Fréttablaðið - 26.09.2009, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 26.09.2009, Blaðsíða 4
4 26. september 2009 LAUGARDAGUR Eldur kom upp í Höfða í gærdag, einu sögufrægasta húsi landsins. Borgarstarfsmenn voru staddir í húsinu og urðu eldsins varir um tuttugu mínútur í sex, en fram til klukkan fjögur hafði verið þar opið hús í tilefni af því að hundrað ár eru liðin í vikunni síðan fyrst var flutt inn í Höfða. Allt tiltækt slökkvilið var sam- stundis kallað út og stuttu síðar bárust fréttir af brunanum til almennings. Óvíst er hvað olli eldinum, sem kviknaði á háalofti hússins og barst í þak þess. Eftir því sem næst verður komist var rafkerfið endurnýjað í fyrra. Slökkviliði tókst að hemja logana, sem stóðu í verstu vindátt og komu upp aftur og aftur í gömlu timbrinu, og slökkva á um klukku- stund. Skemmdir urðu því litlar, miðað við þau sögulegu menningar- verðmæti sem í húsinu voru og hefðu getað glatast. Ómögulegt er að leggja mat á þau. „Við vorum með einvala lið frá borginni, lögreglu og svo komu sendibílar til að bjarga öllum verðmætunum og það tókst. Húsið er dýrmætt en guð minn góður, það sem var inni í því!“ sagði Jón Viðar Matthíasson slökkviliðs- stjóri. Þökk sé skjótum samhæfðum viðbrögðum gátu viðstaddir því slökkt eldinn og bjargað verð- mætum á sama tíma. „Það óðu bara allir reyk og brennistein þarna inni,“ sagði Jón Viðar. Eld- varnir hefðu verið ágætar í hús- inu, en svona gersemar kölluðu á „eilífðar eldvarnir“. Þess má geta að borgarfulltrúar úr ýmsum flokkum mættu á vett- vang og gátu þó sameinast um að bjarga þessum verðmætum. Svarnir andstæðingar bisuðu við að bera þungar mublur saman í rigningunni. Kjartan Magnússon borgarfull- trúi segir brunann sýna fram á að koma þurfi upp úðakerfi í mikil- vægum gömlum húsum: „Það hefði bjargað okkur í brunanum í Austurstræti.“ Þegar búið var að slökkva eld- inn unnu slökkviliðsmennirnir áfram. Áður en þeir fóru heim þurfti meðal annars að sjúga upp vatn úr gólfi og koma þannig í veg fyrir vatnsskemmdir. Höfða var bjargað. klemens@frettabladid.is Ríkisendurskoðun er sjálfstæð eftirlitsstofnun sem starfar á vegum Alþingis. Meginhlutverk hennar er að endurskoða ríkisreikning og reikninga ríkisaðila, hafa eftirlit með og stuðla að umbótum á fjármálastjórn ríkisins og nýtingu almannafjár. Megingildi hennar eru óhæði, hlutlægni, hæfni og trúverðugleiki. Frambjóðendur í prófkjörum vegna alþingiskosninganna 2009 athugið Frestur til að skila Ríkisendurskoðun uppgjöri um kostnað af prófkjörsbaráttu rennur út 25. október nk. Hafi kostnaður frambjóðanda ekki farið fram úr 300 þús.kr. nægir að hann skili skriflegri yfirlýsingu þar um fyrir sama tímamark. Nánari upplýsingar og eyðublöð er að finna á heimasíðu Ríkisendurskoðunar, www.rikisend.is. VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 26° 18° 20° 20° 16° 19° 19° 21° 13° 15° 26° 21° 23° 32° 19° 21° 26° 18° Á MORGUN 5-10 m/s. MÁNUDAGUR Hæg breytileg átt. 6 6 5 7 10 8 8 8 9 7 1 14 8 10 8 13 11 15 14 15 15 10 2 1 3 8 8 88 6 45 STÍFUR AF SUÐVESTRI Í dag verður stíf suðvest- an átt, 10-15 m/s víðast hvar en lægir smám saman þegar líður á daginn. Bjart framan af degi austan til annars skúrir en þó snjó- eða slydduél á fjöllum og á hálendinu. Hiti 5-10 stig að deginum á láglendi en við frostmark á fjöllum. Á morgun verða vestlægar áttir, 5-10 m/s með. Stöku skúrir eða él, einkum til landsinsn Hiti við frostmark nyrðra en 5-8 stig syðra. Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur ELDUR Í HÖFÐA Höfði logaði á aldarafmælinu Eldur kom upp í einu sögufrægasta húsi landsins í gær, sama dag og byrjað var að fagna 100 ára afmæli þess. Eldurinn kom upp á háalofti meðan starfsmenn voru enn í húsinu. Eldsupptök eru ókunn en brunavarnir voru ágætar í húsinu. VATNSFLAUMUR Slökkviliðsmenn stóðu í ströngu við að þurrka gólfin eftir að slökkvistarfi var lokið. „Þetta er nú sennilega það hús í Reykjavík sem er frægast allra húsa,“ segir Guðjón Friðriksson sagnfræðingur sem fylgdist með slökkvistarfinu. „Það var franskur konsúll, Brillouin, sem hafði hér aðset- ur, sem reisti það upphaflega fyrir nákvæmlega hundrað árum og það var kallað konsúlshús þá. Hann fór fljótlega og 1914 keypti það Einar Benediktsson skáld og bjó hér í nokkur ár. Síðan voru ýmsir eigendur, Títanfélagið átti það um skeið. Síðan Matthías Einarsson læknir, og Louisa Matthíasdóttir listmálari ólst hér upp,“ segir Guðjón. Rétt fyrir seinni heimsstyrjöld keyptu Bretar húsið og gerðu að sendiráðsbústað. „Þá komu hingað mjög margir merkir menn, Churchill og Marlene Dietrich. Það er talið að hún hafi sungið í húsinu. Síðan var hér sendiherra eftir stríð sem varð var við svo mikinn draugagang að hann fór fram á að húsið yrði selt, og það varð. Síðan eiga það aðrir aðilar og Reykjavíkur- borg kaupir það á sjötta áratugnum. Þá var það komið í mikla niðurníðslu og höfðust þar jafnvel rónar við. Þá var ákveðið að gera það upp og gera að móttökuhúsi fyrir Reykjavíkurborg. Það var tekið í notkun sem slíkt á dögum Geirs Hallgrímssonar borgarstjóra á sjöunda áratugnum,“ segir Guðjón. Síðan hefur Höfði verið opinbert móttökuhús Reykjavíkur borgar og þar borið til margt merkilegt. „Langfrægastur er leiðtogafundurinn 1986 og birtust myndir af honum um allan heim. En annar atburður sem er mjög merkilegur er að þangað komu utanríkisráðherrar Eystrasaltsríkjanna 1991 og Íslendingar urðu fyrstir til að viðurkenna sjálfstæði þessara ríkja. Sú athöfn fór fram í Höfða og húsið er því mikilvægt í sögu Eystrasaltsríkjanna líka,“ segir sagnfræðingurinn. Í húsinu voru mjög merk málverk eftir þekktustu listmál- ara Íslands. Þar var og geymd gestabókin frá dögum leið- togafundarins, með undirskriftum Reagans og Gorbatsjovs og allra sem komu með þeim, á einni blaðsíðu. „Henni var nú bjargað, sem betur fer,“ segir Guðjón, glaður í bragði. VAR EITT SINN HÍBÝLI RÓNA BJÖRGUNARSTÖRF Borgarfulltrúar flestra flokka unnu saman að því að bera út verðmætin í kappi við tímann. Í RIGNINGUNNI Hanna Birna hafði í mörgu að snúast um kvöldmatarleytið og fundaði í Ráðhúsinu fram á kvöld. RÝKUR Í ROKINU Eldurinn var lífseigur og spratt jafnóðum upp og hann var slökktur. Á stundum stóð vindur beint á húsið og hefðu logarnir getað borist lengra. Rok var og rigning á köflum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.