Fálkinn


Fálkinn - 16.03.1964, Síða 16

Fálkinn - 16.03.1964, Síða 16
' Ibúarnir sem eftir ]ifa í þorpinu leita sér skjóls bak við hrunda veggi meðan loftið titrar af sprengingum og hvæsandi kúlnahríðin skellur á í þéttum hryðjum. Flest er þetta lasburða fólk, aðframkomið af hungri, klæðlítið og örmagna. Marg- ir hafa gengið í lið með skæruliðunum en aðrir hafa orðið Þjóðverjum að auð- veldri bráð, nazistar hafa hvorki þyrmt börnum né gamalmennum en murkað úr því lífið miskunnarlaust. Aðrir hafa horfið í fanga- búðir og útrýmingarstöðvar, ef til vill fréttist aldrei af þeim framar. Við erum stödd í litlum bæ í Mið-Bosniu, heims- styrjöldin seinni stendur sem hæst. Þjóðverjar hafa hernumið alla Júgóslavíu og þeir einir meðal íbúanna lifa góðu lífi sem hafa geng- ið þeim á hönd og gegn löndum sínum, ustashi eru þeir kallaðir, og maka krók- inn í skjóli ofbeldisins. Undanfarið hafa Þjóðverjar haft þennan ónefnda bæ á valdi sínu og kvíslingarnir dafnað og blómstrað að sama skapi og íbúarnir hafa orðið fyrir búsifjum. Skæruliðarnir í fjöllunum sitja þó ekki auðum hönd- i::n þótt bæði skorti vistir og skotfæri. Þeir hafa gert leifturárás á bæinn og komið Þjóðverjum í opna skjöldu, bryndrekar hernámsliðsins verða að láta undan síga fyrir hinni littvopnuðu en hugumstóru sveit föður- landsvinanna. Bardaginn er snarpur og harður' og Þjóð- verjar gefast ekki upp fyrr , en í fulla hnefána, þá flýja • þeir sem fætur toga og á hæla þeirra föðurlandssvik- ararnir ilfræmdu, ustashi; þeir vita fullvel hver örlög þeim eru búin ef skæruiið- arnir ná þeim. Þeim er svo brátt að þeir flýja frá verzl- unum sínum opnum og geta ekkert tekið með sér. Skæruliðarnir hafa náð þorpinu á sitt vald og frels- að það undan oki Þjóðverja — að minnsta kosti í bili. Hraktir og hrjáðir íbúarnir fagna þeim vel, þar hittir ef til vill einhver bróður sinn eða frænda. Þarna eru einnig stúlkur í hópi skæru- liða, kornungar stúlkur sem handleika byssuna af sömu leikni og langreyndir her- menn. Mitt í ógnum stríðs- ins ríkir fögnuður og gleði. Tveir skæruliðanna rölta um götur þorpsins og kasta mæðinni eftir bardagann. Þeir eru einna hugdjarf- astír og vopnfimastir allra í sinni sveit, hvers mann hug- HORFST í AUGU VIÐ DAUÐANIM I FJÖGUR AR ljúfi og hafa hvað eftír annað lagt lífið að veði fyrir föður- landið og félaga sinna. 1 Þeim tvímenningunum verður gengið framhjá verzlunarbúð sem stendur auð og opin. Hún hefur verið yfirgefin í skyndi, eigandi hennár var ustashi, föðurlandssvikari. Hann hefur flúið með Þjóðverjunum og ekki einu sinni gefið sér tóm til að loka. Skæruliðarnir staldra við og horfa í búðarglugg- ánn þar sem ýmis konar fatnaði er stillt út til sölu og sýnis. Fatnaður er munaðarvara um þesar mundir í Júgóslavíu, sjálf- ir eru skæruliðarnir tötrum klæddir. Þeir líta hvor á annan, kinka kolli, hverfa inn í búðina. Að vörmu spori koma þeir út aftur, klæddir nýjum khaki- buxum og skyrtum, þeir hafa einnig leyft sér þann munað að hafa sokkaskipti. Nokkru síðar standa þessir tveir menn frammi fyrir dóm- stóli. Það er ekki nazista dómstóll, ákærendur eru ekki eig- endur búðarinnar þó sökin sé þjófnaður á tvennum buxum og tveimur skyrtum. Dómstólinn skipa skæruliðarnir sjálfir. Dómsorðið liggur ljóst fyrir, eftir nokkrar umræður kveða dómararnir upp dauðadóm yfir félögum sínum tveimur. Þeir skulu skotnir í dagrenning. Sakborningarnir hneigja höfuðið, þeir hlýða þögulir á dóminn. Síðan er þeim leyft að taka til máls, þeir mótmæla ekki dómnum, þeir nota þetta síðasta tækifæri til að biðja félaga sína afsökunar á misgjörðunum. Það er þögull hópur sem horfir á þegar dómnum er full- nægt, meðal félaganna er ung stúlka, tinnusvört á brún og brá. Ef til vill snýr hún sér undan þegar skotin kveða við ... Við hittum hana rúmum tuttugu árum síðar, þessa sömu konu, í turnherberginu á Hótel Borg á kyrru síðdegi, Dóm- kirkjuklukkan slær án þess nokkur leggi við hlustir, á Tjarnar-

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.