Fálkinn


Fálkinn - 08.03.1961, Blaðsíða 14

Fálkinn - 08.03.1961, Blaðsíða 14
ý 4a(fAiwA öm Viötal við vanfærar konur Eitt það vinsælasta efni, sem blöð og tímarit flytja fróðleiksþyrstum lesend- um sínum, er alls kyns viðtöl við hina og þessa. Reynir þá mjög á hugmynda- flug blaðamannsins að finna sem allra frumlegastan viðtalandann. Hafa þann- ig verið framin viðtöl við alla milli himins og arðar, allt frá þjóðhöfðingj- um niður í hunda og ketti. Þar sem ég taldi mig hafa fundið á- gætis hóp viðtalenda, þá leyfði ritstjóri Fálkans mér góðfúslega að ganga á vit þeirra og spyrja nokkurra spurninga. Hér á eftir fer svo árangurinn af því, þegar ég skrapp eitt kvöld nú í vikunni, og heimsótti eitt af leikfimihúsum bæj- arins, en þar stóð einmitt yfir afsöppun- arnámskeið fyrir vanfærar konur. Ég hafði hringt í forstöðukonuna fyrr um daginn og gaf hún mér góðfúslega leyfi til að koma og reyna að toga nokkur vel valin orð upp úr „blessuðum stúlk- unum mínum“. Ég kvaddi því dyra á salnum og gekk inn bíspertur. Þarna voru saman komnar milli 10 og 15 kon- ur á ýmsum aldri, en þó líklega engin yfir fimmtugt. Þær voru augsýnilega rétt komnar, því þær voru ekki byrj- aðar æfingarnar. Ég gaf mig strax á tal við þá, sem næst stóð. Hún var ung, kannski rétt tvítug og hin þokkalegasta, en orðin all þung á sér. „Hvernig líka yður æfingarnar?“ „O, bölvanlega.“ „Nú, af hverju eruð þér þá að stunda þær?“ „Sjáið þér ekki, að ég er ólétt, maður, eða hvað? Ég er viss um, að þér mynduð sko ekki vera hér í sprikli, nema þér væruð óléttur." Hér er árangurinn af heimsókn minni á af- slöppunarnámskeið í eitt af leikfimihúsum bæjarins... 14 FALKINN „Eruð þér komnar langt á leið, ef ég má spyrja?“ „Alveg nógu langt, ef ég má svara,“ sagði hún og sneri upp á sig. Þetta var nú meira tryppið, en ég læt nú ekki slá mig svo auðveldlega út af laginu. Ég sný mér að annarri, og vel nú eina um fertugt, sem löngu er hætt að hugsa um línur og hrukkur, enda ljóm- ar hún eins og sól í hádegisstað. „Góða kvöldið, frú mín. Og hvernig líkar yður nú hér í afslöppunarleikfim- inni?“ „Alveg prýðilega, væni minn. Ég var hér líka í fyrra.“ „Hvað segið þér, í fyrra? Og ekki bún- ar að eiga enn?“ „Svona, væni minn, ég geng nú ekki með eins lengi og fíll- inn. Auðvitað átti ég í fyrra, en nú er ég bara á leiðinni með annað.“ Nú var dömunum skipað að leggjast á fjóra fætur, en þar sem hún vinkona mín, sem var hér í fyrra, er svo ræðin og almennileg, þá vil ég ekki sleppa henni alveg strax, svo ég leggst á fjóra fætur við hlið henni og held samtalinu áfram. „Eigið þér mörg börn, kona góð?“ „Ja, þetta, sem er áleiðinni, mun vera það níunda.“ „Ég kalla það nú hreint ekki lítið. Er ekki erfitt hjá yður að ala svona mörg börn?“ „Við ætluðum nú ekki að hafa þau svona mörg í upphafi, en það er nú svona, við förum svo lítið út og þetta er nú eina ánægjan hjá manni. Svo er líka svo reglulega skemmtilegt að koma hér í æfingarnar. Nú að lokum fer mað- ur á deildina og hvílir sig vel, fær kon- fekt meira að segja.“ Nú voru þær vanfæru farnar að gera æfingar alveg eins og færustu atvinnu- spriklarar, svo ég varð að gera hlé á viðtalinu, þar til um hægðist, og sátu þær nú allar á hækjum sér með hend- ur á mjöðmum og fannst mér unaður að líta, hve vel þær héldu jafnvæginu, eins og þær voru nú líka framþungar margar. Ég sný mér að einni ungri og mjög vel frágenginni í framan, þ. e. það vantaði ekkert nema undirskrift á hök- una til að málverkið á andliti hennar væri söluhæft. Hún var ennþá hin spengilegasta og virtist ekki vera búin að bera þunga sinn lengi. „Það sér ekki mikið á yður, kæra frú.“ „Ég þakka hólið, herra minn. En hvað haldið þér annars, að ég sé komin langt á leið?“ „Ja, svona þrjá, fjóra,“ segi ég spek- ingslegur eins og kvenlæknir. „Nú skjátlast yður, maður minn, þvi ég á ekki nema mánuð eftir.“ „Ég á nú bágt með að trúa mínum eigin eyrum. Eruð þér ekki hræddar um að barnið verði lítið og veikburða, þegar það fæðist?“ „Nei, nei, það gerir nú ekkert til. Ég skal nefnilega segja yður, að mér og manninum mínum, Jóni Jónssyni, for- stjóra, þykir ófært að missa marga mánuði úr samkvæmislífinu út af bévítis óléttistandi, svo ég fékk lækninn minn til að kontrólera þungann alveg út í díteils. Hann setti fóstrið í megrunar- kúr strax á öðrum mánuði, og við höf- um ekki misst úr eina einustu frum- sýningu. Svo setur hann barnið bara í svona, kassa eða vermireit, þér vitið, og það vex strax.“ Ég var alveg undrandi á mætti og klókindum læknavísindanna ásamt leiklistaráhuga forstjórahjónanna, en spurði þó í viðbót hina eðlu frú. „Eigið þér mörg börn?“ „Við eigum eitt fyrir, og þykir mér það alveg nóg. Þetta hérna var ekkert nema bévítis óhapp. Það var þegar við komum af frumsýningunni á, hvað hét það nú aftur, jú, Engill farðu heim, held ég. Ég verð ósköp fegin, þegar þeir geta gert þetta allt í glösum, eins og þeir eru víst farnir að gera á Italíu.“ Ég þakka nú þessari ágætu frú fyrir greið svör, og sný mér strax að þeirri næstu, en nú er orðið hlé á æfingunum og þær standa saman í hóp og spjalla. „Hvað eruð þér nú komnar langt á leið, frú?“ Mér varð ekki ljóst fyrr en ég hafði sleppt spurningunni, að hér hafði ég gert hroðalega skyssu, enda stóð ekki á svarinu. „Hvers konar ósvífni er þetta í yður, blaðasnápur? Ég er forstöðukonan hér. Snautið þér strax út!!“ Ég lét ekki segja mér það tvisvar, heldur endasentist út, og heyrði á eftir mér niðurbælda hlátrana í „stúlkun- um hennar“. Dagur Anns.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.