Fálkinn


Fálkinn - 21.06.1930, Side 71

Fálkinn - 21.06.1930, Side 71
F A L Ií I N N 71 J. Þorláksson & Norðmann. Á síðari árum hefir orðið gagn- gjör breyting á byggingarlagi ís- lendinga við þaS, aS fariS var að nota járnbenta steinsteypu. Þelta byggingarefni hefir þann kost, að þaS er margfalt ending- arbetra en tímbur og bárujárn og ekki mun dýrara. Og óttinn við að steynsteypa mundi ekki þola jarðskjálfta virðist vera á- stæðulaus, en framan af var það ein af aðalmótbárunum gegn steinsteypunni, að bús úr henni mundi brynja í jarðskjálftum. Nú byggja menn bæði bús og brýr fullum fetum úr stein- steypu og má telja, að ef nægi- lega mikið af járni er liaft í benni sje bún sterkasta bygg- ingarefnið, sem til er. FirmaS Jón Þorláksson & NorSmann kemur mjög við sögu þessa nýja byggingaháttar. Það er stofnað árið 1923 undir því nafni, sem það befir nú, en er í raun og veru miklu eldra. Þeg- ar Jón Þorláksson sagði af sjer landsverkfræðingsembættinu ár- ið 1917, sem bann liafði gegnt frá því árið 1905, stofnaði bann verkfræðiskrifstofu og annaðist á næstu árum ýmisleg verk- fræðistörf, bæði fyrir einstak- linga og bæjarfjelög. Meðal annars gerði liann á næstu ár- um frumdrætti að Rafmagns- veitu Reykjavíkur, gerði vatns- veituna á Akureyri og fleira. En jafnframt tók bann að rcka vcrslun með allskonar bygging- arefni, svo sem cement og járn. Hafði bann meiri reynslu um liina nýju byggingaraðferð en menn höfðu alment hjer á landi í þá daga, bæði úr starfi sínu, sem verkfræðingur og siðar. Raf- stöðvarhúsin við Elliðaár reisti hann og með tilboði sínu í þá byggingu sannaði liann, að hægt var að byggja vönduð stein- steypubús án þess að verðið færi fram úr hófi. Jóni Þorlákssyni var falin yfir- stjórn framkvæmdar Flóaáveit- unnar og vann hann mest að und- irbúningi þess máls sjálfur, en bafði síðar aðra verkfræðinga sjer til aðstoðar, er önnur störf hlóðust á liann. Cement var þegar frá byrjun aðal innflutningsvara verslunar- innar og er enn i dag. Er það einkum danskt Portland-ccment, sem firmað hefir flutt inn, en þó stundum nokkuð af norsku cementi. Þakjárnsinnflutningur firmans hefir jafnan verið mik- ill líka og smámsaman liafa bæst við fleiri og fleiri bygginga- vörur; má nefna allskonar saum, þakpappa, rúðugler, reyrvef, gólfdúka, flókapappa, vegg- og gólfflísar, látúnsjaðra og því um líkt. Ennfremur hefir firmað mikla verslun með allskonar efni til vatnsleiðslu, bæði innanhúss og langleiðslur, miðstöðvarkatla, ofna, pípur, og eldavjelar fyrir miðstöðvarbitun, vaska og vatns- salerni, þvottaskálar og baðker. Ennfremur eldfæri allskonar, þar á meðal frá eldfæraverksmiðju C. M. Hess í Vejle. Firmað befir jafnframt lengi selt áböld ýms, vjelar og verk- færi til notkunar við byggingar og önnur verkleg fyrirtæki, svo sem cementsblöndunarvjclar, þær fyrstu, sem til landsins fluttust, og nú þykja ómissandi við bverja steinsteypubyggingu. Áður var cementið blandað á trjcpalli, sandur, möl og cement flutt á pallinn og mokað saman með skóflum, en aðrir báru að vatn í fötum og heltu yfir; var þctta seinleg grautargerð og þóttifrem- ur vont verk. — Járnbrautarteina flytur firmað inn, vinnuvagna allskonar og lijólbörur, dælur og smiðjur, auk einföldustu vcrk- færa til bygginga og jarðvinnu. Er verslun þessi orðin svo fjöl- breytt í þessum greinum öllum, að fæstir munu byggja hús nú á tímum, án þess að leita þangað uni kaup á ýmsu því, sem þeir þurfa til byggingarinnar, enda er verslunin stærst allra firma lijer á landi í þeim greinum, sem bjer bafa verið nefndar, þegar alt er talið saman. Munar þar mest um aðalinnflutning firmans, sem er cement og járn. Árið 1923 gekk Óskar Norð- mann inn í firmað, sem um leið fjekk það nafn, sem það hefir nú. Var verslunin þá orðin svo mikil, að ekki veiíti af sjcrstök- um manni til þess að annast for- stöðu hennar og fjell það í lilut Norðmanns, scm ckki er vcrk- fræðingur cn bafði tekið próf í verslunarfræði í Kaupmannaliöfn að afloknu stúdentsprófi. En Jón Þorláksson gaf sig einkum að verkfræðingsstörfum; má þar nefna Flóaáveituna, sem hann fór að gera fullnaðaráætlun um um líkt leyti. En ári síðar varð Jón Þorláksson fjármáiaráðberra og sat í stjórn landsins til ársins 1927, síðasta árið jafnframt sem forsætisráðlierra ogannaðist Ósk- ar Norðmann stjórn firmans á því tímabili. En síðan í ársbyrj- un 1928 hefir Jón Þorláksson starfað að stjórn firmans. J. Þorláksson & Norðmann er sameignarfjclag með ótakmark- aðri ábyrgð beggja eigendanna. Firmað liefir skrifstofur sínar í Bankastræti 11, i búsi Jóns Þor- lákssonar á 2. hæð. En vöru- geymsluliús hefir það bak við aðalhúsið í búsi, scm bygt var fyrir nokkrum árum til þcssa. Er það tvilyft með kjallara og alt notað til vörugeymslu. Það er talandi dæmi tfm þær miklu breytingar, sem orðið hafi á seinni árum, að mikill bluti af þeim byggingarvörum, sem firm- að Jón Þorláksson & Norðmann verslar með, voru sumpart litt þektar og sumpart óþektar lijer á landi fyrir rúmum aldarfjórð- ungi. Ccment var þá sáralitið not- að til bygginga, vatnsleiðslupíp- ur bvergi til á landinu, miðstöðv- ar óþektar, járnbent steinsteypa óþekt, gólfdúkar nær óþektir, fráræslur og vatnssalerni livergi til og vjelar engar notaðar til búsbygginga. Með vaxandi þekk- ingu í byggingum, sem liinir fyrstu íslensku verkfræðingar fluttu með sjer frá útlöndum hafa orðið þær stórbreytingar, sem menn ekki gera sjer grein fyrir í fljótu bragði. Og í kjölfar þeirra breytinga hlutu að rísa upp verslanir, sem fullnægðu kröfum bins nýja thna. Firmað J. Þorláksson & Norðmann verð- ur æfinlcga talið framarlega í flokki þeirra. Úr vörubirgðahúsinu.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.