Fréttablaðið - 26.09.2009, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 26.09.2009, Blaðsíða 37
LAUGARDAGUR 26. september 2009 3 Vaka rekur eitt öflugasta dekkjaverkstæði landsins og býður mikið úrval af bæði nýjum og notuð dekkjum á góðu verði. Ný og notuð dekk á verði fyrir þig Umfelgun og alhliða dekkjaþjónusta – Á VERÐI FYRIR ÞIG Skútuvogi 8 104 Reykjavík vakahf@vakahf.is OPIÐ: Alla virka daga 8.00-18.30 Laugardaga 10.00-14.00 Sími 567 6700 Fax 567 3099 www.vakahf.is ÓDÝRASTI R Í UMFELGU N* * S am kv æ m t k ön nu n A SÍ , a pr íl 20 09 (1 3- 15 “) . ERUM FLUTT AÐ SKÚTUVOG I 8 Léttsveitin, oft kölluð kórinn endalausi vegna þess að í sveit- inni eru um 100 konur sem saman- lagt vega um sjö tonn, ætla að flytja Grindvíkingum Óska- lög sjómanna í dag. Tónleikarn- ir verða í Grindavíkurkirkju og hefjast klukkan fimm. Dagskrá- in verður að mörgu leyti svip- uð þeirri sem kórinn flutti fyrir fullu Háskólabíói í vor en tilhlýði- legt þótti að flytja efnið í sjávar- plássinu Grindavík. Meðal laga sem kórinn mun syngja eru Í dag skein sól, Frost- rósir, Heyr mína bæn, Sjómanna- syrpa, Brennið þið vitar og fleiri lög sem flutt voru í þeim gamla og góða þætti Á frívaktinni á árum áður. Hópurinn mun halda á Suður- nesin árla dags og sækja heim bæði Keflavík og Sandgerði áður en haldið verður til Grindavíkur. Þeir sem vilja finna kraft og heyra söng hundrað föngulegra kvenna ættu því að gera sér glað- an dag á Suðurnesjum. Ráð væri að skella sér í Bláa lónið og koma svo nýbaðaður og fínn á tónleik- ana. Með í för verða Aðalheiður Þorsteinsdóttir píanóleikari, Tómas R. Einarsson bassaleik- ari og stjórnandinn, Jóhanna V. Þórhallsdóttir. karen@frettabladid.is Sjö tonna léttsveit flytur óskalög sjómanna í dag Þeir sem vilja finna kraft og heyra söng hundrað föngulegra kvenna ættu að gera sér glaðan dag og skella sér á Suðurnesin. Þar verður á ferð Léttsveitin, oft nefnd kórinn endalausi, með viðamikla dagskrá helgaða óskalögum sjómanna. Jóhanna V. Þórhallsdóttir stjórnandi verður með kórinn endalausa í sjó- mannastemningu í Gríndavíkurkirkju klukkan 17 í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Framsækið og nýtt kennsluefni í íslensku verður kynnt í dag. NORDICPHOTOS/GETTY Evrópski tungumáladagurinn er í dag. Í tilefni af Evrópska tungumála- deginum er blásið til ráðstefnu á Hótel Sögu. Stofnun Vigdísar Finn- bogadóttir og Félag enskukenn- ara standa að skipulagningu. Auk þess verður Ísbrú, fagfélag kenn- ara sem kenna erlent mál á öllum skólastigum, með námskynningu frá klukkan tvö til hálf sex á ann- arri hæð í ráðstefnuhluta hótels- ins. Hugmyndin að námsefniskynn- ingunni kom til vegna þess hve mikið af nýju kennsluefni hafði orðið til hjá félagsmönnum. Aug- lýst var eftir fólki sem hafði áhuga á að kynna kennsluefni. Í ljós kom að enginn hörgull var á skemmti- legu og fjölbreyttu efni hér á landi. Fjöldi fólks hefur unnið að fram- sæknum kennsluaðferðum og verð- ur hægt að kynna sér hluta þess á námskynningunni. Dagskrána má kynna sér á síðunni ki.is/isbru. - kdk Kynna nýtt námsefni Dagur heyrnarlausra er haldinn hátíðlegur í dag. Í tilefni dagsins verður opið málþing í sal 132 í Öskju, húsnæði Háskóla Íslands, frá klukkan eitt til fimm. Þema málþingsins er svokallað Castberggård-heilkenni en Tomas Kold frá Danmörku mun flytja fyrirlestur um það. Þá verður flutt ljóðið Íslenski fán- inn er okkar land á táknmáli. Málþingið verður bæði túlkað yfir á íslenskt táknmál og talmál. Allir eru velkomnir á þingið. - kdk Dagur heyrnarlausra MÁLÞING FER FRAM Í ÖSKJU Í DAG Í TILEFNI AF DEGI HEYRNARLAUSRA.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.