Fréttablaðið - 26.09.2009, Blaðsíða 62
38 26. september 2009 LAUGARDAGUR
utlit@frettabladid.is
DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA
Anna Margrét Björnsson
Tískuvikan í London er nýyfir-
staðin en þar gaf að líta breska
hönnun fyrir vor og sumar 2010.
Að þessu sinni var tískuvikan
með enn glæsilegra móti en
venjulega þar sem hún hélt upp
á tuttugu ára afmæli sitt. Af
þeirri hönnun sem mesta athygli
vakti má nefna breska hönnunar-
teymið Peter Pilotto, en þeir
voru með litríka stutta kjóla, og
Burberry Prorsum sem hélt sig
nærri breskum hefðum með svöl-
um regnfrakkakjólum og háum
hælum. - amb
KVENLEGT Fallegur stuttur chiffonkjóll með belti frá Burberry. GYLLT Mjög frumleg kápa í gylltu og svörtu frá hönnunarteym-
inu Peter Pilotto.
Eitt af mínum uppáhaldsfatamerkjum er lítið franskt fyrirtæki. Það
gerir föt sem ég fíla, klassíska hluti eins og þröngar gallabuxur, flotta
gervileðurjakka og mod-legar skyrtur í anda sjöunda áratugarins. Mér
brá í brún þegar ég skoðaði nýjustu línurnar þegar fötin litu út eins og
alls kyns önnur hönnun sem maður hefur séð
á tískupöllunum undanfarið ár, eiginlega orðin
hálf „Vibskovuð“ á því. Nú er ég alls ekki að
segja að allir eigi að fíla klassískar flíkur. Það
sem ég á við er það að ef maður er að gera eitt-
hvað vel þá finnist mér meira varið í að halda í
það að gera það vel heldur en að apa eftir öllum
öðrum. Ég hugsa að þeir hlutir sem við erum
oftast hrifnust af séu þeir hlutir sem eru gerðir
af sannfæringu þeirra sem skapa þá. Við erum
öll með ólíkan fatasmekk en það sem maður
kann mest að meta hjá hönnuðum er þegar
maður veit að þeir hafi búið flíkurnar til af ein-
skærri snilldargáfu og eigin sannfæringu um
að það sem þeir séu að skapa sé snilld. Þetta er
alveg eins með fólkið sem gengur í flíkunum,
ef það hefur nógu mikið sjálfstraust til að bera
túrban, goth-greiðslu eða viðamikinn kimono í
regnbogans litum þá kann maður virkilega að
meta það. Alveg eins og það er vandræðalegt að sjá einhvern reyna að
vera eitthvað sem fer þeim ekki. Alltof margir halda það að bara með því
að versla í ákveðinni búð eða klæðast ákveðnu merki séu þeir ósjálfrátt
komnir inn á einhverskonar absúrd svalheitaplan, eða öðrum orðum, að
verða eins og allir hinir. Stóru fyrirtækin reyna líka svo oft að búa til
eitthvað „fyrir“ einhverja ákveðna hópa. Stíla inn á ungar konur, gaml-
ar konur, hnakka eða húsmæðurnar í úthverfum. Græða á þessum eða
hinum með einhverri sérstakri línu eða vöru eða jafnvel sjónvarpsþætti
sem er sérsniðinn til þess að laða þá að. Þeir gleyma því oftast að fólk er
ekki eins vitlaust og það heldur og að það sem verulega selst er sannfær-
ing manneskjunnar sem stóð á bak við hugmyndina. Þetta hlýtur að vera
spurning um hið mennska handbragð sem enn snertir við okkur öllum.
Heilluð af sannfæringu
SNILLDARGÁFA Það er
engin spurning um að
Alexander McQueen fylgir
eigin sannfæringu.
TÍSKUVIKAN Í LONDON:
Litadýrð mætir klassík
Ótrúlega eðli-
legan „Color
-Clone“ farða
frá Helenu
Rubinstein sem
lætur húðina
þína líta út fyrir
að vera farða-
lausa.
> OG NÆST ER ÞAÐ MÍLANÓ
Tískuvikan í Mílanó hófst á fimmtu-
daginn en þar var það Miuccia Prada
sem var helst í fréttum. Línan frá Prada
þótti einstaklega sæt og stelpuleg með
kynþokkafullu ívafi og ljóst er einnig að
háglansandi rauðappelsínugulur litur
verður það allra heitasta í vor.
Hverfi sgata 123 • Sími: 588 2121
YUMMI YUMMI Menu
noodles, spaghetti, rice and more
All same prices 699.-
1. Deep fried Fish & French fries.
2. Fried yellow Noodles with tofu and veg.
3. Spicy Noodles salad **
4. Spaghetti with green curry ***
5. Stir-fried Brown Rice with egg,sausage,tofu and veg.
6. Noodles, Tofu with massaman curry sauce *
Take-away HEITT HLAÐBORÐ
Fyllið 500 cc box skjálf úr hlaðborði 999,-
All recommend by BanThai Restaurant
Geymið auglýsinguna
OKKUR
LANGAR Í
…
Nýjar íslenskar spavörur frá fyrirtækinu Íslensk
hollusta. Prófið baðsölt með þara, kísil og vikur til
að mýkja húðina.
Fallegan berjarauðan varalit
frá Mac með ögn af glimm-
eri í frá nýju haustlínunni.