Fálkinn


Fálkinn - 27.06.1962, Blaðsíða 24

Fálkinn - 27.06.1962, Blaðsíða 24
HLÁTURINN LENGIR LÍFIÐ Vinsæli leikarinn hitti H. stórkaup- mann í Austurstræti. H. er farinn að heyra illa og hann er bæði ríkur og ágjarn. H. er ímyndunarveikur eins og margt gamalt fólk og ætlar nú að nota tæki- færið og fá læknisráð ókeypis. ★ — Góði læknir. Ég er svoddan ein- stakur ræfill núna, segir hann. — Hvar er yður illt? — Aðallega í maganum. — Það var slæmt. Gerið þér svo vel að leggja aftur augun og reka tunguna vel út úr yður, þá skal ég athuga þetta. H. gerði eins og læknirinn lagði fyrir hann, en er hann hafði staðið svona óþolinmóður í tíu mínútur opnaði hann augun. Það stóð hópur af fólki og horfði á hann og hélt að hann væri vitlaus. En læknirinn var löngu kominn úr augsýn. ★ Einn bezti vínkjallari í heimi fannst á heimili betlara, sem dó í Auxerre árið 1894. Þegar lögreglan fór að skrifa upp reiturnar, fann hún 400 flöskur af víni frá 1790. Líka fann hún ríkisskulda- bréf fyrir rúma milljón franka í fórum betlarans. ★ Jarlinn af Granville, sá fjórði í röð- inni, og móðurbróðir Elisabetar Eng- landsdrottningar, dó fyrir nokkrum árum 72. ára að aldri — með pípuna í munninum. Hann var mesti pípureyk- ingamaður í Bretlandi. í fyrri heim- styrjöldinni var skip skotið í kaf undir 24 FÁLKINN honum. Flestir um borð drukknuðu, en jarlinn fannst eftir þrjá daga á fleka — með pípuna í munninum! Það var jarl- inn sem á sínum tíma fék því fram- framgengt, að afnumið var bannið við að reykja í einkennisbúningi. Honum tókst að fá þetta afnumið með því að brjóta það nógu oft. ★ í aðalmálgagni sértrúarflokks nokk- urs í Bandaríkjunum stendur þessi kjarngóða klausa: „Hefur þú nokkurn tíma séð fljótandi, glóandi málm renna úr bræðsluofni? Það er þessháttar, sem notað er sem rjómaís í helvíti!" ★ Rússland er frjósamasta land í heimi, sagði hinn sanntrúaði Sovétvinur. Þar eru fjórar hveitiuppskerur á ári. — Eru þetta ekki ýkjur, sagði einhver. — Nei, það er dagsatt. Ein frá Pól- landi, önnur frá Ungverjalandi, þriðja frá Tékkóslóvakíu og sú fjórða frá Ukrainu. ★ Dómstóll í Suður-Ameríku hefur sýknað bílstjóra, sem sakaður var um ógætilegan akstur í fjöru nokkurri. Bílstjórinn hafði að vísu ekið á mann, sem var að tína krækling, og fótbrotn- aði hann, en rétturinn taldi sig ekki geta dæmt manninn fyrir ógætilegan akstur, vegna þess að þetta hefði verið á almannafæri. Þar sem áreksturinn varð er nefnilega sjór 18 tíma af sólar- hringnum! ★ „Brauð — ekki peninga!“ var við- kvæði arabisks betlara, sem dó árið 1889. Margir hrærðust af þessu og á kvöldin vaggaði betlarinn heim til sín hlaðinn brauðum. Þegar hann dó kom á daginn, að hann átti tvö hús full af brauðum og brauðmylsnu. Og það vitnaðist að hann hafði haft atvinnu af því að selja brauð sem skepnufóður! ★ Dag nokkurn árið 1812 gekk ókunnur maður inn í Hvíta húsið og tók þar fagra maghoníkistu með látúnsspöngum, sem stóð úti í horni í einu herberginu og fór burt með hana. Svo liðu 127 ár. En árið 1939 kom maður og skilaði kistunrii aftur. Hann kvaðst vera af- komandi mannsins sem stal henni forðum! ★ Þar til fyrir rúmum þrjátíu árum voru í London, New York og París skólar sem bjuggu betlara undir lifs- starfið. Stundum héldu betlarar, sem voru hættir störfum, fyrirlestra við skólann. Aðalnámsgreinin var sálfræði! Kvennanáðhúsið í dómshúsinu í st. Joseph í Montana var nýlega skinnað upp og nýjar rúður settar í gluggana úr þessu furðugleri, sem er þannig gert, að maður sér gegnum það öðru megin, en frá hinni hliðinni er það ógagnsætt. Nú hefur kvenfólkið kært yfir frágang- inum á þessum nauðsynlega stað. Rúð- urnar hafa nefnilega verið settar öfugar í, þannig að ekki er hægt að sjá út í gegnum þær, — en allir sjá inn! ★ Kaupsýslumaður spurði konu sína, hvort hún vildi vera fylgdarmaður hans á verzlunarferð, sem mundi taka nokkra mánuði. En konan vildi því að- eins fara með að þau gætu tekið gamla trygga hundinn þeirra með. Hún vildi ekki skilja hann eftir í hundavarð- gæzlunni. — Við skulum taka hann með, sagði maður hennar. Það hlýtur að vera eitt hótel í hverri borg, sem leyfir, að gestir taki með sér hunda. En í ein- um bænum, sem þau þurftu að koma til, var ekki eitt einasta hótel, sem leyfði að hundar væru með gestum. — Ég skrifa þeim og panta, sagði kaupsýslumaðurinn. Nokkrum dögum seinna fengu þau bréf, þar sem sagt var, að þau væru hjartanlega velkomin. — Hvað skrifaðirðu eiginlega, úr því að hótelið svarar svona? spurði konan undrandi. Eiginmagurinn rétti henni sams konar bréf og vanalega eru send, þegar panta á herbergi í gistihúsum. En síðasta setningin var dálítið frábrugðin. Hún hljóðaði þann- ig: — Hafið þér nokkuð á móti því að við komum með gamlan og velsið- aðan herramann, sem af tilviljun er hundur. ★ Trúlofunarhringar Fljót afgreiðsla. Guðm. Þorsteinsson gullsmiður Bankastræti 12 Sími 14007 Sendum gegn póstkröfu.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.