Fálkinn


Fálkinn - 16.03.1964, Qupperneq 17

Fálkinn - 16.03.1964, Qupperneq 17
RUNÓLFUR ELENTÍNUSSON bökkunum eru börnin að gefa öndunum og fólkið röltir um Austurvöll á góð- viðrinu. Konan þagnar við þegar hún hefur sagt okkur frá ör- lögum þessara tveggja félaga sinna, hún handleikur staup af sliwovits án þess að bergja á því. Hárið er enn tinnusvart og augun snör og röddin þýð; hún heldur áfram: — Þetta kann að virðast grimmúðlegt og harðneskju- legt, segir hún, en einmitt á þennan hátt var siðferðinu í skæruliðasveitunum borg- ið. Aginn hlaut að vera strangur. Allir urðu að lúta aganum og enga undantekn- ingu mátti gera, ' hversu smávægileg sem yfirsjónin var. Tító setti á stofn nýjan her, fyrirmyndarher sem átti að vinna landi sínu án þess alþýða landsins yrði fyrir búsifjum. Þannig var komið í veg fyrir rán og rupl. Við máttum aldrei krefja fólk um mat eða húsaskjól, aldrei taka neitt ófrjálsri hendi hver sem í hlut átti. Við máttum þiggja gistingu eða máltið ef okkur var boðið að fyrrabragði, aldrei heimta neitt. Þessi kona er nýskipaður sendiherra Júgóslavíu í Nor- egi og á Islandi og heitir frú Stana Tomasevíc. Hún er hingað komin til að af- henda embættisskilríki sín og gefur sér tóm til að rifja upp fyrir lesendum Fálkans ýmislegt frá þátttöku sinni í skæruhernaðinum. Hún segir okkur frá landi sínu, Júgóslavíu, sem um aldaraðir hefur orðið að þola útlenda kúgui} og áþján, log- aði í innbyrðis deilum og verið vígvöllur og þrætuepli stórvelda. Mörg þjóðarbrot búa þar innan sömu landa- mæra og tala óskyldar tung- ur. Ti-úarbrögðin hafa ekki orðið til að lægja ófriðar- Sendiherra Jiígóslavíu á íslandi, frú Stana Tomasevic, dóttir lögreglustjóra í Svartfjallalandi segir frá þátttöku sinni í skæruhernaði á styrjaldarárunum. FÁLKINN 17

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.