Fálkinn


Fálkinn - 21.06.1930, Page 68

Fálkinn - 21.06.1930, Page 68
G8 FALKINN HLJÓÐFÆRAHÚS BEYKJAVÍKUB var stofnað haustið 1916 af núverandi eiganda, frú Önnu Friðriksson og var fyrst um sinn til húsa við liorniÖ á Templarasundi og Kirkjutorgi. Ekki voru vörurnar margbreyttar þá, að- eins píanó, orgel og nótur. Þá var engin sjerverslun hjer á landi í þess- ari grein. Stærri hljóðfæri voru pönt- uð beina leið frá verksmiðjunum og nótur seldar hjá bóksölum. 1918 flutti verslunin í suðvesturhorn „Hótel ís- land“, þar sem nú er Vöruhúsið. Þá voru vörur orðnar margbreyttari, grammófónar, plötur, harmónikur, munnhörpur, fiðlur o. fl. höfðu bæst við. 1919 flutti verslunin í húsið nr. 18 við Laugaveg. Hafði verslunin þá fengið einkaumboð fyrir ýmsar verk- smiðjur úti í heimi, svo sem POLYPHONWERKE í Berlín o. fl. Haustið 1922 bætti verslunin við sig sjerdeild fyrir fínni leðurvörur og tók undir hana sjerslaka verslunar- búð í sama húsi. Sumarið 1924 flutti verslunin í húsið nr. 1. við Austur- stræti („Veltuna") gegnt „Hotel Is- land“ og hefir verið þar síðan. HLJÓÐFÆRAHÚSIÐ er stærsta sjerverslun á íslandi í þessari grein. Hefir það vaxið geysilega á síðari ár- um og hefir orðið að bæta við sig sjerstakri deild fyrir stærri hl.jóð- færi, pianó og orgel. Er sú deild í húsinu nr. 1 við Veltusund. Er það einnig nótnadeild. Þar eru sýnd stærri hljóðfæri. Eru þau þar í tveim stórum verslunarherbergjum með stórum sýningargluggum. Auk þessa hefir Hljóðfærahúsið einnig sjeð um hljómleika fyrir erlenda og innlenda listamenn. Hafa allir hljóm- leikar erlendra lieimsmeistara í Reykjavik verið haldnir fyrir milli- göngu Hljóðfærahússins. Má þar m. a. nefna fiðlusnillingana Henri Marteau, Issay Mitnitzkij, Wolfgang Schneiderhan (,,Wolfi“), F.v. Reuter, Hermann Diener, pianóleikarana Kurt Ilaeser, Annie Leifs, próf. Willy Klasen, Johanne Stockmarr, o. fl. celloleikarann Fritz Dietzmann, harmonikusnillingana Gellin & Borg- ström, Henri Eriksen o. fl„ söng- varana frú Mysz-Gmeiner, Eggert Stefánsson, Helge Nissen, Sig. Mark- an, Henrik Dahl, Mary Alice Therp, Per Biörn, Gagga Lund, frú Darbo, Signe Liljequist, Áke Claesson o. fl. HLJÓÐFÆRAHÚSIÐ fer nú með umboð fyrir mörg hin stærstu versl- unarfyrirtæki og verksmiðjur er- lendis, svo sem Herm. N. Petersen & Sön og Hupfeld-Gebr. Zimmermann (piano), Jacob Knudsen (orgel), Polyphonwerke A/G, og Edison Bell (Intern.) Ltd, Linguaphone Institute (málakensluplöur) o. fl. Auk þesshef- ir það á boðstólum vörur fráHismast- er’s Voice, Columbia, Decca Gramo- phone Co., Itonia Gramophones Co, nótur frá stærstu nótnaforlögum heimsins og frá sínu eigin for- lagi, nýtísku leðurvörur frá Berlin, Wien og París. í sýningargluggum verslunarinnar eru ávalt til sýnis nýjustu og fullkomnustu vörur í of- annefndum greinum. Útsölur hefir Hljóðfærahúsið í Hafnarfirði, Borg- arfirði, á Akranesi, ísafirði, Akureyri og Siglufirði. Umboðsmenn verslun- arinnar á þessum stöðum geta ávalt með stuttum fyrirvara útvegað all- ar nýjungar með bestu kjörum. úr vandaðri eik, frá 65 kr., með ioki aðeins 88 kr. ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Gólff ónar f vönduðum eikarkössum 265 kr., í mahognikössum 365 kr. Bestu grammófónplötur heimsins leiknar af mestu snillingum, sem nú eru uppi. Allar íslensku plöturnar. Nýtfsku dansplötur, 1.00, 2.25, 3.50, 4.50. Einkaumboð fyrir »POLYPHON«, Polydor & Brunswick. rðfó n a r Bo Ein faldar Harmonikur frá 11.50. Tuö-faldar Harmónikur frá 36.50. HOHNERS kromatiskar Konsert-Harmoniknr frá 185 krönnm. Hljómfegurstu ferðafónar, kr. 56.50. kr. 22.50. Lítið inn' í tlLJÓB’FÆHAHiJS. HEYHJiWlKUR (Stofnað 1916) Elsta og stærsta sjerverslun landsins í þessari grein. Austurstræti 1 & Veltusundi 1. Sími 656. á móti Hótel ísland. Símnefni: Hljóðfærahús.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.