Fálkinn - 11.09.1963, Side 32
Ur sama efni —
Framh. al bls. 3L
hefði verið að hún yrði minnt á látna
barnið.
— Ég get líka gert ráð fyrir,, að þér
hafið talað við bróður yðar í gær, sagði
MacLean.
— Það gerði ég. Undir lok fyrsta
þáttar ballettsins fór ég út úr búnings-
herberginu og stóð nokkrar mínútur á
milli tjaldanna og horfði á frúna dansa.
Rétt í því að tjaldið var að falla, hrað-
aði ég mér til baka og rakst á Paul á
ganginum. Ég hélt að hann væri kom-
inn til að gera upþsteyt og sagði hon-
um, að ef hann færi ekki þegar í stað,
myndi ég kalla á hjálp og sjá um, að
honum yrði fylgt út úr leikhúsinu.
Hann skammaði mig fyrir hitt og þetta,
en hann hypjaði sig í burtu.
— Meðan þessu fór fram stóð mjólk-
in í glasinu á snyrtiborðinu í búnings-
herbergi frúarinnar?
— Já, ég hafði gengið frá því, áður
en ég fór niður að sviðinu.
— Og yður kom ekki til hugar, að
SffODfl
smntnnA ER
KJORINN BÍLLFYRIR ÍSIENZKA VEGl'.
RYÐVARINN.
RAMMBYGGÐUR,
AFLMIKILL
OG Ó D Ý B A R I
TÉHHNE5KA BIFREIÐAUMBOÐIÐ
V0NAR5TRÆT1 12. SÍMI 37*81
FramJeitt einungis úr úrvals
glerL — 5 ára ábyrgð.
Pantið tímanlega.
KORKIDJAIM H.f
Skúlagötu 57. - Simi 23 200.
bróðir yðar gæti hafa gert neitt við
það?
— Ég ímyndaði mér að hann væri
á leiðinni til búningsherbergis frúar-
innar, þegar ég stöðvaði hann, ég hélt
ekki, að hann hefði verið þar inni.
Skömmu síðar var fjöldi fólks saman
kominn í herberginu til að heilsa upp
á frúna og færa henni blóm. Þannig
hefur það verið alls staðar, þar sem
hún hefur dansað. Ég hugsaði ekki
meira um Paul, og jafnvel nú get ég
ekki fengið mig til að trúa því, að
hann .. að það sé hann, sem hefur
framið þetta hryllilega ...
Mac Lean hafði heyrt nóg. Þeir
Brook óku þegar til Searle Street. Veit-
ingakonan sagði, að herra Lavier væri
í herbergi'sínu. Síðustu kvöldin hefði
hann komið heim undir miklum áhrif-
um ... „áfengis eða einhvers annars,“
hann hefði nánast verið rænulaus, og
nú ætlaði hún að krefjast þess, að hann
flytti þegar í stað, því að þess konar
fólk gæti hún ekki haft í sínum hús-
um. Hún hefði margsinnis barið að
dyrum hjá honum, en hann ekki svarað,
og dyrnar verið læstar.
Mac Lean og Brook brutu upp dyrn-
ar. Lavier lá á rúminu í öllum fötum
og á borðinu stóð glas og lítið blátt
glas, sem hafði innihaldið mjög sterkt
eitur. Lavier hafði verið dauður í marga
klukkutíma.
Á gólfinu fundu þeir pappirsmiða,
sem á voru krotuð nokkur næstum
ólæsileg orð.
— Hvað stendur þarna? spurði
Brook.
— Að svo miklu leyti, sem ég get
greint það, stendur þarna: „Við vorum
úr sama efni og draumurinn." Hann
var ef til vill ekki jafnvitlaus og systir
hans vildi láta okkur halda.
K ven|ijóAin
Framhald af bls. 22.
Ermar: Fitjið 60 1. á prjón nr. 3 og
prjónið 7 cm brugðningu. sett á prjón
nr. 31/z, aukið út beggja vegna um 1 1.
á 1% cm millibili 12 sinnum (84 1. á).
Þegar síddin er 31 cm er tekið úr fyrir
raglan eins og á bakinu. 6 seinustu 1.
felldar af í einu.
Kraginn: Fitjið upp 181 1. á prj. nr. 3
og prjónið brugðningu (1 sl., 1 br.).
Þegar komnir eru 12 cm eru felldar
af 63 miðlykkjurnar og hvor hliðin
prjónuð fyrir sig. Fellt af í byrjun umf.
frá miðju 11 1. og 4X12 1.
Frágangur: Allt það sléttprjónaða
pressað á röngunni og peysan saumuð
saman. Kraginn festur á hálsmálið,
varpað kringum hnappagötin. Hnapp-
arnir saumaðir á vinstri boðang.
Horn og hálfmánar
Smjörlíkinu dreift yfir og deigið brotið
í 3 hluta á hvorri hlið. Flatt tvisvar út,
brotið vel saman á milli.
Skiptið deiginu í tvennt. Fletjið ann-
an helminginn út og stingið út kringl-
óttar kökur, sem á er stráð kanelsykri.
Brotnar saman, brúnunum þrýst vel
saman. Látnar lyfta sér 10—15 mínútur
á smurðri plötu. Smurðar með eggi,
birkis stráð yfir.
Fletjið afganginn út í stóra, kringl-
ótta köku, sem skorin er í 10 þríhyrn-
inga. Setjið 1 tsk. af eplamauki á hvert
horn og vefjið því saman. Látið lyfta
sér 10—15 mínútur á smurðri plötu,
smurt með eggi, perlusykri stráð yfir.
Bakað við 225° í 10—15 mínútur.
Grænir tómatar
6 grænir tómatar
1 blómkálshöfuð
4 gulrætur.
Sinnepssósan:
1 1 edik
50 g hveiti
400 g sykur
1 msk. gult sinnep
Vz msk. karrý
y2 msk. paprika
1 msk. salt
V2 tsk. rotnunarefni.
Grænmetið hreinsað og skorið í jafna
bita. Soðið 1—2 mínútur, Látið síga vel
af því.
Hveitið hrært út með hluta af edik-
inu, suðunni hleypt upp á afgangnum,
jafningnum hrært saman við. Soðið í
5 mínútur (þetta brennur auðveldlega
við), kryddi og sykri hrært saman við.
Grænmetið látið út í sósuna, allt
hitað að suðu. Kryddað meira ef vill.
Rotnunarefninu hrært saman við.
Hellt á glös, bundið strax yfir.
(■Iiiggi aA götuiini
Framhald af bls. 28.
James kom þjótandi inn.
— Þú kemur of seint, sagði hann.
Og þú lítur illa út. Hvers vegna líturðu
svona illa út? Geturðu ekki fengið þér
heimapermanet eða hvað það nú er,
sem aðrar konur gera við hár sitt.
Jú, þú veizt óperusöngkonan, sem býð-
ur tvö hundruð vinu sínum til hádegis-
verðar — hlauptu niður og líttu eftir
því, að enginn setji cyankalium í ávaxta-
safann hennar, viltu gjöra svo vel.
Heyrirðu hvað ég er að segja?
— Já, James. En það er nokkuð, sem
ég verð að biðja þig um. Ég vildi gjarna
fá frí síðdegis, kæri James, því ég
ætla að flytja.
— Hvað meinar þú með að flytja.
Þú átt gott og indælt heimili, er ekki
satt?
— Jú, jú.
— Hvers vegna viltu þá flytja. Hvers
vegna býrðu ekki heima hjá þér?
— Ég ætla að reyna að bjarga mér
á eigin spýtur.
— Vertu hjá föður þínum og vertu
ekki heimsk.
— Ég verð að flytja, James Ég hef
raunverulega þegar gert það.
— Hvenær þá?
32 FÁLKINN