Fréttablaðið - 26.09.2009, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 26.09.2009, Blaðsíða 54
30 26. september 2009 LAUGARDAGUR timamot@frettabladid.is 70 ára afmæli Sjötug verður á morgun Guðrún Kristín Magnúsdóttir rithöfundur, fyrrum fyrirsæta (www.mmedia.is/odsmal/cv.shtml). Guðrún hefur hlotið fjölda verðlauna, m.a. f. leikrit, smásögur og minjagripa- hönnun. Vefútgáfu list- og hugverka Guðrúnar er að fi nna á mmedia.is/odsmal/ sogur.html og mmedia.is/odsmal/list%20- %20%20art%20by%20Gudrun.html. Hagþenkir styrkir „Óðsmál in fornu“, vefútgáfu á www.mmedia.is/ods- mal, nýtt rannsóknaverkefni Guðrúnar: guðspeki í fornum sið, túlkun táknmáls goðsagna, orðsifjar, ginnungagap og mannleg vitund. OLIVIA NEWTON-JOHN ER 61 ÁRS Í DAG. „Ég er hamingjusöm, og ég held að hamingjan haldi manni ungum.“ Olivia Newton-John er söng- kona og leikkona, þekktust fyrir hlutverk sitt í kvikmynd- inni Grease. MERKISATBURÐIR 1580 Francis Drake lýkur hnattsiglingu sinni þegar Gullna hindin kemur til hafnar í Plymouth. 1915 Við Stjórnarráðshúsið í Reykjavík er afhjúpaður minnisvarði um Kristján IX. konung á afmælisdegi Kristjáns X. 1942 Ríkið leggur niður einka- sölu sína á bifreiðum, sem það hafði haft í sjö ár. 1959 Í Reykjavík mælist met- úrkoma á einum sólar- hring, 49,2 millimetrar. 1960 Á leið sinni vestur um haf kemur Harold Macmillan, forsætisráðherra Breta, við á Keflavíkurflugvelli og ræðir við starfsbróður sinn, Ólaf Thors, um land- helgismálið. Á bilinu tíu til fimmtán þúsund manns gengu mótmælagöngu niður Laugaveg þennan dag árið 2006 til þess að mótmæla stóriðjustefnu ríkisstjórnar- innar. Þetta voru fjölmennustu mótmæli í landinu frá því um 30 þúsund manns söfnuðust saman á Lækjartorgi hinn 24. maí 1973 til að mótmæla her- skipaíhlutun Breta í íslenskri lögsögu, þegar landhelgisdeil- an stóð sem hæst. Mikið fjölmenni gekk með Ómari Ragnarssyni gegn framkvæmdunum við Kárahnjúka. Ómar gekk í fararbroddi ásamt Vig- dísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands, og Guðmundi Páli Ólafssyni náttúrufræðingi. Straumur fólks niður Laugaveginn virtist óendanlegur, líkt og þungbeljandi jökulfljót. Ómar Ragnarsson líkti sjálfum sér og hinum mótmælendunum við litla vatnsdropa sem saman mynduðu stóra og óstöðvandi heild. Þar sem engin bréfa- lúga var á Alþingishús- inu afhenti Ómar í lok dagskrárinnar húsverði í Alþingishúsinu bréf með tillögum sínum að þjóðarsátt þar sem tilgreint var hvernig hætta mætti við Kárahnjúkavirkjun. Einnig var gengið á Ísafirði, Akureyri og Egils- stöðum og alls staðar fóru mótmælin friðsam- lega fram. ÞETTA GERÐIST: 26. SEPTEMBER 2006 Stóriðjustefnu mótmælt MÓTMÆLT Ómar Ragnarsson, Vigdís Finn- bogadóttir og Guðmundur Páll Ólafsson. „Við erum viss um að það reynist mjög gefandi fyrir kollega okkar á Norður- löndunum að koma til Íslands og verða vitni að því góða starfi sem við höfum unnið hér. Það er þó ekki síður spenn- andi fyrir okkur að læra af þeim, því þar kennir ýmissa grasa,“ segir Ingi- björg Bjarnardóttir, lögmaður og for- maður Sáttar, félags um sáttamiðlun. Ingibjörg gegnir einnig formannsstöðu í félaginu Nordisk Forum for Mekling og Konflikthåndtering (NFM), regnhlífar- samtökum sáttamanna á Norðurlönd- unum. Samtökin halda ráðstefnu sína í fyrsta sinn hér á landi á Grand hóteli dagana 1. til 3. október næstkomandi. Sátt var sett á laggirnar af tuttugu stofnfélögum árið 2005. Helsti hvatinn að stofnun félagsins var sú sannfæring þeirra, sem starfa við lausn ágreinings- mála, að bjóða þyrfti deiluaðilum upp á fleiri úrræði og aðferðir til að leiða ágreining sinn til lykta en þær aðferð- ir sem félagsmálastofnanir og dómstól- ar geta boðið. Tíu Íslendingar, félags- ráðgjafar og lögfræðingar, sóttu ráð- stefnu NFM í Svíþjóð í september 2004 og hvöttu í kjölfarið annað fagfólk til samstarfs við þá um stofnun félagsins. Hugmyndafræðin að baki sáttamiðl- un er að deiluaðilar séu sérfræðingar í sinni deilu. Þeir séu því best til þess fallnir að finna lausn á henni sem er viðunandi fyrir báða aðila. Slíkri miðl- un hefur verið beitt hjá flestum Norður- landaþjóðunum, í Evrópu, Norður- Ameríku og Ástralíu, meðal annars í fjölskyldumálum, nágrannadeilum, árekstrum á vinnustað og skólum og í opinberum málum, til að mynda vegna afbrota ungra afbrotamanna og deilna milli ríkja og ólíkra menningarheima. Um það bil 65 meðlimir eru skráðir í Sátt. Ingibjörg gerir ráð fyrir að milli 130 og 140 sáttamenn frá öllum Norður- landaþjóðunum sæki ráðstefnuna í byrj- un október. „Hópurinn hér á Íslandi er mjög duglegur og hefur komið miklu til leiðar í þessum málum. Sáttamiðl- unarleiðin er þó enn mun algengari og viðurkenndari annars staðar á Norður- löndunum, en við vonum að þessi ráð- stefna smiti frá sér út í þjóðfélagið,“ segir Ingibjörg. Í apríl 2007 ákvað dómstólaráð að bjóða skyldi aðilum að einkamáli, sem er til meðferðar fyrir héraðsdómstól, upp á sáttamiðlun fyrir dómi. Flest allir héraðsdómarar hafa nú lokið þriggja daga námskeiði í sáttamiðlun sem Knut Petterson og Kristin Kjelland-Mördre, bæði dómarar við Oslo Tingrett, hafa haldið hér á landi. Einnig hafa nokkr- ir skólar leitast við að beita aðferðum sem svipar til aðferða sáttamiðlunar við lausn ágreinings sem kemur upp í skólastarfinu eða innan vébanda skól- anna. Katrín Jakobsdóttir menntamála- ráðherra heldur erindi á ráðstefnunni föstudaginn 2. október. „Innan mennta- málaráðuneytisins ríkir mikill áhugi á þessum málum. Við erum að feta okkur áfram en eigum þó nokkra vinnu eftir enn,“ segir Ingibjörg. kjartan@frettabladid.is RÁÐSTEFNA SAMTAKA SÁTTAMANNA Á NORÐURLÖNDUM: HALDIN Á ÍSLANDI Höfum komið miklu til leiðar GOTT SAMSTARF Ingibjörg Bjarnardóttir fyrir miðju ásamt stjórn Sáttar. Frá vinstri: Ingiríður Lúðvíksdóttir, Ragnheiður Elfa Arnarsdóttir og Valgerður Magnúsdóttir. Með þeim er Björk Bjarkadóttir lengst til vinstri sem heldur utan um ráðstefnuna fyrir Iceland Travel. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA AFMÆLI ÓLAFUR JÓHANN ÓLAFSSON rithöfundur er 47 ára í dag. GUNNAR SVAVARSSON, formaður framkvæmda- ráðs Hafnar- fjarðar, er 47 ára í dag. MICHAEL BALLACK fót- boltamaður er 33 ára í dag. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamamma, amma og langamma, Anna Árnadóttir Bólstaðarhlíð 31, Reykjavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Sóltúni þriðju- daginn 22. september. Hún verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 2. október klukkan 13.00. Jón Tómasson Elínborg Jónsdóttir Valgerður Katrín Jónsdóttir Margrét Jónsdóttir Ragnar Sigurðsson Guðmundur Árni Jónsson Lára Nanna Eggertsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Skilti á krossa og legsteina skilti.123.is - 588 9960 Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson Útfararþjónusta Davíðs Ósvaldssonar ehf. Davíð Ósvaldsson Útfararstjóri S. 896 6988 / 553 6699 Óli Pétur Friðþjófsson Útfararstjóri S. 892 8947 / 565 6511 MOSAIK Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts elskulegrar móður okkar, tengdamóður, móðursystur, ömmu og langömmu, Kristveigar Björnsdóttur Safamýri 38, Reykjavík. Öllum þeim sem önnuðust hana í veikindum hennar eru færðar alúðar þakkir. Björn Jóhannsson Guðrún R. Daníelsdóttir Sigríður Jóhannsdóttir Baldvin M. Frederiksen Sveinn Jóhannsson Guðrún Jóhannsdóttir Þorvaldur Bragason Gunnar Haraldsson Ásthildur Guðjohnsen barnabörn og barnabarnabörn. Tilkynningar um merkis- atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.