Fálkinn - 27.06.1962, Qupperneq 27
| SVALAPRYKKIR [
Nú fer vonandi að hlýna í veðri, og
þá er hressandi svaladrykkur vel þeg-
inn af flestum. Þeir eru líka margir
hverjir þrungnir af fjörefnum, séu þeir
drukknir nýtilbúnir.
Sólskinsdrykkur.
Vz 1. tómatsafi.
Vz rifin, hrá agúrka.
y2 tsk. sykur.
Vz tsk. salt.
1 msk. sítrónusafi.
Kælt vel, síað þegar hellt er í glösin.
Agúrkusneið reist á glasbarminn.
ískaffi, amerískt.
Blandið 1 msk. af kaffidufti (Nesle-
café) og 1 msk. af kakao, hrærið sam-
an við það það miklu af sjóðandi vatni,
að það líkist þykkum jafningi. Hrærið
3Vz dl af kaldri mjólk saman við, þeytt
vel. Kælt í ísskáp. Borið fram með
þeyttum rjóma.
Bananadrykkur.
Merjið og þeytið 3 velþroskaða ban-
ana með gaffli, hrærið 1 bananaskeið
af kakao saman við. Þeytt vel með Vz
1. af mjólk og dálitlum vanilludropum
eða vanillusykri. Borið fram með smá-
kökum.
Ananasdrykkur.
Blandið safanum úr sítrónu saman
við Vz 1. af ananassafa (úr dós). Setjið
þetta í 4—6 glös, fyllið þau litlum ís-
molum og sódavatni.
ís-te
er kælt lútsterkt te, sem borið er fram
með sítrónu eða appelsínusneið.
ís-kaffi
er sterkt., rótarlaust kalt kaffi, sem er
er borið fram í háum glösum. Efst er
settur vænn biti af vanilluís og ef vill
dálítill þeyttur rjómi og rifið súkkulaði.
Sumardrykkur.
Setjið nokkra stóra ísmola í skál,
auk þess appelsínu, sem skorin hefur
verið í þunnar sneiðar, nokkur jarðar-
ber eða jafnvel rabarbarabita (vín-
rabarbari), lítið glas af jarðarberja-
saft, safa úr 1 sítrónu og 4 flöskur af
engiferöli. Ausið í kollur.
Appelsínumjólk.
Vz niðursneidd appelsína.
2 msk. síróp.
1 sítrónusneið.
2 dl. ísköld mjólk.
1 tsk. vanillusykur.
Frh. á bls. 32
5 salatsósur m. m.
Nú fara að fást margar grænmetis-
tegundir og salat auk ávaxta, svo vor-
kunnarlaust er hverri húsmóður að bera
fram skál með hráu salati með hverri
máltíð. Grundvöllurinn að salatinu er
góð salatsósa, sem blanda má hinum
ýmsum tegundum í með breytilegum
hlutföllum. Þar getur hugvitssemi hús-
móðurinnar komið að góðu gagni.
Olíu-edikssósa.
4 msk. matarolía.
1 msk. gott edik.
Vh tesk. pipar.
Vz tesk. salt.
Ögn af sykri.
Hellið olíunni og edikinu yfir krydd-
ið. Þeytt eða hrist vel saman.
Sumarsalat.
200 g. soðnar kaldar kartöflur.
3 tómatar.
Vz agúrka.
2 harðsoðin egg.
1 smátt saxaður laukur.
1 msk. söxuð steinselja.
Olíu-edikssósa.
Allt skorið í fallegar sneiðar, bland-
að saman í skál. Setjið lauk og stein-
selju saman við sósuna. Hellt yfir sal-
atið. Látið bíða nál. 1 klst. Hrært í því
varlega við og við.
Rjómasósa.
1 dl. súr rjómi.
3 msk. matarolía.
Vz msk edik.
% tesk. salt.
Ögn af pipar.
Rjóminn þeyttur öðru hvoru varlega
saman við.
Banansalat.
4 bananar.
Vz agúrka.
1 salathöfuð.
Rjómasósa.
Söxuð steinselja.
Framh. á bls. 32.
FALKINN
27