Fálkinn - 21.06.1930, Blaðsíða 61
F Á L K I N N
61
H.f. Kol & Salt.
Hin stórvaxandi útgerð síðari
ára hefir gert byltingu í ýmsum
dálkum verslunarskýrslnanna.
Sem dæmi má nefna, að á árun-
um 1921—25 óx innflutningur
kola úr 40 þúsund upp i 150 þús-
und smálestir og salts úr 32 upp
í 81 þúsund smálestir. En þetta
eru stærstu innflutningsliðirnir,
sem varða rekstur fiski-eimskipa.
Á fyrri árum togaraútvegsins
liöfðu flestir útgerðarmenn
keypt kol sín og salt hver fyrir
sig hjá ýmsum firmum erlendis.
Ýmsum var Ijóst, að líklegt væri
að hægt væri að ná stórum betri
kjörum um kaup á þessum vör-
um, ef útgerðarmennirnir sam-
einuðu sig um kaup á þeim og
stofnuðu fjelag til þess. Urðu
þeir Jes Zimsen, Hjalti Jónsson,
Halldór Þorsteinsson, Þorsteinn
Þorsteinsson og Guðm. lieitinn
Olsen til þess, að boða nokkra
útgerðarmenn til fundar um
þetta mál og varð það ofan á,
að fjelag var stofnað til þess að
reka verslun með ofangreindar
vörutegundir, í sama mánuði.
Var það hlutafjelag, og bygð-
ist á þeirri aðalreglu, að útgerð-
arfjelög þau, sem að því stóðu,
skyldu leggja fram hlutafjeð að
tiltölu við skipastól sinn. Stofn-
endur urðu, auk framangreindra
manna: G. Copland, Th. Thor-
steinsson, Magnús Magnússon,
Pjetur Jónsson, Chr. Zimsen, Sig-
hvatur Bjarnason, Jón Ólafsson
og Eggert Claessenl Hlutafjeð
varð þá kr. 176.00.00.
Fyrstu stjórn fjelagsins skip-
uðu þeir Hjalti Jónsson, Guðm.
Olsen og Geo Copland og varð
Hjalti formaður hennar og
gegndi því starfi til 1924. Guðm.
Olsen gekk úr stjórninni 1917 og
tók þá sæti þar Jón Ólafsson. 1
stjórninni hafa setið m. a. Th.
Thorsteinsson, Christen Zimsen,
sem var formaður hennar 1924—
28, Þorsteinn Þorsteinsson, Hall-
dór Þorsteinsson og Eggert Cla-
essen. Sem stendur sitja þessir
menn í stjórn: Eggert Claessen
formaður, (siðan 1928), Chr.
Zimsen, (síðan 1919) og Þor-
steinn Þorsteinsson í Þórshamri
(síðan 1924).
Fjelagið rjeði'sem fyrsta fram-
kvæmdastjóra sinn Ólaf Briem,
sem gegndi því starfi til 1. júlí
1918, að liann haðst undan því.
Ólafur sýndi frábæran dugnað i
að koma starfi fyrirtækisins í
gott horf. Keypti fjelagið kola-
hirgðir og áliöld dánarhús Björns
heitins Guðmundssonar, sem
Chr. Zimsen, þáverandi formað-
ur, fjelaginu, það sem eftir var
ársins, en frá ársbyrjun 1921 var
Theodor Jakobsson ráðinn fram-
kvæmdastjóri Jiess og var þangað
til 1924, að núverandi fram-
kvæmdastjóri, Hjalti Jónsson tók
við stjórn fjelagsins.
Þó fjelagið væri í fyrstu stofn-
að með það fyrir augum fyrst og
fremst, að sjá útgerðarfjelögum
þeim, sem að því stóðu og bæjar-
húum Reykjavíkur fyrir kolum,
þá færðust viðskiftin fljótt í það
horf, að fjöldi annara keyptu kol
sin þar. Hefir því stór hluti af
kolaverslun landsins jafnan ver-
ið í höndum þessa fjelags. Sama
er að segja um saltið, en inn-
flutningur þess fer stórvaxandi
IJjalti Jónsson.
„Hegr inn“.
rekið hafði hina stærstu kola-
verslun í Reykjavík á undanförn-
um árum. Verslun fyrirtækisins
varð hrátt mikil, enda slóðu að
því flest útgerðarfjelög í bænum,
svo sem ísland, Bragi, Defensor,
Njörður, Haukur og Alliance, og
skiftu þau vitanlega við fjelagið.
En Kolaverslun Björns Guð-
mundssonar hafði áður sjeð
mestum hluta bæjarhúa fyrir
kolum til liúsa og færðust þau
viðskifti sjálfkrafa yfir á hið
nýja fjelag. Saltverslunin varð
líka fljótlega mikil og varð fje-
lag þetta brátt hin stærsta versl-
un landsins í þeim greinum, eins
og enn er.
Þegar Ólafur Briem ljet af
f r amkvæm das t j ór n f j elagsins.
var Böðvar heitinn Kristjánsson,
þáverandi adjunkt ráðinn fram-
kvæmdastjóri fjelagsins. Gegndi
hann því starfi til dauðadags eða
fram á vorið 1920. Sljórnaði
og er öruggur mælikverði á hina
vaxandi framleiðslu sjávarút-
vegsins.
Eitt af merkustu nýmælum,
sem Kol & Salt hefir hrundið i
framkvæmd er útvegun liins
mikla kolakrana við höfnina í
Reykjavík. Uppskipun kola var
lijer lengi i megnasta ólagi og
þótti flestum leiðinleg sjón í
gamla daga að sjá konur og
karla rogast með kolapokana á
bakinu upp bryggjurnar, á leið
milli uppskipunarbáta og koia-
ports. Að vísu hafði vinnulagið
færst i nokkru betra lag eftir að
höfnin kom og hestvagnar voru
þá einkanlega notaðir við kola-
flutninginn, en mjög var þessu
þó ábótavant. Það mun hafa ver-
ið Hjalti Jónsson framkvæmda-
stjóri, sem átti upptökin að þessu
nýmæli og fól fjelagsstjórnin
honum að koma því í fram-
kvæmd. Kraninn var full-
gerður í marzmánuði 1927 og
hlaut nafninð „Hegrinn". Kost-
aði hann uppkominn uln 383 þús-
und krónur. Verður ekki annað
sagt, en að hann liafi orðið eigi
aðeins fjelaginu til hagsbóta,
heldur hefir liann jafnframt
komið höfninni í góðar þarfir,
með því að flýta fyrir losun kola-
skipa og flytja kol milli skipa;
er þetta hægt þó að skipið liggi
ekki við bryggju. Getur hann los-
að um 750 smálestir af kolum á
sólarhring. Vinnur hann ekki að-
eins að uppskipun kola fjelagsins
lieldur fá aðrir innflytjendur
kola hann líka oft til að skipa
upp kolum fyrir sig.
Lengst af flutti fjelagið nær
eingöngu inn ensk kol, sjer i lagi
South Yorkshire-kol og eru þau
mestmegnis flutt liingað frá Hull
og öðrum höfnum við Humber-
fljót. En þegar kolaverkfallið
mikla skall á 1926 varð að leita
annara leiða til þess að bæta úr
þörfinni, því kolalausir geta Is-
lendingar ekki verið. Var þá leit-
að fyrir sjer víða og sú raun
varð á, að í Póllandi fengust kol,
sem líkjast mjög þeim ensku kol-
um er menn vildu helst og síð-
an sú aðflutningsleið hófst hefir
hún lialdist og flytja íslendingar
nú inn svo um munar af pólsk-
um kolum, þó enslci aðflutning-
urinn sje að visu mildu meiri.
Kol & Salt liefir oft alt qð 12.000
smálestir kola fyrirliggjandi og
síðasta ár flutti fjelagið inn yfir
30.000 smálestir kola.
Saltið flytur fjelagið inn frá
ýmsum Mið j arðarhaf shöf num.
Eru saltgeymsluhús fjelagsins á
austur-hafnaruppfyllingunni og
rúma þau nálægt 6000 smálest-
ir. Innflutningur fjelagsins af
salti var um 18.000 smálestir
síðasta árið.
Eins og áður er getið var hluta-
fje fjelagsins í upphafi kr. 176.
000.00 en árið 1922 var það auk-
ið upp í 350.000.00. Loks var það
aukið aftur um kr. 62.000.00 ár-
ið 1926, með tilliti til kolakran-
ans, sem þá var verið að kaupa
og varð þá kr. 412.000.00 og er
enn.
Núverandi framkvæmdastjóri
fjelagsins kemur mjög við sögn
útgerðarinnar og hefir fylgst með
henni í öllum myndum og ver-
ið einn hinna miklu starfsmanna
á hennar sviði. Hjalti Jónsson er
fæddur 15. apríl 1869. Hafa vin-
sældir þessa fyrirtækis vaxið
mjög í stjórnartið hans.