rúm og því um líkt. Þess má geta að Haraldur varð fyrstur allra til þess að flytja saumaða kvenkjóla til landsins. Sölu prjónavjela liefir verslunin haft svo mikla, að nærri lætur, að liann hafi selt rúmlega eina vjel á hvert hundrað landsbúa. Og jafnframt hefir bann haldið ár- lega í nokkur ár prjónanámskeið til þess að kenna fólki meðferð vjelanna og ýmsar tegundir prjóns. Hafa þessi námskeið ekki aðeins verið lialdin í Reykjavík heldur líka víðsvegar um land. Hefir verslunin á þennan hátt stuðlað afar mikið að aukinni prjónafatnaðarframleiðslu í land- inu. Geta má um eina vörutegund, sem Haraldur flutti hingað inn fyrstur manna og virðist ætla að ná afar miklum vinsældum hjer. Það eru gólfdúkar úr togleðri, Leylandsdúkar svonefndir, frá ensku firma með því nafni. Ilafa þeir verið settir í flest stórhýsi, sem bygð bafa verið á síðustu ár- um hjer í Reykjavik og enda víð- ar. Má nefna af þeim húsum Gamla Bíó, verslunarhús Mar- teins Einarssonar & Co., L. G. Lúðvígsson, Landsspítalann, Nýja Barnaskólann, Vifilstaðahæli, Nýja Klepp, Pósthúsið, Edinborg og fleiri. Gamli prestaskólinn er orðinn óþekkjanlegur frá því sem áður var. Húsið sjálft er bygt árið 1802 og er, ásamt húsinu í Aðal- stræti 16„ elsta timburhúsið i bænum, en það bús er bygt sama ár. Þó munu aðalviðir vera þeir sömu og áður var í sjálfu gamla húsinu, en alt annað er orðið nýlt. Vörur sínar kaupir verslunin í þeim löndum, sem hagkvæmasta og f jölbreyttasta framleiðslu hafa, hvert í sinni grein, og er að því leyti alþjóðleg. Mest af vör- magninu kemur frá Englandi og um eitt skeið var um % hlutar af öllum vörum verslunarinnar enskt, en nú er það orðið minna. Næstur kemur innflutningurinn frá Þýskalandi, Frakklandi, ítal- íu, Austurríki, Hollandi, Sviss, Tjekkóslóvakíu og Ameríku, en frá Norðurlöndum er hann til- lölulega lítill. Verslun Ilaraldar Árnasonar er íslenskri kaupmannastjett til liins mesta sóma og stendur alls eklci að baki erlendum verslun- um sömu tegundar, þó vitanlega sje stærðin rninni en á vöruhús- um stórborganna. Almenningur hefir fundið, að verslunin liafði jafnan smekklegar og vandaðar vörur að bjóða, og ótrúlega milc- ið úrval er jafnan til „Hjá Har- aldi —-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.