Fálkinn - 27.06.1962, Side 8
ÍSLENZKIR FRAMKVÆMDAMENN
Haraldur Böðvarsson á Akranesi
FRAMKVÆMDIR
OG FORNAR DYGGÐIR
A SKIPASKAGA
Texti: Sveinn Sæntundsson. Myndir: Jóhann Vilberg
sem til þekkir blandist hugur um, að ef
nefna ætti einn er ö'ðrum fremur hefur
lagt sitt lóð á vogarskálar til atvinnu-
öryggis og almennrar velmegunar stað-
arins, þá sé engum blöðum um að
fletta. Maðurinn sé Haraldur Böðvars-
son útgerðarmaður.
Haraldur Böðvarsson er fæddur á
Akranesi hinn 7. maí árið 1889, sonur
hjónanna Böðvars kaupmanns Þor-
valdssonar prests að Saurbæ og Helgu
Sturlaugsdóttur bónda að Hítardal.
Haraldur var hinn sjötti af tíu börnum
þeirra Helgu og Böðvars, en fyrstu
fjögur börn sín misstu þau úr barna-
veiki á einni og sömu vikunni. Af
systkinunum sem upp komust er Val-
dís fyrrverandi símstöðvarstjóri á Akra-
nesi elzt, þá Björn, sem lézt ungur í
Kaupmannahöfn, þá Haraldur, þá Axel
bankaritari í Reykjavík, þá Leifur
útgerðarmaður og yngst Elínborg hús-
freyja í Reykjavík.
Haraldur Böðvarsson var bráðþroska
svo orð var á gert. Böðvar Þorvaldsson
hafði á þessum árum umfangsmikla
verzlun og börnin tóku þátt í margvís-
legum störfum, er þau höfðu aldur til.
Haraldur var liðtækur sem fyrr segir
og frá því er sagt, að á fjórtán ára af-
mælisdegi sínum lyfti hann 400 pund-
um og þótti slíkt að vonum einsdæmi.
Pilturínn var snemma mikill fyrir sér
og kjarkgóður í bezta lagi. Hann lang-
Akranes, kaupstaður á Skipaskaga,
skaganum, sem er í lagirfu eins og hönd,
er bendir út á hin fengsælu fiskimið
Faxaflóans, hefur á fáum árum breytzt
úr litlu þorpi í glæsilegan kaupstað.
Hér áður var Akranes frægt fyrir
hrausta sjósóknara, fríðar stúlkur og
góðar kartöflur. Nú sem fyrr stunda
hraustir menn sjó, stúlkurnar eru
sennilega ennþá fríðari en fyrr, en í
kartöflugörðunum hafa heimamenn
byggt og byggðin hefur teygt sig langt
inn fyrir hin gömlu mörk þorpsins;
fólkinu hefur fjölgað jafnt og þétt og
Akranes dagsins í dag á það sammerkt
með öðrum beztu bæjum þessa lands,
að þar er starfsdagur langur og vel-
megun almenn.
Hér hafa margir lagt hönd á plóg-
inn og engum einum manni verður með
sanni þakkað allt það, sem hér hefur
verið afrekað. Samt hygg ég, að engum
FALKINN