Fálkinn


Fálkinn - 27.06.1962, Page 32

Fálkinn - 27.06.1962, Page 32
LITLA SAGAIV Framhald af bls. 14. var meira en nóg. Við höfðum setið í nokkra tíma á pramma inni í sefinu og haft auga með andahóp, sem spókaði sig nokkurn spöl úti á vatninu, samt of langt úti til þess að vera í skotfæri, en þegar rökkrið skall á, nálguðust þær gerviendurnar mínar og ég hleypti af haglabyssunni, flokkurinn flaug upp, en ein flaug lágt yfir okkur. — Voff, gelti Togi, um leið og öndin féll niður undan skoti mínu. Nú fékk Togi tækifæri til þess að sýna hvað hann gæti. — Sæktu, sagði ég, og Togi hljóp af stað. Tveimur mínútum seinna kom hann stoltur til baka með eina af gervi- öndunum mínum. Sunnudag nokkurn reyndi ég hann svo á enginu, þar fékk hann tækifæri til þess að sýna loks, hvað í honum bjó. Það var síðasta tækifærið. Frá þeim degi hef ég ákveðið að láta hann aldrei framar hlaupa eftir dagblöðum, öndum, fasönum, eða einhverju öðru. Hann getur bara legið 1 körfunni sinni við ofninn og hlaupið og leikið sér eins og hann lystir. Veiðihundur verður hann hvort sem er aldrei. Hann hefur ekki vit til þess. 32 FALKINN Mér er raun að því að hugsa til þess, sem hann færði mér þegar ég var á veiðum á engi mágs míns. Ég mundi ekki hugsa mig um tvisvar að lóga honum, ef hann sjálfur héldi ekki, að ég liti á hann sem mjög vitra og slæga skepnu. Ég hafði reikað um engið í nokkra tíma og var orðið allkalt. Veðrið var leiðinlegt og ég var í leiðu skapi. Ekki bætti það heldur úr skák, að ég skaut framhjá skógardúfu. — Voff, sagði Togi. — Þegiðu, sagði ég. Á sama augnabliki skauzt fasan fram- hjá. Ég varð svo undrandi, að það leið langur tími unz ég hafði borið byssuna upp að kinninni og miðað, og fasaninn komst næstum inn í runna, áður en skotið reið af. En ég hafði heppnina með mér og fuglinn datt dauður niður. — Sæktu, sagði ég. — Voff, voff, gelti Togi og hljóp af stað með tunguna lafandi út úr sér og dinglaði ákaft rófunni. Nokkrum sekúndum síðar kom vesa- lings heimska skepnan aftur með héra í kjaftinum. Willy Breinholst. Kvenþjóðin Framh. af bls. 27. Allt blandað vel í vél, fyrst ávextirnir með helmingnum af mjólkinni, síðan er afgangnum og vanillusykri bætt út í, áfram. Sett í háglös, sem í eru appel- sínubitar. Gott er að setja dálítið af vanilluís í hvert glas. Sé ekki tækifæri til að blanda þessu í vél, er appeelsínan pressuð og yzti börkurinn rifinn. „Ice cream soda“. Setjið rjómaísskeið í hátt glas, hellið þar yfir litlu glasi af góðri saft. Fyllið glasið með sódavatni. Drekkið gegnum rör. „Milk shake“. Hristið saman eða þeytið í vél saman 2—3 msk. af góðri saft og V2 mjólkur- glas. Kaupmannahafnardrykkur. Hristið saman safann úr 1 sítrónu og 1 appelsínu, 1 barnaskeið af flórsykri og örlitla eggjahvítu. Sett í meðalstór glös, sem fyllt eru með sódavatni. Salöt og sósur Bananar og agúrkar skorið í sneiðar, blandað saman við niðurklippt salat- blöðin. Sósunni hellt yfir. Bíði 1 klst. Saxaðri steinselju stráð yfir. Sinnepssósa. 1 msk. sinnep. 2 msk. matarolía. V2 msk. edik. % tsk. sykur. Sinnepi og olíu hrært saman, ediki og sykri hrært saman við. Hrært vel og lengi. Sænskt kartöflusalat. 400 g. soðnar, kaldar kartöflur. 2 laukar. V2 agúrka. 1 msk. kapers. 100 g. saxaðar, sýrðar rauðrófur. Sinnepssósa. 2 msk. söxuð steinselja. Skerið kartöflur, lauk og agúrku í ferkantaða bita, blandið söxuðum kap- ers og rauðrófum saman við. Sósunni hellt yfir. Látið bíða 2—3 klst. Saxaðri steinselju stráð yfir. Eggjasósa. 1 eggjarauða. V\ tsk. salt. Vs tsk pipar. 3 msk. matarolía. 1 msk. edik. Hrærið eggjarauðunni með salti og pipar, bætið olíunni varlega saman við, hrært vel. Að síðustu er edikinu hrært út í. Tómatsalat. 4—6 jafnir tómatar. 1 salathöfuð. Eggjasósa. Graslaukur. Söxuð steinselja. 1 rækjudós. Tómatarnir skornir í sneiðar, raðað fallega á salatblöðin, sem mynda eins og hreiður. Blandið söxuðum graslauk og steinselju í sósuna, hellt yfir tómat- ana. Skreytt með rækjum eða humar, sem má sleppa. Ostsósa. 1 smurostur. 2 msk. matarolía. % tesk. paprika. V2 msk. edik. Vz tesk. salt. Hrærið ostinn sundur smátt og smátt með olíunni og ediki. Hrærið stöðugt. Blandið kryddinu í, hrærið áfram í 5 minútur. Hreðkusalat. 3 búnt hreðkur. Salt. V2 agúrka. Ostsósa. 1 salathöfuð. Söxuð steinselja. Hreinsið hreðkurnar og skerið þær í sneiðar, blandað saman við agúrkuna, sem skorin er í bita. Sett í skál, sem sal- atblöðunum hefur verið raðað í. Sósunni hellt yfir, saxaðri steinselju stráð á.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.