Fréttablaðið - 26.09.2009, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 26. september 2009 13
UMRÆÐAN
Ebba Margrét Magnúsdóttir
skrifar um getnaðarvarnir
Alþjóðlegi getnaðarvarnadagur-inn sem er í dag, er alþjóðleg
herferð sem miðar að því að skapa
heim þar sem hver einasta þung-
un er velkomin. Tilgangurinn er
að aðgengi að getnaðarvörnum sé
sem best og að fræðsla um notkun
þeirra sé sem mest.
Kostnaður
við getnaðar-
varnir hefur
aukist töluvert
í kjölfar efna-
hagsástands-
ins. Ungt fólk
sem hefu r
minna á milli
handanna finn-
ur fyrir þessu.
Hafa læknar
orðið varir við
að konur vilji
skipta yfir í
ódýrari getnaðarvarnir og jafnvel
að þær hafi hætt að nota þá vörn
sem þær voru að nota áður vegna
fjárskorts. Það hefur lengi verið
draumur minn að við gætum tekið
upp áherslur Breta, en þar í landi
eru getnaðarvarnir niðurgreiddar
að fullu og hef ég lengi vonast eftir
að svo geti orðið hjá konum yngri
en 25 ára hér á landi.
Á síðasta ári voru framkvæmd-
ar um 950 fóstureyðingar á Íslandi
og þar af höfðu um 34% kvenn-
anna farið áður í fóstureyðingu.
Það vekur upp spurningar hvort
þær hafi ekki verið að nota getn-
aðarvarnir sem skyldi. Það er til-
finning starfandi félagsráðgjafa
á Kvennadeild Landspítalans að
umræða um fjárhag og afkomu
komi nú mun sterkara inn í við-
tölin sem eiga sér stað þegar kona
sækir um fóstureyðingu.
Öll fræðsla um getnaðarvarnir
og kynlíf ungs fólks hvar sem
hún birtist er til góðs. Auka þarf
aðgengi að getnaðarvörnum og
gera þarf tilraun til að draga úr
kostnaði þeirra. Það ætti að skila
sér í fækkun ofangreindra aðgerða.
Þannig gætum við í raun sparað
fyrir samfélagið í heild svo ekki sé
talað um þá vanlíðan og erfiðleika
sem fylgja ótímabærum þungun-
um og afleiðingum þeirra. Það er
ekki síst á krepputímum sem við
þurfum að taka höndum saman
og tala við ungt fólk um getnaðar-
varnir og þannig koma í veg fyrir
ótímabæran getnað, þungun og
kynsjúkdóma. Í sameiningu getum
við sparað þjóðfélaginu fé ef vel er
á málum haldið. Forvarnir skila
árangri í framtíðinni því megum
við ekki gleyma.
Höfundur er læknir á LSH og sér-
fræðingur í kvensjúkdómum og
fæðingarhjálp.
Alþjóðlegi
getnaðarvarna-
dagurinn
EBBA MARGRÉT
MAGNÚSDÓTTIR
er vettvangur
fjölbreyttrar fræðslu sem
Nýja Kaupþing mun standa
fyrir og hefst nú í haust með
gagnlegum fyrirlestrum og
námskeiðum.
Með stofnun vill
bankinn undirstrika mikilvægi
þess að komið sé til móts við
þörf viðskiptavina fyrir meiri
fræðslu og betri leiðsögn við
breyttar aðstæður í nýju efna-
hagsumhverfi.
TAKTU ÞÁTT – STRAX Í DAG!
Allir sem senda okkur hugmyndir
fyrir
mánaðamótin eiga möguleika á að
fá
óvæntan glaðning sendan heim.
SENDU OKKUR
HUGMYNDIR
Á KAUPTHING.IS
Sendu okkur þína hugmynd
Við hvetjum þig til að senda okkur
hugmyndir þínar að umfjöllunarefni.
Þannig tekur þú þátt í að móta með okku
r
það sem í boði verður. Til að byggja upp
traustan þekkingargrunn þarf hugmyndir
úr öllum áttum.
Bjóðum upp á gistingu á besta stað í Bangkok,
Hua Hin og Phuket. Nóttin frá 5.000 kr. á mann
í tvíbýli á 4 stjörnu hóteli. Fjölmargir aðrir
gistimöguleikar í boði.
Ferð.is býður upp á ferðir til Tælands,
alla daga, allt árið, á frábæru verði.
Sjá nánar á www.ferd.is ferd@ferd.is | 570 4455
149.990 kr.
flug á mann, fram og til baka með flugvall
arsköttum
Verð frá
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
V
IT
4
73
87
0
9/
09