Fréttablaðið - 26.09.2009, Blaðsíða 56
32 26. september 2009 LAUGARDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Hvað
hef é
g
áhygg
jur?
GEISP! Þú vilt semsagt meina að fólk
elskist með
lokuð augun?
Það hlýtur
bara að vera.
Lít ég út fyrir
að vera fífl!?!
Nei.
En útlitið segir
ekki alla söguna!Viltu verða kærastinn
minn
Bank
Viltu setja þetta í
skúffuna þína?
Ég á
þessa
ekki.
Nú, hver á
þá?
Ég
veit
ekki.
Annað hvort á Sigga, Soff-
ía, Guðrún, Gyða, Eyrún,
Sigrún, Maggý, Gróa, Lilja,
Sara, Eva, Kristín eða
Gunnhildur þá.
Jæja, það
þrengir
hringinn.
Nema einhver
af hinum vin-
konum mínum
eigi þá...
Þið sjáið að
það þarf lítið að
sinna lóðinni...
Fast-
eigna-
sali
Til
sölu
Bank
Síðasti fimmtudagur var einstaklega erf-iður og eftir vinnu ákvað ég að setjast inn á fámennan pöbb í miðbæ Reykja-
víkur. Ég var ekki byrjaður á bjórnum þegar
maður á fertugsaldri gekk inn. Maðurinn
var ringlaður, með þykkt alskegg og sítt hár.
Þá var hann stirður, virtist vannærður og
ég veitti því athygli að hann var klæddur í
smellubuxur.
Hann settist við hliðina á mér og spurði
hvaða ár væri. „2009,“ svaraði ég og maður-
inn starði orðlaus á mig. Ég pantaði handa
honum bjór og þegar barþjónninn rukkaði
800 krónur sprakk hann úr hlátri.
Hann sagðist koma frá árinu 1999
og að þá fengju menn afgang þegar
þeir borguðu einn rauðan fyrir
bjór. Ég tók sopa og spurði hvort
hann hefði uppgötvað leið til að
ferðast um tíma og rúm. Hann
sagði að málið væri einfaldara
en það. Í hysteríunni sem skapaðist vegna
2000-vandans skreið hann ofan í neðanjarðar-
byrgi. Þar dvaldi hann síðustu ár, borðaði
þurrmat og veitti sjálfum sér félagsskap.
Hann spurði hvort eitthvað merkilegt
hefði gerst síðustu ár. „Ekkert sérstakt,“
svaraði ég og bætti við að tími Jóhönnu væri
kominn – rétt eins og tími Steingríms J.,
bankarnir hefðu verið einkavæddir aðeins
til að vera þjóðnýttir aftur, Sigmundur Ernir
væri orðinn þingmaður – eins og Guðmundur
Steingrímsson, strætókerfið væri ennþá glat-
að og að ÍA væri núna slakt lið í fyrstu deild
fótboltans og að Selfoss ætti lið í úrvalsdeild
á næsta ári.
„Og hvað?“ spurði ringlaði maðurinn og
gerði tilraun til að vera fyndinn: „Er Davíð
byrjaður aftur með útvarp Matthildi?“
„Tja, nei,“ svaraði ég, kláraði bjórinn og
stóð upp. „Hann er ritstjóri Morgunblaðs-
ins.“
Fortíðarmaðurinn
NOKKUR ORÐ
Atli Fannar
Bjarkason
Verð kr. 265.000.-
Hrein fjárfesting ehf
Dalbraut 3 105 reykjavík • rainbow@rainbow.is
Sími verslun 567 7773 . kvöld og helgar 893 6337
www.rainbow.is
Rainbow
Bjóðum nokkrar Rainbow á 186,000
Eða gömul Rainbow upp í nýja tilboð 155,000
Eigum einnig notaðar yfi rfarnar rainbow
með ábyrgð verð 80.000 tilboð 58.000
meðan byrgðir endast.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki