Fálkinn - 08.03.1961, Page 33
en önnur hallæri; og ávallt þegar svarta-
dauða getur á íslandi er átt við árin
1402—1404.
Sögur hafa geingið um sveitir sem að
fullu og öllu lögðust í auðn í Svarta-
dauða og vitnar nú ekkert þar um forna
byggð annað en þúfnakollar sem eitt
sinn kunna að hafa verið veggir sæmi-
legra híbýla. Þetta er t. d. sagt um
Lángavatnsdal. Margt af þessu hefur
vafalaust við rök að styðjast.
Svo víst sé, hefur pestin ekki komið
híngað oftar en í þessi tvö skipti, þótt
möguleikar séu á að ýmsir þeirra sótt-
arfaraldra er sí og æ píndu þjóðina
næstu aldirnar hafi verið hún. Skæðir
og bráðdrepandi faraldrar sem geingu á
árunum 1541, 1546, 1648—50 og 1680—82
virðast t. d. hafa borið grunsamlega
Jjós einkenni pestarinnar, þótt um það
verði ekkert sannað framar.
★
Á Svartadauðatímunum lagðist nið-
ur að mestu sú forna mennt að skrá
arfsagnir og skáldskap, enda hefur saga
þessa tímabils goldið þess. Hún er óljós
um margt. En þá eru menn hinsvegar
teknir að yrkja og raula lítil og létt
stef, dansana. Þrátt fyrir 'erlend áhrif
í þessum kveðskap, sem ekki komst á
pappírinn fyrr en fyrir tiltölulega
skömmu, er hann víða merkur aldar-
farsspegill. Ekki er ósennilegt að til
pestaráranna eigi feigðarandi sumra
viðkvæðanna rót sína að rekja: dimmt
er í heiminum drottinn minn; lángt er
síðan mitt var yndið lagt í mold — og
guð mun ráða hvar við dönsum næstu
jól.
(Heimildir: Annálar: Nýi annáll,
Skarðslárannáll, Vatnsfjarðarannáll
elzti, Grímsstaðaannáll, Fitjaannáll;
Árbækur Espólíns; Þjóðsögur Jóns
Árnasonar; Þjóðsögur og munnmæli
Jóns Þorkelssonar; Sóttarfar og sjúk-
dómar á íslandi 1400—1800, eftir Sigur-
jón Jónsson lækni; Þorkell Jóhannes-
son: Plágan mikla, Skírnir 1928; o. fl.)
FRÁ SJÓNARHÓLI STJÖRNUSPEKINNAR
Mig langar til að vita ráð-
leggingar yðar frá „Sjónarhóli
St j örnuspekinnar ‘ ‘.
Eg er fædd í N.-Múlasýslu
þann 3. janúar 1923 í ljósa-
skiptum á þeim degi að því er
ég bezt veit.
Eftir tvítugt fór ég að vinna
af og til utan heimilis, seinna
fór ég á skóla og lærði til á-
kveðins starfs. Vann að því í
nokkur ár, en varð að hætta
vegna heilsubrests. Ég hef átt
í erfiðleikum með að fá vinnu,
sem ég þoli síðan.
Ég er ógift, hef orðið hrifin
af mönnum; en það hefur
aldrei orðið gagnkvæmt, eins
hefur það verið með þá karl-
menn, sem óskað hafa eftir að
giftast mér. Ég hef verið
gjörsneydd áhuga fyrir þeim.
Ég lifi mjög reglusömu lífi.
Skemmti mér sjaldan af áður-
greindum ástæðum.
Með fyrirfram þökk,
Tanna.
Svar til Jönnu.
Það var leitt að þú skyldir
ekki geta gefið mér nákvæm-
lega fæðingarstundina, því
mér hefði verið kleift að gefa
mikið fyllri upplýsingar ef
svo hefði verið.
Afstöðurnar í korti þínu eru
mjög óhagstæðar með tilliti
til hjúskapar. Þessar afstöður
hafa einnig áhrif á heilsuna.
Ég mundi segja að þú ættir
alls ekki að hugsa um giftingu
því það verður aldrei sam-
komulag. Þú gætir hins vegar
reynt að laga fyrir þér með
því að temja þér góða um-
gengni, því kortið sýnir að þú
sér ekki sem beztur félagi. En
þér er margt annað til lista
lagt heldur en dýrkun guðsins
Amors, sem ávallt mun reyn-
ast þér fallvaltur förunautur.
Til dæmis er plánetan Ven-
us í Bogmannsmerkinu, en
það táknar að þér mundi
sækjast mjög létt að tileinka
þér trúarbrögð og heimspeki,
sem hvort tveggja er góður
grundvöllur í lífinu. Sérhverj-
um manni er nauðsynlegt að
tileinka sér æðri hugsjónir til
að lyfta sér upp úr hversdags-
leikanum og geta þannig
dæmt eigin gerðir í þeim til-
gangi að bæta sig. Þú hefur
einnig mjög sterkar afstöður
í hinum svokölluðu Vatns-
merkjum, en það táknar að
þú sért mjög dulin fyrir öðr-
um, það er að segja einræn,
svo mjög að þú hefur verið
harðlega gagnrýnd fyrir
hegðun þína. En fyrst þú ert
svona í eðli þínu skaltu bara
hagnýta þér það eftir beztu
getu. T. d. Júpiter í Sporð-
drekamerkinu mundi meðal
annars merkja að þú hafir
mikinn áhuga á dulfræðum,
öllu sem kallað er hjátrú og
hindurvitni. í hjátrú og hind-
urvitni álít ég mig hafa sótt
meiri vizku heldur en ég hefði
nokkurn tíma haft möguleika
á í efnisvísindum nútímans,
sem tiltölulega eru skammt á
veg komin enn, sé miðað við
þá möguleika, sem eru fyrir
hendi. Hinar sterku afstöður í
Vatnsmerkjunum, gera þig
veikbyggða og til viðbótar af-
stöðu Sólar, Mána og Satúrn-
usar, sem teljast verða mjög
veikjandi fyrir lífsorkima.
Þú ræðir um að þú hafir átt
erfitt með að fá þér starf við
þitt hæfi, en ég vildi benda
þér á þann möguleika sem
fylgir sterkum afstöðum í
Vatnsmerkjunum en það er
hið ríka ímyndunarafl. Fólk
með þessar afstöður hefur
oft reynzt hinir beztu rithöf-
undar. Sérgrein þeirra hafa
verið hin dramatísku verk.
Sólin í Steingeitarmerkinu,
veldur því að þú ert leitinn á
sannleikann, og reynir stöðugt
að komast lengra og lengra
upp eftir einstigi þekkingar-
innar og þú hefur einnig vit á
að hagnýta þér reynslu þeirra
sem þegar hafa náð á tindinn.
Þér er einnig tíðrætt um þessi
efni við þá fáu, sem trúnað
þinn eiga, þar sem Merkúr er í
sama merki, Steingeitarmerk-
inu. Þú ert með öðrum orðum
manneskja, sem býrð yfir
mikilli fýsn til að vita innri
hlið hlutanna, og einmitt í
þessari jarðvist hefurðu prýði-
legt tækifæri til að svala
þorsta þínum að miklu leyti.
★ Ef lesendur laiigar til að vita, hvað stjörnurnar segja
um örlög þeirra og vatidamál, þá er auðvelt að verða við
þefrri ósk: ASTRÓ spáir í stjörnurnar fyrir lesendur FÁLKANS
Bréf til hans sendist til Fálkans, pósth. 1411 - merkt ASTRÓ
FÁLKINN
33