Fálkinn - 11.09.1963, Qupperneq 37
HVAÐ GERIST í NÆSTU VIKU?
' 4&m£&***• ... .»•
Hrutsmerkið (21. marz—20. avnlJ.
Ef yður tekst að skil.ia hismið frá kiarnanum,
verður þetta l.iómandi góð vika. Varizt að fara út
á brautir, sem þér hafið ekki næKÍlegra þekkinKu
á, ogr reyni ðheldur að einbeita kröftum yðar að
því, sem er yðar rétta svið. Því fyrr sem menn
viðurkenna mistök sín því betra.
Nautsmerkið (21. avríl—21. maí).
Yður hættir til að hafa eilítið ákveðnar skoð-
anir ogr set.ia þær fram á þann hátt, að svo virðist
sem þér álítið engan vita betur en yður s.iálfan.
Þetta hefur særandi ogr óþætrileg áhrif á þá, sem
umgrangrast yður. Reynið að taka meira tillit til
skoðana ogr hugrmynda annarra.
Tvíburamerkið (22. maí—21. iúní).
Það birtir i ríkum mæli í lifi yðar þessa viku.
öllum erfiðleikum oe hindrunum er skyndilegra
rutt úr vesi. Þér fáið góð tilboð, en þér skuluð
þó íhuga vandlega, hvort þau henta yður vel.
Heimilislifið verður dálítið erfitt, en yður mun
takast að kinpa þvi í lag með réttum skilningi.
Krabbamerkið (22. iúní—22. iúlí).
Yður mun finnast vikan heldur hversdaEsles oe
viðburðasnauð, en litlu atvikin seta líka haft sína
þýðingu og verið skemmtileg engu síður og hinir
stórfenglegu atburðir. 1 ástamálum verður vikan
hagstæð, sérstaklega fyrir ungt fólk og þá, sem
eru ungir i anda.
Ljónsmerkið (23. iúlí—23. áaúst).
Þér skuluð ekki örvænta, þótt oersóna, sem
yður er kær, hagi sér vægast sagt einkennilega
þessa dagana. Þetta líður hiá fyrr en varir. I
vikulokin kemur dálitið óvænt fyrir, sem snertir
yður persónulega. Það gerist á opinberum stað í
návist f.iölda manna.
Jómfrúarmerkið (2A. áaúst—23. sevt.).
Margvísleg vandamál verða á vegi yðar i þess-
ari viku en yður mun takast að leysa þau öll á
giftusamlegan hátt. Þér skuluð ekki hika að ráð-
færa yður við aðra, en vandið þó vel val trúnaðar-
manna yðar. Á laugardag eða mánudag býðst yður
tækifæri, sem þér skuluð taka á stundinni.
Voaarskálamerkið (2í. sevt—23. okt.).
Þér verðið fyrir miklu baktali, sem stafar af
einhver.iu sem þér hafið sagt eða gert í ógáti.
Látið það sem vindt um eyrun þ.ióta og hafið ekki
áhygg.iur af því. Rógburðurinn þagnar smátt og
smátt, ef þér látið eins og ekkert hafi iskorizt og
komið fram eins og þér eruð vanur.
Svorödrekamerkiö (2t. okt.—22. nóv.).
Eftir annir og erfiði undangengirna vikna, fáið
þér nú loksins betri tíma og getið wi sinnt hugð-
arefnum yðar. Þér mættuð giarna vera ákveðnari
á vinnustað. Það mun veita yður aukna virðingu
og traust. Á laugardaginn berast skemmtileg
óvænt tíðindi.
BonamannsmerkiÖ (23. nóv.—21. des.).
Þér hafið vist verið einum of örlátur og b.iart-
sýnn í peningamálum í seinni tíð, og nú er tími
reikningsskilanna kominn. Það er þó ekki nauð-
synlegt að tileinka sér andstæða öfga og gerast
nirfill. Hinn gullni meðalvegur er iafnan happa-
sælastur. en er vandrataður.
i
Steinaeitarmerkið (22. des.—20. ianúar).
Vikan verður erilsöm, en lífleg. Það eru miklar
breytingar að gerast í lifi vðar. Það var mál til
komið að þér breyttuð viðhorfi yðar til ýmissa
mála. Eftir helgina mun gamall vinur yðar leita
á náðir yðar og þér skuluð hiálpa honum, bótt
]3ér__eigið erfitt. með það.
Vatnsberamerkið (21. janúar—18. febrúar).
Ef yður geð.iast vel að eftirvæntingu og spenn-
ingi þá mun yður ekki leiðast í næstu viku. Þér
skuluð ekki hika við að reyna nýiar leiðir og taka
diarflegar ákvarðanir. Fyrir ungt fólk verður
vikan rómantísk, en þar verður á ferðinni róman-
tík, sem varhugavert er að taka of hátíðlega.
Fiskamerkiö (19. febrúar—20. marz).
Þér skuluð ekki hvika hið minnsta frá hug-
myndum yðar og stefnu í þessari viku og láta
ekki gagnrýni annarra hafa áhrif á yður. Þér
eruð á réttri braut og stiörnurnar eru yður hlið-
hollar. Á sviði ástamálanna verður næsta vika
erfiður timi — tími vonar og ótta.
©
o
©
©
©
FÁLKINN
37