Fálkinn


Fálkinn - 21.06.1930, Síða 75

Fálkinn - 21.06.1930, Síða 75
F Á L K I N N 75 Hlutafielagið HAMAR. Þegar floti vjelknúinnaskipaúr járni og stáli fór að aukast hjer á landi varð fljótt brýn nauðsyn á, að hjer kæmi á fót smiðastöð, er annast gæti stærri og smærri viðgerðir vjela, katla og skipa og steypt og smiðað stykki, sem bil- uðu í vjelunum. Ræður að líkind- um, að það hafi verið miklum kostnaði og óþægindum bundið að þurfa að fara til útlanda til þess að fá gert við bilanir á skip- unum. Það var með þetta fyrir aug- um, að hlutafjelagið Hamar var stofnað árið 1918 upp úr vjel- smiðju Gisla Finnssonar við Norðurárstig. Stofnendur voru þessir: N. P. Kirk heitinn verk- fræðingur, er þá hafði dvalið hjer nokkur ár, og var yfirverk- fræðingur hafnargerðarinnar í Reykjavík fyrir liönd N. C. Mon- bergs í Kaupmannahöfn, Sveinn Björnsson þáverandi yfirdóms- lögmaður í Reykjavík, útgerðar- mennirnir Ágúst Flygenring, Jes Zimsen og Hjalti Jónsson og Otto Malmberg vjelaverkfræðingur. Er Malmberg sænskur að ætt en hafði verið starfsmaður hjá N. C. Monberg nálægt 20 ár. Var hann ráðinn framkvæmdastjóri fyrirtækisins og er það enn í dag. Hlutafje fyrirtækisins var upp- haflega 105.000 kr. en hefir síð- ar verið aukið svo að nú er það 259 þúsund kr. Fjelagið keypti hús og áhöld Gísla Finnssonar og Járnsteypu Hjalta Jónssonar og Aug. Flygenring, en jók þeg- ar í stað við fullkomnum áhöldum og liefir jafnan síðan fylgst með öllum nýjungum í greininni til þess að geta boðið vandaða og fullkomna vinnu. Hefir Ilamar jafnan haft ýmsa útlendinga í smiðjunni, ágæta fagmenn og vel kunnandi. Enn- fremur kent fjölda ungra manna iðnina og margir þeirra orðið dugandi menn í sinni grein. Á myndinni, sem er framan við þessa grein sjást byggingar Hamars og skal þeim nú lýst nolckuð. í aðalliúsinu er sjálf vjelasmiðjan niðri — þar eru m. a. vjelar allar til rennismíði og gefur hin myndin nokkra hug- mynd um, að sumar vjelarnar þar sjeu ekkert smásmiði þvi að veifás úr 600 hestafla togara-vjel liggur þar i rennibekknum. Uppi í þessu sama húsi er íbúð for- stjóra, vita gluggar hennar út að Norðustíg, en i álmunni, sem liggur út að sjónum eru skrif- stofurnar. Fyrir vestan aðalhús- ið tekur við lág bygging, er þar verslun og vörugeymsla i austur- enda en í miðju eldsmiðja svo- nefnd og nær hún langt vestur eftir liúsinu. En vestast í þvi húsi byrja steypuskálarnir og taka þeir líka vestasta húsið, sem sjest í sömu röð, að ofanverðu við göt- una. Að neðanverðu við götuna er vestast „Model-verkstæðið“ og ketilsmiðja en i eystra húsinu, sem liggur andspænis aðalhúsinu er m. a. koparsmiðja. Má marka af þessu, að starfsemi vjelsmiðju þessarar er ærið margþætt. Yfirleitt hefir Hamar öll liugs- anleg tæki til skipaviðgerða; þar er plötuverkstæði, járn- og málmsteypa, þrýstiloftsáhöld, á- höld rafmagns- og logsuðu o. fl. Að sjálfsögðu hefir fyrirtækið líka kafara í þjónustu sinni, til rannsókna og aðgerða á skipa- skemdum undir sjávarborði. Árleg umsetning Hamars var um 250 þúsund krónur fyrst i byrjun, en hefir þrefaldast á þeim tólf árum, sem liðin eru frá stofnun vjelsmiðjunnar. Eru það einkum togarar, sem leita viðgerða lijer og er nú svo komið, að islenskir togarar og línuveið- arar geta fengið alla viðggrð hjer til endurnýjunar í flokki (Klassi- ficering), nema þegar um botn- skemdir er að ræða, svo að taka verði slcipið í þurkví til viðgerð- ar. Er það mikið mein, að ekki skuli vera til þurkví eða dráttar- braut nægilega stór lil þess, að taka togarana á land. Hefir það verið framtíðardraumur fjelags- ins að koma hjer upp dráttar- braut og skipasmíðastöð, en því hefir seinkað vegna ýmsra hluta m. a. vegna þess að fjelagið mundi þurfa að auka stórum við hlutafje sitt. Til byrjunar ætl- aði fjelagið að leggja dráttarbraut fyrir alt að 250 feta löng skip og leitaði Alþingis um lán til þessara framkvæda, en þing- ið krafðist ábyrgð- ar bæjarsjóðs jafn- framt. Hefir þessi málaleitun ekki náð afgreiðslu ennþá, en þess er að vænta að aðilar málsins frá bæjarins liálfu greiði sem best og fljótast fyrir að þetta nauð- synjamál komist sem fyrst í framkvæmd. Erlendir togarar og flutningsskip leita oft til viðgerðar og eru þau orðin mörg, sem Hamar liefir gert við. En þó að vjelsmiðjan væri einkum stofnuð með það fyrir augum, að gera við skip, þá er þetta þó ekki orðið nema þáttur úr starfsemi hennar. Þeir hundr- að starfsmenn, sem þarna vinna eru færir í fleira. Er gaman að geta nokkurra verka, sem Ham- ar hefir unnið í öðrum greinum. Má meðal annars minnast á sam- setning og uppsetning túrbínu- röranna í Rafmagnsstöðinni við Elliðaár og sölu ljóskerastólpa og masturliringa til ljósaveitunnar, smíði fjölmargra vitagrinda og vitalampa, flóðgáttahurðir i á- veiturnar austanf jalls, smíði gufu- katla fyrir lýsishræðslur, Álafoss verksmiðjuna og fleiri fyrirtælci, t. d. fiskþurkunarhús, allskonar spil fyrir skip og báta, uppsetning kolakranans fyrir Iíol og Salt á hafnaruppfyllingunni i Reykja- vík, uppsetning óliugeymiranna i Slcerjafirði og í Yiðey og fleira því um líkt. Járnsmíðavinnu ýmsa fyrir höfnina í Reykjavik og til ýmsra brúargerða hefir Hamar líka annast, ásamt mörgu fleiru. Fyrirtæki eins og Hamar er stór þáttur i sjálfsbjargarviðleitni þjóðarinnar og hefir verið til þjóðþrifa. Því það er ekki aðeins, að þessi stofnun liafi varnað miklu fje út úr landinu fyrir viðgerðir og ýmiskonar smíði, sem annars hefði orðið að sækja til útlanda, lieldur liefir hún jafnframt spar- að mönnum stórfje með því, að geta afstýrt þeim töfum og kostn- aði, sem óhjákvæmilega leiða af þvi, að senda skip til útlanda til viðgerðar. Og ef að hjer kæmi drátarbraut, sem tekið gæti á þurt stærstu íslenska togara, mundi þetta verða mikil framför enda þótt sldp geti alla jafna far- ið til flokkunar til útlanda á þeim tíma, sem þeim er hentugastur og siglt með fisk út. En bilanirri- ar spyrja ekkert að því, hvenær útgerðarmanninum sje hentug- ast að senda skip sitt til útlanda, og eru meira að segja stundum svo, að skipið mundi ekki kom- ast þá leið hjálparlaust. Sjest því hve mikilsvert það er hverri sigl- ingaþjóð að geta gert við skip sín sjálf. Fyrir nokkrum árum keypti Hamar vjelsmiðju Á. Flygenrings í Hafnarfirði og hefir útbú þar síðan. Þessari smiðju veitir for- stöðu Sigurður Finnbogason v j elaverkf ræðingur. Eins og áður er sagt stjórnar Otto Malmberg enn IJamri og er þess að vænta, að fyrirtækið njóti starfskrafta hans enn í mörg ár. Skrifstofustjóri Ham- ars er Jón Gunnarsson, sem lief- ir starfað hjá firmanu frá stofn- un þess. En stjórn fjelagsins skipa nú Hjalti Jónsson fram- kvæmdarstjóri, Th. Krabbe vita- málastjóri og Gisli Johnsen kon- súll, en endurskoðendur eru Jes Zimsen kaupmaður og Geir Zoega vegamálastjóri.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.