Fálkinn - 21.06.1930, Page 76
76
'FÁLKINN
Matarverslun Tómasar Jónssonar.
Úr matarversliininni á Laugavegi 2.
Úr matarversluninni á Laugavegi 32.
Matarverslun sína stofnaði Tó^
mas Jónsson 1. desember 1909
í liúsi Jóns Þórðarsonar kaup-
manns, Bankastræti 10. — Versl-
aði hann aðallega með kjöt og
niðursuðuvörur. ‘
Árið 1917, 15. apríl, flutti hann
verslunina á Laugaveg 2, þar sem
hún er enn rekin.
Húsnæði það, sem verslunin
hefir nú, er orðið of lítið og ó-
fullnægjandi, þegar litið er á eft-
irspurnina eftir vörum , verslun-
arinnar. Hafa viðskiftin aukist
liröðum skrefum siðustu árin, og
hefir Tómas í hyggju að færa út
kvíarnar enn meir en hann hefir
þegar gert.
Árið 1925 reisti Tómas frysti-
hús á Laugaveg 32 við íbúðarhús
sitt. Tekur það 40 tonn af frosnu
kjöti í kælirinn, og er það geymt
þar í 7° kulda. Annar kælirinn
frystir við 15° kulda. um 3 tonn
af kjöti á sólarhring, Auk þess
er klefi, sem geymt er í ófryst
kjöt við kulda.
Við frystihúsið er vinnustofa,
þar sem búið er til fars úr kjöti
og fiski, pylsur o. fl. Er þar fram-
leitt alt af því tæi, sem verslun-
in hefir á boðstólum. 1 sambandi
við frystihúsið og vinnustofuna
setti liann síðan á stofn útibú,
sökum þess að verslunin á Lauga-
veg 2 átti þá þegar fult í fangi
með að sinna eftirspurninni. I
haust hefir Tómas i hyggju að
setja upp annað útibú í vestur-
bænum. Ilefir bærinn stækkað
svo upp á siðkastið og eftirspurn
jafnframt aukist, en ófærl er úr
einum stað að senda vörur um
allan hæinn.
Við verslunina og útihúið
starfa nú alls 8 fullorðnir og 4
sendisveinar. Er þessi mannafli
óvenjumikill, en mun þó sist af
veita.
Tómas Jónsson eigandi versl-
unarinnar, er fæddur 7. septem-
her 1883 í Reykjavík, þar sem
hann er uppalinn. Rjeðist hann
1899 til Thomsens Magasins,
sem þá var stærsta verslunarfyr-
irtæki í bænum. Mun hann liafa
GegmsLuklefi i ishúsinu.
öðlast þar hina bestu þekkingu
í verslun, og það fleiri en einni
grein. Um eitt skeið ferðaðist
hann um Suðurland með póst-
vögnum, sem sölumaður fyrir
Magasinið. — Varð hann 1905
deildarstjóri í járnvörudeild-
inni, en magasínið var í
fjölda mörgum deildum, og
stjórnaði liverri þeirra deild-
arstjóri. Yar sem von var vandað
hið mesta um val á þéim, því
að á þeim hvíli ekki hvað minst
rekstur hins milda fyrirtækis.
1909 rjeðist Tómas á skrifstofu
Talsímahlutafjelags Reykjavíkur,
sem stofnsett hafði bæjarsímann.
Vann hann þar um sumarið og
rjeðist um haustið til Sláturfje-
lags Suðurlands. Sláturfjelagið
hafði þá fyrir nokkru tekið á
leigu kjötbúð Jóns Þórðarsonar
kaupmanns. Var þá talað um að
leggja þá búð niður, en Tómas
bauðst til að taka búðina að sjer
og selja kjöt fyrir fjelagið. Varð
það að samkomulagi, að Tómas
stofnsetti verslun sína þar. Hef-
ir hann síðan selt kjöt, er hann
hefir keypt af Sláturfjelagirtu,
þar til 1925, er hann reisli frysti-
liús sitt og byrjaði að frysta kjöt.
Hefir það þó oft viljað hrökkva
skamt, og kveðst liann sífelt
þurfa að kaupa mikið af kjöti
hjá Sláturfjelaginu, sökum þess
hve salan er mikil.
Ljósm. Loftur.
Frystivjel í íshúsi Tómasar Jónssonar.