Fálkinn - 21.06.1930, Blaðsíða 88
88
F A I. K T N N
Gísli J.
Johnsen,
Vestmannaeyjum.
Gísli J. Jolmsen, konsúll.
Þegar litið cr á hinar stórstígu
framfarir síðustu ára, að því er
snertir verslun og framleiðslu
innanlands, fer eklci hjá því, að
slaldrað verði við eitt stærsta
verslunar- og atvinnufyrirtæki
í landinu, firmað G. J. Johnsen
í Vestmannaeyjum. Engum, sem
komið hefir til Eyja, dylst, að
þar liafa verið að verki starf-
samar hendur og ötull vilji, því
að fyrir þrjátíu árum var ekki
um auðugan garð að gresja, livað
framkvæmdir og framfarir snerti
á þeim slóðum..
Árið 1899 stofnaði Gísli J.
Jolmsen verslun sína í Vest-
mannaeyjum. Byrjaði liann þá
þegar með óvenju miklum kjarki
og víðsýni og í stórum stíl á
verslun og útgerð. 1 Vestmanna-
eyjum var þá lítið um verslun.
Þar var algert selstöðuverslunar-
lag og peningar þektust ekki.
Gísli J. Johnscn sýndi fljótt, að
hann var rjettur maður á rjett-
um stað. Verslunin jókst samfara
útgerðinni, og ekki leið á löngu
áður en firrnað fór að láta til
sín taka um framkvæmdir. Árið
1904 keypti það fyrsta mótorbát,
sem til Suðurlands kom, og hefir
mótorbátaútgerð síðan orðið einn
ríkasti þáttur í íslenskri útgerð
og ekki síst í útgerð Vestmann-
eyinga. Árið 1908 reisti það stórt
frystihús með nýtísku sniði, sem
einnig var liið fyrsta í sinni röð
lijer á landi. Hefir firmað síðan
flutt inn frystivjelar og sjeð um
útbúnað fjölda frystihúsa víðs-
vegar um landið. Það á einnig
stórt frystihús á Siglufirði.
Árið 1913 reisti það fyrstu
fiskimjölsverksmiðju hjer á
landi og hefir rekið þá fram-
leiðslu síðan og bætt við annari
verksmiðju i Keflavík. Hefir
fiskimjölsframleiðsla aukist stór-
um lijer á landi síðan, þannig að
síðasta ár var jafnvel meiri út-
flutningur fiskimjöls en ullar.
Loks hefir firmað lengi rekið lýs-
isbræðslu og er nú að reisa vand-
aða bræðslustöð.
Árið 1920 bygði firmað fyrstu
olíugeymana hjer á landi, því að
þá var auðsjeð orðið, að verslun
með olíu, tunnuflutninga-aðferð-
in, gat ekki lengur haldið áfram
með sama móti og áður. Þótt
þetta væri i smáum stíl, liafði það
þó sin áhrif. Olíuverð lækkaði og
þörfin óx fyrir greiðari og betri
oliusölu.
Firmað hefir upp á siðkastið
aukið útgerð sína allmikið, feng-
ið stærri og fullkomnari mótor-
báta til fiskveiðanna og gert þá
út frá Sandgerði á sumum tím-
um árs. Mótorbátar þess eru hin-
ir fyrstu, sem útbúnir liafa verið
með loftskeytatækjum til að
taka á móti veðurskeytum.
Loks liefir firmað til að geta
veitt starfsfólki sínu atvinnu alt
árið úm kring, sett á slofn mikla
síldarútgerð á Siglufirði.
Verslunin í Vestmannaeyjum
hefir lengst af starfað á sama
hátt og byrjað var, en aukið og
bætt við reksturinn að sama
skapi og kaupstaðurinn liefir
stækkað og framkvæmdir vaxið.
Verslaði liún til að byrja með
með allskonar vörur og gerir það
enn. Varð hún til að leggja
grundvöll að allri peningaversl-
un í Eyjum með því að kaupa
og selja við staðgreiðslu. Strax
eftir að verslunin hafði hafið
göngu sína með hinni ötulu for-
ystu Gísla J. Jolmsen, tók verð-
lag að breytast mjög til batn-
aðar frá því sem áður var.
Lækkuðu útlendar vörur, en inn-
lendar hækkuðu. Ilinar miklu
framkvæmdir Gísla ráku síðan
hver aðra alt fram á þennan dag.
Gísli J. Johnsen er fæddur 10.
mars 1881 og var því aðeins 18
ára, þegar hann byrjaði verslun
sína, enda varð liann 1901 að fá
sjerstakt verslunarleyfi. Árið
1907 var liann skipaður ræðis-
maður Breta í Vestmannaeyjum.
Gísli hefir verið húsettur hjer í
Reykjavík síðan 1919 enda þótt
hugurinn liafi lengst af verið í
Vestmannaeyjum, þar sem hann
liefir unnið hið mikla og ósjer-
hlifna starf sitt fyrir viðgangi og
framförum bygðarlags síns. Má
meðal hinna mörgu áhugamála
lians nefna spítalamálið, sem
liann barðist mjög ötullega fyr-
ir og mun liinn vandaði spílali
Eyjanna að mestu kominn úpp
fyrir forgöngu lians. Vitann á
Stórhöfða hvatti liann mjög til
að byggja og framkvæmdi það
verk fyrir landstjórnina árið
1906. Þá átti liann frumkvæðið
að því, að stofnað var talsíma-
fjelag í Eyjunum og varð það til
þess að koma á símasambandi
við land, en þann síma kostaði
fjelagið að öllu leyti í fyrstu, en
síðar keypti landsiminn hann.
Má fullyrða, að simasamband
milli lands og Eyja hefði dregist
lengur, ef talsimafjelagið hefði
ekki verið stofnað.
Við firmað starfa nú Gisli
Friðrik sonur lians og Ástþór
Matthíasson tengdasonur lians,
sem forstjórar.
Verslun G. J. Johnsen hefir
haft á hendi afgreiðslu skipa i
Eyjum um langan tíma. Af-
greiðslu Bergenska gufuskipafje-
lagsins hefir hún liaft frá byrjun
og í 20 ár afgreiðslu D.F.D.S..
Skip tli firmans hleður við bryggju i Vestmannaegjiun.
Fiskþurkun á stakkstœðum G. J. Johnsen í Vestmannaegjum.