Fálkinn - 21.06.1930, Qupperneq 72
72
F A L K I N N
Eggert Kristjánsson & Co.
Inn- og útílutningsverslun.
Hinn 4. maí 1922 stofnuSu þeir
Eggert Kristjánsson og Eyjólfur
Jóhannsson framkvæmdastjóri
Mjólkurf jelags Reykjavíkur versl-
unarfjelag undir firmanafninu
Eggert Kristjánsson & Co. Byrj-
uðu þeir fjelagar með því að
setja á stofn tóbaks- og sælgætis-
verslun • í Aðalstræti 9 og ráku
liana eitt ár, en undirbjuggu jafn-
framt stofnun þess verslunar-
reksturs er var aðalmarkmiðið:
sem sje inn- og útflutningsversl-
unar. í september 1923 liætti
firmað verslun sinni í Aðalstræti
en stofnaði jafnframt læildversl-
un. Tók það á leigu skrifstofur í
húsinu í Ilafnarstræti 15, sem áð-
ur var eign P. J. Thorsteinsson
og síðar Jóns Laxdal. Ilafa skrif-
stofurnar verið þar alla tíð síðan,
þar til í maí mánuði síðastliðn-
um, að þær voru fluttar í bið
nýja stórhýsi Mjólkurfjelags
Reykjavikur við Ilafnarstræti og
Tryggvagötu. Var húsnæðið fyr-
ir löngu orðið of þröngt á fyr-
nefndum stað, en í húsi mjólkur-
fjelagsins hefir firmað fengið
mjög rúmgóðar og skemtilegar
skrifstofur og sýnisiiornasafn. En
vörubirgðir hefir firmað á Vest-
urgötu 3, í geymsluhúsum Th.
Tliorsteinsson.
Eyjólfur Jóhannesson var að-
eins skanima stund i firmanu.
Störf hans við Mjólkurfjclagið,
sem uxu hröðum skrcfum, urðu
svo mikil, að hann munekkihafa
sjeð sjer fært að sinna öðru.
Gckk hann því úr firmanu síðla
á árinu 1923 og seldi Eggert
Kristjánssyni sinn hlut. Hefir
Eggert verið einkaeigandi síðan.
Eggert Kristjánsson hyrjaði
smátt og fór gætilega, en hrátt
óx þó viðskiftavclta lians. IJon-
um tókst að ná ýmsum ágætum
samböndum við kunn og mikils-
virt verslunarhús útlend og hef-
ir hann getað boðið svo góð kjör
í ýmsum vörugreinum, að liann
mun vera slærsti innflytjandi á
landinu livað sumar vörutegund-
ir snertir.
Eggert Kristjánsson & Co. relc-
ur verslun og viðskifti við flest
Evrópulönd og einnig við Asiu
og Ameríku. Firmað flytur til
dæmis inn ýmsar landbúnaðaraf-
urðir frá Danmörku svo og tó-
haksvörur. og fleira. Einnig má
nefna vjelbátana frægu, sem
þetta firma hefir nýlega flutt
inn þaðan og hlotið hafa hið,
mesta hrós þeirra, sem vit hafa
á fiskiskipum. Frá Noregi flyt-
ur firmað inn niðursuðuvörur
ýmsar, einkum fiskniðursuðu,
ennfremur má nefna innflutn-
ing á tunnum frá Noregi,
einkum síldar- og lýsistunn-
um, og hcfir þessi innflutn-
ingur verið afarmikill sum árin.
Ýmsar fleiri vörur, scm hjer yrði
of langt að telja, flytur firmað
inn frá Noregi; geta má þess líka,
að firmað Iiafði um mörg ár að-
alumboð fyrir súkkulaði- og
sælindagerðina „Freja“ sem mun
vera liin stærsta í sinni röð á
Norðurlöndum. En sá innflutn-
ingur liætti, er norska krónan
stórhækkaði, svo að firmað gat
ekki fylgst með samkepninni.
Frá Svíþjóð er m. a. flutt inn
mikið af vefnaðarvörum, frá
Þýskalandi einnig vefnaðarvörur
ýmiskonar og nýlenduvörur, frá
Ilollandi ostar og margt flcira,
frá Bclgíu súkkulaði (Cida)
og niðursuðuvörur, frá Frakk-
landi fegrunarvörur ýmiskonar
(Gihhs), frá Englandi allskon-
ar nýlenduvörur og ávexti. Suð-
ræn aldini af öllum hugsanleg-
um tegundum flytur firmað
inn frá Spáni, ítaliu og Grikk-
landi, en fínni vefnaðarvörur
ýmiskonar og leikföng einlc-
um frá Tjekkóslóvakíu og Aust-
urríki. Af framantöldu má sjá,
að firmað flytur inn flestallar
venjulegar vörur fyrir vefnaðar-
og nýlenduvöruverslanir auk
byggingarefnis, veiðarfæra, mó-
torbáta og því um líks. En sjer-
staklega mikill cr innflutningur-
inn af allskonar ávöxtum, þurk-
uðum og niðursoðnum , enda
mun ekkcrt innlent firma hafa
jafn mikinn innflutning i þeirri
grein sem stendur.
Hcfir nú vcrið minst nokkuð
á innflutningsverslun firmans.
En jafnframt licfir Eggert Krist-
jánsson lengst af kcypt innlendar
afurðir til útflutnings, einkum
landhúnaðarafurðir. Má þar eink-
um nefna saltkjöt, ull og gærur
og hcfir mikið kveðið að þeirri
verslun í sumum árum. Líka hef-
ir firmað keypt afarmikið af sölt-
uðum og liertum húðum til út-
flutnings og stundum verið
stærsti útflytjandinn í þeirri
vörugrein. Af sjávarafurðum hef-
ir firmað ekki keypt mikið, en þó
má nefna sundmaga og lýsi. Út-
flutningsverslunin hefir eins og
áður er sagt, einkum beinst að
landbúnaðaraf urðunum.
Eggert Kristjánsson er fæddur
í Mýrdal i Hnappadalssýslu 6. okt.
1897, sonur Guðnýjar Guðnadótt-
ur og Kristjáns Eggertssonar er
þar hjuggu þá. Tveggja ára gam-
all fluttist hann með forcldrum
sínum að Dalsmynni og þar
dvaldi hann æskuár sín, þangað
til hann kom suður til Hafnar-
fjarðar átján ára gamall og gcklc
á Flensborgarskóla vcturna 1916
—1919. Ilingað til Rcykjavikur
fluttist hann fyrir fult og alt ár-
ið 1920. Vann hann hjer við
verslunarstörf fyrstu árin, þang-
að til hann sctti upp verslun þá,
sem áður getur. Hann er kvænt-
ur Guðrúnu Þórðardóttur, Eyj-
ólfssonar frá Vogsósum.
Eggert varð fyrst almenningi
kunnur hjer syðra fyrir iþrótta-
iðkanir og þá einkum glímu. Var
liann um eitt skeið í flokki hinna
snörpustu glímumanna suður
lijer, og reyndist hann oft frcmst-
ur í flokki á opinbcrum glimu-
sýningum. Ilann er „þjettur á
velli og þjettur í lund‘ eins og
sagt cr um góða Islendinga,
rammur að afli og fimur.
Nú er liann hættur að sjást
koma fram á glimuvöllinn girt-
ur mcgingjörðum sínum, og
sakna þess margir. Ilann glímir
nú í staðinn við vcrslunarrekst-
urinn og fer honum þar að fyrra
dæmi, að hann hefir belur. Egg-
ert er gott dæmi þess, hve vel
þeim manni gctur tekist að ryðja
sjer braut í lífinu, sem húinn er
orku, þrautseigju og dugnaði.
Hann byrjaði með tvær hcndur
tómar og hefir á tæpum átta ár-
um komið svo undir sig fótun-
um, að verslun lians stendur nú
framarlega í kaupsýslulífi lands-
ins og hefir áunnið sjer vinsæld-
ir og traust um alt land.