Fálkinn - 27.03.1963, Blaðsíða 31
lampans og neytir síðustu krafta til að
rétta úr stórgerðum, langþjáðum lík-
ama sínum. — Nei, hann varð þar ekki
eftir, hann faðir þinn! Hann brauzt út
í heiminn, í dagsljósið, iit í lífið. Það ert
þú, sem brauzt ok hans.“
En hún þagði í einhvers konar beizkri
og hamingjusamri lotningu fyrir hinu
einkennilega furðuverki þessa drengs
og snjókarlinum hans.
— Haltu áfram, Mínaéff, — sagði
hún hljóðlega. — Þú hefur enn tíma ...
Vera ívanovna sneri aftur til barn-
anna, sem umkringdu hana þegar í stað
með háværum hrópum:
— En sópurinn? Hvernig er með
hann? . .. Hver á að fá sópinn? . ..
— Hvaða sóp? — spurði hún og vissi
ekki, hvaðan á sig stóð veðrið.
— Þennan hérna! — sagði Pankoff,
drengur með skærum, björtum augum,
og rétti henni gisinn birkigreinasóp.
Nú, auðvitað, hún hafði alveg gleymt
því! Hreingerningakonan hafði gefið
þeim þennan sóp sem verðlaun fyrir
bezta snjókarlinn.
— En hvar fáum við skaft á hann?
Beint, sívalt skaft kom sem töfrað
upp úr jörðunni. Vera ívanovna tók það
og festi við sópinn.
Leiðinlegt og heimskulegt! Auðvitað
var sópurinn einskisvirði, en samt var
hann verðlaun. Það væru helgispjöll að
gefa hann Mínaéff. Sópur var einmitt
fyrir snjókarla og kerlingar með gulrót-
arnef, kolaaugu og rauðan silkimunn.
Vera ívanovna snevi sér við. Mínaéff
mótaði snjóinn með höndunum, annars
hugar, í þungum þönkum og með hams-
lausum ákafa, þjappaði hann með hnef-
unum, skóf hann til með handarjaðr-
inum. Henni létti og hún fann til þakk-
lætis, þegar hún skildi, að Mínaéff
þurfti alls ekki á þessum lítilfjörlegu
verðlaunum að halda.
Allir sem einn voru snjókarlarnir
digrir á að sjá, með stór augu, nef og
varir, allir gerðir af sömu viðleitni og
smekkleysi. Vera ívanovna hikaði ör-
lítið og tróð síðan sóflinum við hlið
hæsta snjókarlsins, sem tveir hávöxn-
ustu strákarnir í hópnum höfðu hnoðað.
— Alveg rétt! ... — hrópuðu, hlógu
og glöddust börnin.
,,En ég þekki þau alls ekkert, — hugs-
aði Vera ívanovna. — í dag uppgötvaði
ég Mínaéff, nú, en hin? Þau móta illa,
en þau geta gert eitthvað annað ágæt-
lega og með innblæstri, eitthvað, sem
ég veit enn ekki um, og þau sjálf ekki
heldur. Núna hafa þau snjó í höndun-
um, plastleir, blýanta, kubba og tré-
búta. — Það er næsta lítið! Sú kemur
tíð, að þau hafa öll efni til sinna um-
ráða, öll öfl náttúrunnar, allar víðáttur
jarðarinnar og alheimsins, öll orð og
öll hljóð. Og hver veit hvað þau eiga
eftir að skapa! Verið getur að Gúsakova
með freknurnar sínar syngi söng, sem
heimurinn hefur aldrei áður heyrt, en
Pankoff telji allar stjörnurnar á himn-
inum ... að Bérjozkín sýni af sér hina
æðstu gáfu, gáfu fullkomins góðleika;
hann mun hjálpa öllum. Allir menn
jarða'rinnar munu venjast því, að senda
honum skeyti, þegar þeir verða fyrir
óhamingju: „Moskva, Bérjozkín. Gerðu
svo vel að koma til hjálpar...“
Vera ívanovna brosti, skellti saman
lófunum og hrópaði:
— Krakkar, nú förum við heim!
Börnin mynduðu röð, tvö og tvö
saman. Allt um kring stóðu snjókarl-
arnir með rauð nef, hárauðar varir og
blikandi svört augu. Börnin horfðu á
þá allt um kring, það var svo leiðinlegt
að þurfa að skilja við þá. Mínaéff skip-
aði sér í röðina við hlið Gúsakovu. En
hann horfði ekki í kringum sig. Á dökk-
leitu andliti hans hjaðnaði dökkur roð-
inn, augnaráð hans var enn fullt af
dimmri áreynslu.
— Það kom ekkert út úr þessu hjá
mér! ... — sagði hann og bandaði hend-
inni til Gúsakovu og fór að hjálpa henni
að koma fyrir undir kápukraganum
mjórri rauðri fléttu, sem vildi ekki
tolla undir honum.
(1960).
Kæri Astró.
Viltu lesa fyrir mig í stjörn-
urnar um framtíð mína.
Hvernig er skapgerð mín? Ég
er ekki mikið fyrir að
skemmta mér, en mér finnst
dásamlegt að ferðast. Á ég
eftir að ferðast eitthvað að
ráði? Hvernig er afstaða mín
gagnvart karlmönnunum?
Hvnær giftist ég? Eignast ég
mörg börn? Ég vinn úti. Á ég
eftir að vinna lengi úti? Ég
vona að þetta birtist sem
fyrst. Gjörið svo vel að sleppa
fæðingardegi, stað og stund.
Með fyrirfram þökk.
Dóra.
Svar til Dóru.
Um skapgerð þína er það
að segja að allt bendir til
þess að þú sért mjög dreymin,
þar eð sól var í merki Fisk-
anna þegar þú fæddist. Einnig
er Neptún á hinni rísandi
gráðu við fæðingu þína. Það
er því ekki að undra þó að þú
þráir öryggi heimilisins svo þú
getir byggt þínar skýjaborgir
í næði í stað þess að standa í
brauðstritinu. Þetta er þó
ekkert til að vera miður sín
út af, fjöldi fólks er þannig,
einfaldlega sakir þess að það
er betur fallið til að starfa í
heimi ímyndunaraflsins held-
ur en í hinni bláköldu veröld
hinna sex skynfæra. Þess
vegna eru mörg skáld fædd
hér og listamenn. Þar af leið-
andi ertu heldur ekki mikið
gefin fyrir þær skemmtanir,
sem almennt tíðkast, en mund-
ir vafalítið njóta þín í hópi
trúarlegrar samkomu eða ein-
hvers andlega hugsandi hóps.
Ég er ekki frá því að þú eig-
ir eftir að ferðast talsvert og
ýmislegt bendir til þess að á
mörgu kunni að ganga á ferð-
um þínum. Áhrifaár í þeim
efnum er þegar þú ert 21 árs,
32 ára, 37, og frá 47 til 50 ára.
Merki Fiskanna á geisla
sjöunda húss markar afstöðu
þína gagnvart karlmönnun-
um. Merki Fiskanna hér
bendir venjulega til þess að
fólk geri sér of háar vonir í
sambandi við giftinguna og að
þær hugmyndir sem myndast
hafa um tilvonandi maka séu
oft þess eðlis að þær séu utan
og ofan við raunveruleikann.
Hinn tilvonandi maki er þann-
ig alls ekki jafn mikill maður
og skýjaborgirnar höfðu gert
hann að. Af þessu leiðir það
að þér er mjög nauðsynlegt
að kynna þér alla kosti og
lesti þeirra pilta, sem þú hef-
ur áhuga á, því að öðrum kosti
verðurðu fyrr eða síðar fyrir
vonbrigðum þegar þú dag
einn uppgötvar sannleikann
í hinum margvíslegustu mál-
efnum, sem til greina koma.
Venjulega er það merki sem
fellur á geisla sjöunda húss
manns, einnig sólmerki maka
manns eða í þínu tilfelli merki
Fiskanna, sem stendur frá 20.
febr. til 20. marz, eins og þér
er vafalaust kunnugt um þar
eð það merki er sólmerki
þitt. Einnig eiga þeir, sem
fæddir eru undir merki
Kabbans vel við þig en það
merki stendur frá 22. júní til
23. júlí; einnig þeir, sem
fæddir eru undir merki
Sporðdrekans eða frá 24. okt.
til 22. nóv. Þessi merki bæði
eru draumræn og tilfinninga-
næm eins og merki þitt og
ríkur skilningur væri því fyr-
ir hendi fyrir tilfinningum
hvors annars. Þessi afstaða
bendir venjulega til að gift-
ing kunni að dragast nokkuð
jafnvel fram undir þrítugt.
Ráðandi pláneta þarna er
Júpíter í níunda húsi og bend-
ir það til þess að ástakynni
þín verði fjarri bernsku átt-
högum þínum og ef til vill er-
lendis. Þú munt vinna úti að
mestu fram að giftingu.
Horfur eru á að þér verði
all vel til barna og að þau
verði allt að fjögur. Sólin hér
bendir oft til þess að afkom-
andi manns einn eða fleiri
komizt til mikillar mannvirð-
ingar.
FÁLKINN 31