Fálkinn - 17.12.1954, Qupperneq 27
JÓLABLAÐ FÁLKANS 1954
ræða. Hún er kristileg og lýðræðis-
leg. Hún byggir á grundvallarsann-
indum kristindómsins og reyndar
liinna æðri trúarbragða, um stjórn
Guðs á alheiminum og eilífðareðJi
mannsandans. Megináhersluna leggur
hreyfingin á siðferðisviðJeitni manns-
ins og byggir þar á manngildishugsjón
kristindómsins, að maðuririn geti með
Guðs hjálp ástundað hið fagra og góða.
Siðferðisviðleitni mannsins á að byggj-
ast á þessum 4 meginreglum: algjör-
um heiðarleika, algjörum hreinleika,
algjörri óeigingirni, og algjörum kær-
leika.
Með þeim fjórum siðferðilegu meg-
inreglum, sem hér hafa verið nefndar,
kann ýmsum að þykja markið sett
hátt, og jafnvel hærra en liægt er að
ætlast til af breyskum og syndugum
mönnum, en öll siðgæðisviðleitni set-
ur markið hátt, eins og best má sjá
í sjálfu fagnaðarerindi Jesú Krists:
„Verið þér því fullkomnir, eins og
yðar liimneski faðir er fullkominn."
(Ma'tt: 5, 48).
Dr. Buclimann leggur ríka áherslu
á trúarsamfélagið, að einmitt fyrir
trúarsamfélagið við Guð fáum vér
styrk, til þess að lifa siðferðilegu lífi.
Guð blæs oss því í brjóst, hvað vér
eigum að gera, en vér eigum að ldýða
kalli hans. Ekkert má fá vald yfir
mannssálinni, nema Guð og þess vegna
er Jiann ákveðinn andstæðingur allra
einræðisafla, hvort sem þau Jieita
kommúnismi eða fasismi. Afstaða hans
til Krists keniur skýrt fram í þessum
orðum hans: „Það er boðskapur Jesú
Krists í lieild, sem er síðasta vonin
um frelsun mannkynsins. Guð sigrar,
þegar bylting hefir farið fram undir
merki krossins."
Takmark siðferðisstefnu Dr. Bucli-
manns er þvi að verða áhrifameiri í
lífi manna en allir „ismar“ og öfga-
stefnur. Hér er um að ræða lífsstefnu
(ideology), sem getur gjörbreytt lífi
cinstaklinganna og gert þá hamingju-
sama og um leið skapað bjartari og
betri heim. Þó að siðferðisstefna
Dr. Buchmanns sé vaxin upp úr jarð-
vegi kristindómsins, þá á hún líka
erindi til þeirra, sem játa önnur trú-
arbrögð, þvi að einmitt á sviði
siðgæðisins eiga flcst æðri trúar-
brögð margt sameiginlegt. Það hef-
ir lika komið i ljós, að Jireyfing
Dr. Buclimanns hefir átt miklu
fylgi að fagna í Austurlöndum
og þangað liefir honum og fylgis-
mönnum lians oft verið boðið til sam-
komuhalds og vakningastarfsemi.
Vöxtur hreyfingarinnar. —
Samfélagið í Caux.
Siðferðisstefna Dr. Buehmanns hef-
ir átt miklu fylgi að fagna í lýðræðis-
löndunum og þar kannast flestir við
MBA, en í einræðislöndunum er hún
yfirleitt bönnuð, því að þar óttast
menn að hér sé á ferðinni lifsstefna,
cr geti orðið einræði kommúnisma
yfirsterkari.
Hér er aðeins um lireyfingu að
ræða í siðferðilegum og trúarleg-
um efnum, en ekki trúarflokk. Skipu-
lag liennar er ekki fastmótað, en
áhugamenn í ýmsum löndum vinna að
útbreiðslu hennar.
Merkasta miðstöð hreyfingarinnar
er sumargistihúsið mikla í Caux sur
Montreaux í Sviss. Er það eitt af
glæsilegustu háfjallahótelum Sviss-
lands. Aður fyrr var það sumarbú-
staður auðkýfinga og milljónamær-
inga víðs vegar að úr heiminum, en
eftir að menn hættu að vilja eyða
þannig fé sínu, borgaði sig ekki að
reka liið mikla gistiliús og féll það
í lirörnun og vanhirðu. Var þá gisti-
liúsið keypt handa siðferðishreyfingu
Dr. Buchmanns. Var það endurbætt
stórlega af sjálfboðaliðum frá ýmsum
löndum. Þar eru nú baldin sumarmót
og námskeið fyrir þá, sem vilja kynna
sér hreyfinguna og starfa fyrir hana.
Nú er fátt um milljónamæringa í Caux,
en þangað kemur nú fólk af öllum
stéttum með siðferðileg vandamál sín
cða til þess að fá nýjan styrk, til þess
að lifa heilbrigðu siðferðilegu lífi.
Gistihúsið er rekið með allt öðru sniði
en áður var. Þar greiða menn fyrir
dvöl sína eftir efnum og ástæðum og
taka sjálfir þátt i þeim störfum, er
vinna þarf. Biskupar, þingmenn, iðju-
höldar og matreiðslustúlkur vinna eld-
hússtörfin hlið við hlið og enginn þyk-
ist of góður til þess að þvo gólf og búa
um rúmið sitt, ef svo ber undir. Þar
finnst enginn stéttarmunur og menn
gera sér far um að kynnast hver öðr-
um og vera sem alúðlegastir í fram-
komu og viðmóti.
Get ég vart hugsað mér betra sam-
félag en þarna rikir, meðal fólks af
Samkoma í Caux. Fremstir frá vinstri eru Dr. Leimgruber, kanslari Svisslands
og Dr. Adenauer, kanslari Vestur-Þýskalands.
Frá Caux: Syngjandi æska.
hinum ólíkustu þjóðum og stéttum. í
Caux haldast i hendur hin dásamleg-
asta náttúrufegurð uppi í fjalllendi
Svisslands og hið heimilislega and-
rúmsloft í gistihúsinu sjálfu. Þangað
koma menn ekki til þess að skemmta
sér i venjulegum skilhingi þcss orðs
heldur til andlegra hugleiðinga og lil
þess að njóta heilbrigðs samfélags.
Ég get vart hugsað mér betri andlega
heilsuverndarstöð en einmitt Caux,
og þangað ættu þeir að leggja leið
sína, sem eiga þess kost að ferðast til
Sviss. Allir eru velkomnir þangað,
sem vilja kynna sér hreyfingu Dr.
Buchmanns. Þar er ekkert spurt um
trúarskoðanir eða litarhátt, ungir og
gamlir eru þangað velkomnir. Þar
ber mikið á ungu fólki, sem vill lielga
hreyfingunni lcrafta sína og óvíða hefi
ég heyrt fjörmeiri söng en meðal þessa
unga fólks.
Dagarnir í Caux eru fljóti,r að liða.
Þar ræða menn vandamál líðandi
stundar á fjölmennum samkommn, og
einkamál sín í trjálundunum í nánd
við gistihúsið. Hin fegursta tón-
list er flutt i leikhúsinu eða leikrit
sýnd, sem túlka skoðanir hreyfingar-
innar.
Menn koma og 'fara, sumir dveljast
þar skannna stund, aðrir lengur.
Boðsgestir og sendinefndir koma
þangað og lagt er kapp á að ná til
áhrifamanna frá ýmsum löndum. Lögð
er áhersla á það, að menn byggi líf
sitt á siðferðilegum grundvelli, og oft
má lieyra þar merkilega vitnisburði
um varanlega og blessunarríka lífs-
stefnubreytingu, sem orðið hcfir fyrir
álirif hreyfingarinnar. Það má full-
yrða, að hún hefir þegar haft mikil
áhrif i ýmsum löndum. Margir merkir
stjórnmálamenn, kirkjulegir leiðtogar,
skáld, rithöfundar, blaðamenn, iðju-
höldar, verkalýðsleiðtogar og verka-
menn hafa gist Caux og flestir hafa
látið í ljós mikla viðurkenningu á þvi
starfi, sem þar fer fram og allt miðar
a'ð þvi að bera sáttarorð milli þjóða
og efla frið og bræðralag.
Um framtið þessarar hreyfingar skal
liér engu spáð, en liún liefir þegar
sett sinn svip á andlegt lif tuttugustu
aldarinnar og enguin dylst að þörf er
siðferðilegrar liervæðingar, áhrifa-
mikillar trúarlegrar og siðferðilegrar
lífsstefnu er geti mótað menningar-
þróun framtíðarinnar á grundvelli
friðar og bræðralags.
Óskar J. Þorláksson.
Fermingarbörn í Dómkirkjunni
Víða er farið að nota sérstaka kyrtla við fermingar. Hefir þessari nýbreytni
verið svo vel tekið, að ekki mun líða á löngu, áður en kyrtlar verði notaðir
við fermingar um land allt. Kyrtlarnir eru smekklegir og létta af fólki óþarfa
kostnaði. Þessi mynd var tckin af fermingarbörnum í Dómkirkjunni, en þar
voru kyrtlarnir notaðir í fyrsta sinn í haust. — Ljósmynd: Erna og Eiríkur.