Fréttablaðið - 26.09.2009, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 26.09.2009, Blaðsíða 8
8 26. september 2009 LAUGARDAGUR SLYS Tveir menn sem leitað var að við Hvalfell inni af Botnsdal í Hvalfirði í fyrrinótt fundust heilir á húfi eftir nokkurra klukkustunda leit áttíu björgunarsveitarmanna í slagviðri í fyrrinótt. Mennirnir höfðu beygt til vest- urs af svokallaðri Uxahryggja- leið sem liggur frá Þingvöllum í Borgarfjörð. Slóðinn sem þeir óku liggur að Hvalvatni inni af botni Hvalfjarðar. Þegar jeppabifreið þeirra festist yfirgáfu þeir bílinn og ætluðu sér að ganga í Botnsdal en villtust fljótlega. Þeir létu ætt- ingja vita af sér um tíuleytið og höfðu þeir samband við björgunar- sveitir um miðnætti. Mennirnir voru í símasambandi um nóttina en vissu ekki hvar þeir voru, enda myrkur, ausandi rign- ing og þeir án staðsetningartækja. Þeir urðu viðskila og fannst sá fyrri um hálffjögur en sá síðari ekki fyrr en undir morgun. Menn- irnir voru nokkuð hraktir eftir næturgönguna. Að sögn Frímanns Andréssonar hjá svæðisstjórn björgunarsveita á höfuðborgarsvæðinu hefði tekið miklu styttri tíma að finna menn- ina hefðu þeir haldið kyrru fyrir í bílnum, en bíll björgunarsveitar Borgarfjarðar ók fram á hann þegar klukkan tvö í fyrrinótt. - sbt Áttíu manns leituðu villuráfandi manna í Hvalfirði: Yfirgáfu bílinn eftir að hann festist Leitað í Hvalfirði Hvalfjörður Hvalvatn Þingvellir Reykjavík Botnsdalur SPÓI LÓA 100% Merino ull. Þykkur og kósý. 100% lífrænn bómull. ullarnærföt samfella Verð bolur: 4.200 - 5.800 kr. Verð buxur: 3.500 - 4.500 kr. Verð bolur: 3.200 kr. Verð buxur: 2.800 kr. Verð: 2.800 kr. VA LHÖL L 100% Merino ull. ullarnærföt Hann er 73 ára, ekki gráhærður (aldrei litað á sér hárið). Ekki með hrukkur (aldrei farið í andlitslyftingu). Aldrei bakveikur og við hestaheilsu … allt dansinum að þakka því dansinn er allra meina bót. Kennarinn heitir Heiðar Ástvaldsson og hann hefur fundið tíma á þriðjudögum klukkan 19 til að hjálpa landsmönnum að rifja upp gömlu góðu sporin. Eitt okkar besta danspar er í 12 daga golfferð á Spáni fyrir rúmar 400 þúsund, þú getur dansað árum saman hjá okkur fyrir slíkan pening! Innritun í síma 551-3129 eða í heidarast@gmail.com á milli klukkan 16-19 daglega til laugardagsins 03. október. 50 ára og eldri Upprifj unarnámskeið! Reyndasti danskennari Íslandssögunnar kennir Auglýsingasími – Mest lesið 1 Hvað heita ritstjórar Morgun- blaðsins? 2 Hvar á Íslandi átti að taka upp kvikmyndina Enemy Mine árið 1984? 3 Hversu oft hefur málningu verið slett á hús Hreiðars Más Sigurðssonar eftir bankahrunið? SJÁ SVÖR Á SÍÐU 54 SAMGÖNGUR Vestmannaeyjaferj- an Herjólfur er á heimleið eftir slipptöku á Akureyri. Hún fer fyrstu ferð sína á milli lands og Eyja nú í morgunsárið. Ferjan Baldur, sem leysti Herjólf af, snýr til baka og hefur á ný sigl- ingar yfir Breiðafjörð. Það má segja að vandræða- tímabili sé lokið þar sem Baldur hentaði ekki vel til siglinga á leiðinni á þessum árstíma. Ferð- ir Baldurs féllu ítrekað niður og tafir urðu vegna þess að skipið hentaði ekki höfninni í Eyjum til affermingar. Vestfirðingar hafa líka saknað Baldurs sem sam- göngutækis. - shá Samgöngur í samt lag: Herjólfur heim eftir slippinn VIÐSKIPTI „Þegar Exista seldi Bakka- vör tók steininn úr. Þá þvarr allt traust og við hjá bankanum misstum endanlega þolinmæðina,“ segir Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Nýja Kaupþings. Bankinn kærði í gær forsvars- menn Exista auk nokkurra starfs- manna Deloitte og Logos til sérstaks saksóknara vegna hlutafjárhækkun- ar Exista í desember í fyrra og sölu félagsins á rúmlega fjörutíu pró- senta hlut í Bakkavör fyrir um hálf- um mánuði. Lögmannsstofurnar sáu um tilkynningu til hlutaskrár vegna hlutafjárhækkunarinnar. Nýja Kaupþing telur hegningar- lög hafa verið brotin en viðurlög við þeim hljóðar upp á allt að sex ára fangelsisdóm. Bankinn mun jafn- framt leita viðeigandi einkaréttar- legra úrræða samhliða kærunni, segir í tilkynningu hans. Bankinn átti veð í öllum hlut- um félags Lýðs, starfandi stjórnar- formanns Exista, og Ágústs Guð- mundssona, forstjóra Bakkavarar, í Exista. Við hlutafjárhækkunina hafi veðin lækkað í tíu prósent úr fjörutíu. Þá hafi salan á Bakka- vör verið brot á lánasamningum Exista. Finnur segir bæði ólöglega stað- ið að hlutafjárhækkuninni auk þess sem leita hafi átt samþykkis lánar- drottna vegna sölunnar á Bakkavör. Þess var ekki leitað. „Viðræður hafa staðið yfir mán- uðum saman um fjárhagslega endur- skipulagningu Exista. Við hefðum gjarnan viljað vinna þetta í sátt við aðra kröfuhafa. En viðræður hafa dregist von úr viti. Okkur sýnist samningsvilji forsvarsmanna félags- ins vart til staðar,“ segir Finnur. Þolinmæði kröfu- hafa Exista þrotin Nýja Kaupþing hefur kært stjórnendur Exista til sérstaks saksóknara vegna ýmissa brota. Bakkavararbræður hafa ekki séð kæruna og hugsa sig um. FRÁ STJÓRNARFUNDI EXISTA Nýja Kaupþing og aðrir innlendir kröfuhafar vilja setja stjórnendur Exista af og taka félagið yfir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Þegar hlutafé Exista var aukið um fimmtíu milljarða í fyrra greiddi BBR ehf., félag í eigu Lýðs, stjórnar- formanns Exista, og Ágústs Guð- mundssona, forstjóra Bakkavarar, einn milljarð króna fyrir það. Kaupin jafngilda tveimur aurum á hlut en BBR eignaðist um áttatíu prósenta hlut í félaginu. Eignarhlutur annarra hluthafa þynntist verulega. Í hinu tilvikinu var 39,62 prósenta hlutur Exista í Bakkavör seldur félagi bræðranna fyrir 8,4 milljarða króna. Exista lánaði þeim fyrir kaupverðinu með hagstæðum vöxtum. Lögðu þeir ekkert eigið fé fram við kaupin. DEILUMÁL KAUPÞINGS OG EXISTA Innlendir kröfuhafar hafa um nokkurra mánaða skeið krafist upp- stokkunar á Exista, að þeir Erlend- ur Hjaltason og Sigurður Valtýs- son, forstjórar félagsins, fari frá og félagið verði tekið yfir. Í kjölfar- ið yrði Exista leyst upp. Einu eign- ir félagsins eru Skipti, móðurfélag Símans, tryggingafélögin VÍS og Lífís, Öryggismiðstöðin og eigna- leigufyrirtækið Lýsing. Félagið var stærsti hluthafi Kaupþings og var umsvifamikið á erlendum mörkuð- um þar til í fyrrahaust þegar ríkið tók Kaupþing yfir og eignahluturinn varð að engu. Erlendir kröfuhafar hafa á móti viljað fara sér hægar. Finnur segir málið hafa strand- að á tregðu helstu eigenda Exista. Spurning sé um vikur hvenær örlög félagsins ráðist. „Við höfum ekki séð neina ákæru. Ég vil því ekki tjá mig um hana. En það eru vonbrigði að bankinn vilji fara þessa leið,“ segir Ágúst Guð- mundsson, forstjóri Bakkavarar. „Það er best fyrir okkur að sjá hvað þeir eru með og taka málefnalega afstöðu til þess þegar þar að kemur.“ Ekki náðist í Lýð Guðmundsson, stjórnarformann Exista, við vinnslu fréttarinnar. jonab@frettabladid.is VEISTU SVARIÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.