Fálkinn - 21.06.1930, Blaðsíða 60
60
F Á L K I N N
V ÖRUHÚSIÐ.
Hinn 11. apríl 1911 kom út-
lendur maður hingað til höfuð-
staðarins, öllum ókunnur. Hann
leigði sjer húsnæði í „Herdísar
Vöruhúsið i dag.
Benediktsen-húsi“ svokölluðu,
sem stóð við Austurstræti, næst
fyrir austan ísafoldarprent-
smiðju, og tók þegar að versla
með allskonar prjónavörur aðal-
lega. Verslunina nefndi hann
Vöruhúsið, en maðurinn lijet J.
L. Jensen Bjerg og var danskur,
ættaður frá Bording á Jótlandi.
. Almenningur lærði brátt að
rata í þessa verslu þó hún væri
ekki stór, hvað húsakynni snerti.
Því liúsið var lítið, og aðeins ann-
ar endi þess á stofuhæð notaður
fyrir búð. En fólk þóttist brátt
fá þá reynslu, að á þessum stað
fengi það meiri vörur og vöru-
gæði fvrir peninga sína en víðast
annarsstaðar. Nafnið, sem Jensen
Bjerg liafði vahð verslun sinni
var einfalt og festist fljótt í
munni og minni og orðtakið, sem
þessi nýi kaupmaður tók sjer:
„Hjer er engum lánað, en hjer er
selt ódýrt“ reyndist svo, að íslend-
ingar, sem þó höfðu átt skulda-
verslun að venjast kynslóð fram
af kynslóð, fyrrum, sýndu það
með viðtökum þeim, sem versl-
unin fjekk þegar í byrjun, að
þorri almennings vill heldur
kaupa ódýrt en fá lánað.
Því að Vöruhúsið fór brátt
stækkandi. Húsakynnin í gamla
húsiriu urðu hrátt lítil, — versl-
unin sprengdi þau utan af sjer.
Það var eftirspurn eftir fleiru en
prjónlesi í þessari nýju búð og
varð því að færa út kvíarnar. Tók
því Jensen Bjerg á leigu þann
hluta stofuhæðarinnar á Hotel
fslands, sem nú ullarvörudeild
Vöruhússins er í, og bætti jafn-
framt við sig nýjum vöruflokk-
um, fyrst tilbúnum karlmanna-
fatnaði og allskonar klæðavörum
fyrir karlmenn. Flutti liannversl-
un sína i þau húsalcynni árið
1913, en liús það, sem hann hafði
byrjað í verslun sína brann
skömmu síðar, í Reykjavíkur-
brunanum mikla i febrúar 1915,
þegar stærstu hús Reykjavíkur
brunnu til kaldra kola á einni
nóttu, svo sem Hótel Reykja-
vík, Landsbankinn og verslunar-
liús Ásgeirs Sigurðssonar og
Gunnars Gunnarssonar ásamt
versluninni Godthaab, en Ingólfs-
livoll skemdist mikið. Er það
J. L. Jensen Bjerg.
mesti bruni, sem saga Reykjavík-
ur hermir frá.
Enn varð of þröngt um Vöru-
húsið í þeim liúsakynnum, sem
það hafði fengið 1918 og þess-
vegna keypti Jensen Bjerg alla
hina xniklu húseign er færi
bauðst, árið 1918. Þegar á næsta
ári tók hann til notkunar alt það
húsnæði á neðstu hæð, sem það
hefir nú, með því að vörutegund-
um sem verslunin liafði á hoð-
stólum hafði fjölgað og fyrver-
andi húsnæði var orðið of lítið.
Við deildir þær sem fyrir voru,
og þegar eru nefndar, var bætt
m. a. deild fyrir rúmfatnað allan,
gólfdúka og gólfteppadeild, álna-
vörudeild og sjerdeild fyrir út-
búnað til ferðalaga, bæði ferða-
fatnað og áhöld ýms. Aulc þess
hefir verslunin haft á boðstólum
smávörur allskonar og alt annað,
sem lcvenfólk þarf til handa-
vinnu sinnar, svo sem efni til
prjónavöru, heklunar og annara
hannyrða. í stuttu máli hefir
Vöruliúsið flest það á boðstólum,
sem utan á likamann verður lát-
ið, en ekkert af því, sem í liann
er látið.
Þess eru fá dæmi, að verslun
í Reykjavík hafi svo skjótt náð
almennum vinsældum fólks, sem
Vöruhúsið gerði. Það var vanda-
verk fyrir útlendan mann að
að korna fótum undir verslun
einmitt á þeim árum, sem fslend-
ingar voru sjálfir sem óðast að
efla innlenda verslunarstjett, en
að þetta tókst svo vel sem raun
varð á um Jensen Bjerg, er að
þakka persónulegum eiginleikum
mannsins sjálfs. Hann bygði
starfsemi sína á því aðal boðorði,
að millihðurinn milh framleið-
anda og notanda vörunnar ætti
að geta verið sem ódýrastur
á verki sínu, og á þann hátt
geta boðið góða vöru fyrir lágt
verð. Honum fanst það ósvífni
við heiðvirða kaupendur, að reka
vcrslun á þeim grundvelli, að
skilvísir kaupendur greiddu fje
fyrir óskilvísi annara. — En bak
við þessar grundvallarreglur stóð
maður, sem samlagaðist fljótt fs-
lendingum og átti margt skylt
með þeim. Jensen Bjerg varð
vinsæll maður af öllum þeim,
sem höfðu viðkynning af honum.
Vöruhúsið árið 1911.
Þó að Jensen Bjerg hefði ærið
umsvifamiklu starfi að gegna,
sem forstöðumaður Vöruhússins
vanst honmn þó tími til ýmislegs
annars. Má þar fyrst og fremst
nefna rekstur gistihússins Hotel
ísland. Tók hann sjálfur að sjer
rekstur þess uixdir eins og út-
runninn var leigumáli þess gest-
gjafa, sem liafði gistihúsið á leigu
þegar Jensen Bjerg keypti. Ljet
hann sjer mjög hugarhaldið um,
að liafa rekstur þess í sem bestu
lagi og ljet m. a. endurbæta öll
gestaherbergin, og endurbæta
veitingaskálana. En eftir fráfall
lians keypti A. Rosenberg gest-
gjafi húseignina og rekur gisti-
liúsið síðan en Vöruliúsið ræður
yfir sama plássi og það þafði
áður.
Jensen Bjerg veiktist skyndi-
lega í byrjun desemher 1927 og
dó 11. desember 1927, aðeins 47
ára gamall, fæddur 13. nóvbr.
1880. Tók þá við stjórn verslun-
arinnar Árni Árnason, sem verið
liafði fulltrúi Vöruhússins frá því
í byrjuix ársins 1921, og veitir
hann versluninni forstöðu nú, en
eigandinn er frú M. Jensen Bjerg,
ekkja stofnandans.
Vöruhúsið er ein af stærstu
verslunum landsins i sinni grein
og er þó ekki nema rúmlega
nítján ára gömul. Er þó sam-
lcepnin mikil einmitt í þeirri
grein verslunar. En innflutning-
ur klæðavöru hefir aukist stór-
lega á siðustu áratugum, með því
að nú liefir að mestu leyti lagst
niður innlend framleiðslaáprjón-
lési og öðrum fatnaði.
Framan af árunum voru erlend
viðskiftasambönd Vöruhússins
einkum í Danmörku. En á síðari
árum hafa þau færst mikið til
Englands og Þýskalands og þaðan
kemur nú þorrinn af þeim vörum
er það selur. Geta má þess, að
Vöruhúsið hefir sölu á vörum
danska verslunarhússins fræga
Magasin du Nord í Kaupxnanna-
höfn, sem liefir fjölda útbúa á
Norðurlöndum.
Vöruhúsið mun fraxnvegis
fylgja þvi kjörorði sínu, að selja
vandaðar vörur með lægsta verði
og má eflaust vænta hins sama
trausts almennings á komandi ár-
um eins og lringað til.